Teningur - 01.05.1987, Blaðsíða 52
Þríhyrningur íferningi, GalleríSúm 1972, ca 400 x 400 cm.
„Harry the Caveman" og ég bjó til „Perf-
ormables". Eiginlega er ekkert meir um
það að segja.
Performables, hvað merkir það?
Eitthvað sem hæft er til flutnings, fram-
kvæmanlegt eða eitthvað í þá áttina. Á
hverju korti er smá ljóð eða leikþáttur.
Eitt kallaði ég t.d. „Sugar event" og á
miða, límdum á, stendur „Sugar" og síð-
an „Cover the word sugar with sugar".
Einfalt og dálítið í anda George Brecht.
Litla regnljóðið er kannski best af þess-
um hlutum.
Svo fluttirðu til Hollands þetta sama
haust, enþú hélst samt tengslum við gall-
eríið og varstþar með einkasýningu aftur
1972. Ertuþá með moldarverkið?
Já, bara það. Það hét „Þríhyrningur í
femingi" og var þríhyrningur af vígðri
mold í ferningi af mold. Þetta er form-
leikur undir sjónmáli, þar sem þríhyrn-
ingurinn hefur orðið fyrir alveg ákveðnu
kúltúrsmiti.
Þú varst líka að vinna í bókum á þessum
tlma, ekki satt?
Jú, Punktar og Niður voru fyrstu bækurn-
ar sem ég lét prenta, komu báðar út 72.
Punktar er hugsuð sem ljóðabók. Það
voru ljósmyndaðir þrír punktar í ljóða-
safni Halldórs Laxness - valdir af handa-
50