Teningur - 01.05.1987, Side 25

Teningur - 01.05.1987, Side 25
Nazim Hikmet Nazim Hikmet fæddist í Istanbúl áriö 1902. Fullorðinsár sín var hann landflótta, lengst af í Moskvu, nema áratuginn 1928-1938. Þá naut hann frelsis heima. Árið 1938 varhann dæmdur til 28 ára fangelsisvistar fyrir kommúnistaáróð- ur. Vegna þrýstings menntafólks um allan heim var hann þó látinn laus þegar hann hafði afplán- að 13 ár. Skömmu eftir að hann losnaði úr fang- elsinu hvarf hann enn í útlegð og andaðist í Moskvu árið 1963. Fangelsisvist og útlegð eru þannig jarðvegur ljóða hans, en aldrei lét hann bugast, heldur efldist að trú á mannkærleikann og kommúnismann. Auk tækifærisljóða úr stéttabaráttunni eru ljóð hans ástarljóð til eigin- konu og sonar heima í Istanbúl eða til alls mann- kynsins. Ljóðin sem hér fara á eftir eru þýdd úr frönsku. Gunnar Harðarson las þýðingamar yfir í handriti og benti mér á margt sem betur mátti fara. Þór Stefánsson PARÍSARGÁTA Hvaða borg er eins og vín? París. Þú færð þér í glas Það er súrt, Á öðru stígur það til höfuðs Á þriðja ertu negldur við borðið. Þjónn, aðra fiösku! Og frá þeirri stundu, hvar sem þú ert hvert sem þú ferð ertu Parísarbytta, góði. Hvaða borg heldur áfram að vera falleg í óendanlegri rigningu? París. Sonur Hikmets, í hvaða borg viltu deyja? í Istanbúl í Moskvu og í París. Hvenær finnst manni París ljót? Þegar prentsmiðjur eru lagðar í rúst og bókunum brennt. Hvaða búningur hæfir París engan veginn? Svartir brynvagnar með rimla fyrir rúðum. hún er fegurst allra. Og svo hitti ég líka Mímí sautján ára. Hverju er París þá lík? Alþýðu Parísar. Trúir þú á París, Adamssonur? Ég trúi á París. 15. maí 1958. I hvaða borg fékkstu hvftasta brauðið? í París, einkum morgunhornin: Þau eru eins og í Istanbúl hjá Chehzade-bakara. Hvað þótti þér vænst um í París? París. Félagi, hverjum færðirðu blóm? Minningu kommúnunnar, fegurðardís, fínlegri eins og reyr. Hvaða landa hittirðu í París? Namík Kemal, Zíya Pacha, Mústafa Suphí, og svo móður mína í æsku: hún er að mála, hún er að tala frönsku 23

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.