Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 58

Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 58
17. desember 2011 LAUGARDAGUR58 Alheimurinn festur á mynd Ár hvert eru milljónir ljósmynda teknar af undrum alheimsins, hvort sem það er af áhugafólki um stjörnufræði, vísindamönnum eða vélvæddum sendiherrum okkar í geimnum. Með vali sínu á þeim myndum sem þeir telja framúrskarandi fallegar eða merki- legar hafa aðstandendur Stjörnufræðivefsins náð að sannfæra Svavar Hávarðsson um að þeir horfi til himins með næmu auga. MYND ÁRSINS AÐ MATI STJÖRNUFRÆÐIVEFSINS Norðurljósin eru ekki aðeins glæsileg að sjá af jörðu niðri heldur einnig utan úr geimnum. Hér sést reyndar hliðstæða þeirra, suðurljósin, eins og þau birtust geimförum í Alþjóðlegu geimstöðinni þegar þeir þutu yfir Indlandshaf 17. september 2011. Suðurljósin eru í um það bil 100 kílómetra hæð en geimstöðin mun ofar, í um 350 kílómetra hæð. Norður- og suðurljósin verða til við árekstra hraðfleygra rafhlaðinna agna frá sólinni við sameindir í lofthjúpi jarðar. Í þessu tilviki kviknuðu ljósin í kjölfar kórónuskvettu sem varð á sólinni þremur dögum fyrr. Litadýrðina má rekja til mis- munandi sameinda í lofthjúpi jarðar sem gefa frá sér ljós með tilteknum lit þegar agnir sólvindsins örva þær. Súrefnissameindir gefa frá sér grænan bjarma, hvítan eða rauðan en nitur bláan eða fjólubláan. MYND/IMAGE & SCIENCE LABORATORY, NASA JOHNSON SPACE CENTER SÓL VERÐUR TIL Stjörnur verða til í gas- og rykskýjum. Á lokastigum myndunar sinnar hrista þær stundum ærlega upp í hreiðrum sínum, eins og sést á þessari mynd Hubble-geim- sjónaukans. Svæðið heitir S106. Það er tvö ljósár á breidd, sem er um það bil hálf fjarlægðin milli sólar og næstu sólstjörnu. Í miðjunni lúrir ungstirni, 15 sinnum massameira en sólin, sem þeytir frá sér efni með miklu offorsi og raskar gasinu og rykinu í kring. Efnið sem stjarnan spýr út orsakar ekki aðeins stundaglaslögun skýsins heldur hitar það einnig vetnis- gasið upp undir 10.000 °C svo það verður óstöðugt. MYND/NASA/ESA TIGNARLEGT RISASÓLGOS Í febrúarlok 2011 varð sérstaklega tignarlegt sólgos á sólinni okkar. Í rúmar 90 mínútur stóð glæsileg slæða úr næstum milljón gráðu heitu rafgasi upp úr sólinni og bylgjaðist eins og fegurstu norðurljós. Útfjólublá augu geimfars NASA, Solar Dynamics Observatory, fylgdist grannt með sýningunni í einstökum smáatriðum. Hluti efnisins slapp úr krumlum sólar og streymdi út í geiminn en annað féll aftur niður til hennar. MYND/NASA/GODDARD SPACE FLIGHT CENTER VETRARBRAUTARÓS Hubble-sjónauki NASA og ESA fagnaði 21 árs afmæli sínu í geimnum á árinu. Af því tilefni var sjónaukanum beint að sérstaklega myndrænu vetrarbrautatvíeyki sem kallast Arp 273 og er í 300 milljón ljósára fjarlægð frá jörðinni. Í Arp 273 eru tvær þyrilþokur sem eru í þann veginn að renna saman í eina. Síðustu ármilljónirnar hafa þær stigið flókinn dans undir stjórn þyngdaraflsins. Nokkrir tugir þúsunda ljósára skilja þyrilþokurnar að. MYND/NASA,ESA OG HUBBLE HERITAGE TEAM (STSCI/AURA) STORMUR BÍTUR Í SKOTTIÐ Á SÉR Lofthjúpur Satúrnusar er nístingskaldur og alla jafna kyrrlátur og sviplaus. En um það bil einu sinni á hverju Satúrnusarári (um þrjátíu jarðár), þegar vorar á norðurhvelinu, byrjar einhver ólga í skýjaþykkninu sem brýst út sem mikill stormur. Segja mætti að á Satúrnusi sé stormurinn „vorboðinn ljúfi“ fyrir okkur mennina. Í byrjun árs geisaði slíkur stormur. Svo stór varð hann að hann umlék alla reikistjörnuna og beit að lokum í skottið á sér. Vindhraðinn náði ef til vill um 500 metrum á sekúndu, en þetta er stærsti og öflugasti stormur sem menn hafa séð á Satúrnusi. Cassini-geimfar NASA tók þessa fallegu mynd af skrugguveðrinu í febrúarlok, tólf vikum eftir að stormsins varð fyrst vart. MYND/NASA/JPL-CALTECH/SSI Heimildir: Stjörnufræðivefurinn. Allar skýringar við myndirnar eru aðstandenda vefsins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.