Morgunblaðið - 27.08.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.08.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2011 Þverfellshorn Steinn Kerhólakambur Blikdalur Dýjadalshnúkur Gljúfurdalur Esjuberg Langihryggur Lokufjall Arnarhamar Þverfell Setning Esjudagsins kl. 13.00 - um Mógilsá í umsjón Kristjáns Bjarnasonar frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Viðar Þorkelsson forstjóri Valitor og Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélagsins. Samstarfssamningur Ferðafélags Íslands við Hjálparsveitir skáta í Kópavogi. Stafganga kl. 14.00 - Guðný Aradóttir og Jóna Hildur Bjarnadóttir kynna stafgöngu og notkun stafanna á fjöllum. - Vaskir fjallagarpar há keppni í kappgöngu að „steini“ – skráning á fi.is og á staðnum Ferðafélag barnanna býður öllum börnum í Fyrstu búðir í fylgd sprækra fararstjóra. Gönguferðir með fararstjórum Ferðafélagsins Úrval gönguleiða við allra hæfi. Lagt verður af stað kl. 13.30, 14.00 og 14.30. Barnadagskrá hefst kl. 13.30 Skógarganga kl. 14.00 Kappganga kl. 14.30 Miðnæturganga með Ólafi Erni Haraldssyni forseta FÍ. Brottför frá Esjustofu kl. 20.30 laugardaginn 27. ágúst. Morgunganga með Páli Guðmundssyni frkvstj. FÍ, á Móskarðshnúka og Laufskörð,u.þ.b. 4 klst. Mæting í Mörkina kl. 6 eða við upphafsstað göngu, sjá nánar www.fi.is Fjallaupphitun í höndum íþróttakennara á túninu fyrir neðan Esjustofu. • Brekkusöngur með Ingó Veðurguð. • Maxímús Músikus mætir á svæðið og tekur nokkur lög. H V ÍT A H Ú SI Ð /S ÍA 11 -1 15 0 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verði af gerð Hvammsvirkjunar í Þjórsá þarf að reisa fjár- og mann- helda girðingu umhverfis Viðey í Þjórsá til að vernda lífríki eyjar- innar fyrir mönnum og dýrum. Um- hverfisráðherra hefur friðlýst Við- ey, að ósk landeigenda. „Okkur fannst það tilhlýðilegt, í ljósi fyrirhugaðra virkjanafram- kvæmda,“ segir Katrín Briem á Stóra-Núpi, einn eigenda Viðeyjar sem óskuðu eftir friðlýsingu eyjar- 0innar. Hún tekur fram að hún voni að ekki verði af virkjun. Í Viðey, sem í daglegu tali heima- manna hefur verið kölluð Minna- núpshólmi, hefur gróður þróast sjálfstætt, að mestu án áhrifa manna og sauðfjár síðustu áratug- ina. Þar er lítt snortinn og grósku- mikill birkiskógur sem ekki hefur verið nytjaður um árabil. Sker eyjan sig mjög úr landinu á árbökk- unum beggja vegna sem nýtt er til ræktunar og beitar. Náttúruleg vernd Straumþung Þjórsá hefur séð um að einangra eyjuna. Hún hefur ekki verið nýtt eftir miðja síðustu öld að sögn Önnu Sigríðar Valdimars- dóttur sem tók lífríki eyjarinnar fyrir í lokaverkefni í náttúru- og umhverfisfræði við Landbúnaðar- háskóla Íslands. Þó eru heimildir um að þurft hafi að sækja fé út í hana 1973 og 1999. Katrín Briem, sem á Viðey með systrum sínum, hefur sjálf aldrei komið út í eyna. Hvammsvirkjun er ein þriggja virkjana sem Landsvirkjun hyggst gera í Neðri-Þjórsá. Áin verður stífluð skammt fyrir ofan Viðey, Hagalón myndað og vatnið leitt í stöðvarhús neðan eyjarinnar. Það þýðir að rennsli árinnar verður stýrt um eyna og mun minnka mikið og verða lítið á ákveðnum tímum árs. Skepnur geta þá auðveldlega komist út í eyna og líklegt er að fólk hafi áhugi á að litast þar um. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda náttúrulegan og lítt snortinn birkiskóg ásamt því lífríki sem hon- um fylgir. Einnig að vernda erfða- eiginleika og erfðafjölbreytileika birkisins og annars gróðurs. Eigendur jarðarinnar hafa í nokkur ár óskað eftir friðlýsingu eyjarinnar og Anna Sigríður Valdi- marsdóttir hvatti til þess í ritgerð sinni. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti friðlýs- inguna sem Svandís Svavarsdóttir síðan undirritaði í fyrradag. Með friðlýsingunni tekur Um- hverfisstofnun að sér að girða frið- landið, verði af virkjun, til að vernda lífríkið fyrir mönnum og dýrum. Þarf vafalaust töluvert mannvirki til að loka eynni en ekki liggur enn fyr- ir hvernig það verður. Náttúrulegri vernd lýkur með virkjun  Aðgangur að Viðey í Þjórsá opnast ef virkjað verður í Neðri-Þjórsá  Með friðlýsingu tekur ríkið að sér að girða eyjuna af til að vernda sérstæðar gróðurminjar fyrir mönnum og fé Ljósmynd/www.mats.is Þjórsá Viðey er í Þjórsá framan við bæinn Minna-Núp. Gróður þar sker sig mjög úr manngerðu landslagi. Gróskumikill birkiskógur er í Viðey. Alls fundust yfir 70 há- plöntur þar við rannsókn Önnu Sigríðar Valdimarsdóttur og sérfræðinga Náttúrufræðistofn- unar. Þar af eru tvær tegundur sem eru sjaldgæfar hér á landi, grænlilja og kjarrhveiti. Grænliljan finnst að sögn Önnu Sigríðar aðallega á Vest- fjörðum og í Suður-Þingeyjar- sýslu og kjarrhveitið í inn- sveitum Suður-Þingeyjarsýslu. Minjar í eynni og heimildir sem Anna Sigríður hefur aflað sér sýna að hún hefur verið nýtt fyrr á árum, meðal annars til vetrarbeitar, viðarnytja og eggjatöku. Þar sjást tóttir húss og stígar hafa verið ruddir. Sjaldgæfar plöntur SJÖTÍU GRÓÐURTEGUNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.