Morgunblaðið - 04.03.2011, Page 62
62 | MORGUNBLAÐIÐ
Borðskreyting Blómaskreytar Garðheima útbjuggu margskonar skreytingar fyrir fermingasýninguna.
S
íðastliðna helgi var hald-
in fermingasýning í
Garðheimum en þar
mátti líta fjölbreytt úr-
val skreytinga fyrir
fermingarveisluna og lögðu margir
leið sína í verslunina til þess að fá
innblástur. Að sögn Jóhönnu M.
Hilmarsdóttur, deildarstjóra
blóma og gjafavörudeildar, eru
skærbleikt og dökkblátt sívinsæl
litaþemu en í ár koma aðrir litir
sterkir inn. „Við höfum verið að
velta þessu mikið fyrir okkur með
litina því oft eru það ákveðnir litir
sem standa upp úr. Núna í ár
finnst mér þó eins og allir litirnir
séu í gangi,“ segir hún og bætir því
við að skærgrænn og svartur sé til
dæmis vinsæl litasamsetning hjá
piltum í ár.
Jóhanna segir Garðheima hafa
lagt áherslu á að bjóða upp á al-
hliða þjónustu og vöruúrval þegar
kemur að skreytingum og er m.a.
hægt að láta letra sálmabækur,
kerti og servíettur í versluninni.
Hvað þemu varðar hafi þau í ár
lagt áherslu á að stíla inn á per-
sónuleika og áhugmál ferminga-
barnanna. „Í eina kertaskreyt-
inguna notuðum við litla
fótboltaskó og svo var medalía fest
á kertið. En það er hægt að nota
hvað sem er sem tengist áhuga-
málinu,“ segir hún.
holmfridur@mbl.is
Stíla inn á áhugamál
fermingarbarnsins
Fermingaveislurnar í ár
verða í öllum regnbogans
litum og persónuleiki
fermingarbarnsins í aða-
hlutverki.
Stráka? Tvenns konar blátt. Dökkblái liturinn er klassískur en sá ljósblái e.t.v. nýrri.
Lime Skærgrænn og svartur er vinsæl litasamsetning í ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugamálin Skemmtilegt er að gera skreytingarnar persónulegar.
Stelpu? Bleikur og fjólublár koma einstaklega vel út saman á borði.
Marglitt Sumarleg og litrík skreyting.
’
Í eina kerta-
skreytinguna
notuðum við litla
fótboltaskó og
svo var medalía
fest á kertið. En
það er hægt að
nota hvað sem er
sem tengist
áhugamálinu.“