Teningur - 01.05.1987, Síða 27

Teningur - 01.05.1987, Síða 27
SUNNUDAGUR ÉG HUGSA UM ÞIG Það er sunnudagur í dag. í fyrsta sinn, í dag var mér hleypt út í sólskinið og ég- í fyrsta sinn á ævinni horfði ég stjarfur á himininn og undraðist hve hann var fjarlægur hve hann var blár hve hann var víður. Ég settist á jörðina lotningarfullur og skorðaði bakið við hvítan vegginn. Núna kemur ekki til mála að ég fleygi mér í sjóinn. Enga baráttu núna Ekkert frelsi, enga konu. Jörð, sól og ég. Ég er hamingjusamur maður. 1938 Ég hugsa um þig og ilmur móður minnar stígur mér að vitum móður minnar, hinnar fögru. Þú situr í hringekjunni í mér á útihátíð Hár þitt og pils sveiflast, þú hringsnýst Af andliti þínu rjóðu missi ég sjónar og finn það aftur Hvers vegna man ég þig eins og hnífsstungu þegar þú ert eins og núna óendanlega fjarri mér? Hvers vegna bregður mér þegar ég heyri þig tala? Ég krýp á kné ég horfi á hendur þínar og mig langar að snerta þær Ég get það ekki Þú ert handan rúðunnar Ég er undrandi áhorfandi, rósin mín að harmleiknum sem þú leikur í skugga mínum. VIÐ BROTTFÖR Við brottför er ýmislegt ógert við brottför Gasellan úr veiðimannshöndum hrifin liggur enn hreyfingarlaus Ég tíndi glóaldin af grein en þau eru enn óskræld Ég blandaði geði við stjörnumar en þær em ótaldar enn Ég sótti vatn í brunninn en í glösin er það enn ekki komið Rósirnar liggja í körfu en vasamir eru ekki mótaðir enn Af ást emm við ekki ennþá fullsödd Við brottför er ýmislegt ógert við brottför. ÞÚ ERT MÍN ÖLVUN Þú ert mín ölvun Þú ert alls ekki runnin af mér Getur ekki runnið af mér Vil ekki að renni af mér Þungu höfði Hrufluðum hnjám Ötuðum fötum fer ég til ljóss þíns sem Ijómar og slokknar hrasa, velt, stend upp.

x

Teningur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.