Birtingur - 01.01.1968, Síða 17

Birtingur - 01.01.1968, Síða 17
ert rúm til að fjalla um dulspekilegar skoðanir Artauds um togstreitu góðs og ills þar sem hið góða er viðleitni á ytra borði, stefna vilj- ans til að ná niður í djúpið þar sem illskan býr og beizla hana og hemja með mætti sköp- unarinnar forminu. Þessi fáu orð gefa litla hugmynd um viðhorf Artaud sem hafa orkað á marga hina fremstu leikhúsmenn og blásið þeim í brjóst margvíslegar nýjar hugmyndir til þess að gera leikhúsið og list þess að virkari þátttakanda í andlegu lífi og auka á nauðsyn þess. Leikhúshugmyndum Artauds má kynnast af bók hans Le theatre et son double, hún kom út fyrst 1938. Hann talaði um að sprengja sig í gegnum málið sprengja sig gegnum vana- hugtökin til þess að ná snertingu við lífið. Draumar hans voru stórir og ógæfa hans mik- il, hann var 9 ár á geðveikrahælum, og hann sá fátt rætast af draumunum þó ýmsir miklir leikhúsmenn samtíma honum væru snortnir af skoðunum hans svo sem einsog Jean Louis Barrault og bókmenntamenn einsog André Gide. Hann dó 1948 en núna á síðustunni hefur endurvaknað margefldur áhugi á þess- um leikhúshugsjónum og kemur fram í ýms- um stöðum svo sem hjá Peter Weiss og nafna hans Brook og í Póllandi hjá Grotovskí í mag- íska leikhúsinu eða seiðleikhúsinu sem var í Opole en er nú í háskólaborginni Wroclaw, frá því var sagt í Birtingi í fyrra. Þessi nöfn sem ég nefndi núna eru öll meðal þeirra sem ber hæst í leikhúsinu í dag. Leikritið Marat/ Sade er einmitt skrifað undir miklum inn- blæstri frá Arthaud. Peter Weiss hefur orðið fyrir áhrifum frá öðrum höfundi sem er eigin- lega andstæða Arthauds og hinna magísku við- horfa hans. Það er Brecht sem kveikti kenning- una um verfremdung, eða framandhrif: leik- arinn á ekki að sefja áhorfendur né seiða held- ur vekja gagnrýni þeirra. Weiss hefur tekizt að spenna saman þessa ólíku heima og skapa sér sjálfstæðar aðferðir til að túlka sinn heim. Margir tala um hann sem merkasta höfundinn sem hafi komið fram að undanförnu. Faðir Weiss var verksmiðjueigandi einsog fað- ir Brechts. Sem betur fór var dálítið Gyðinga- blóð í honum en það hefur nú aldrei þótt spilla gáfunum enda Gyðingar löngum hat- aðir af aulum og einhömum mönnum sem geta ekki fylgt eftir sveiflunum í margslungnu sálarlífi. Fjölskyldan flýði Þýzkaland 1934, þá var Weiss 18 ára. Hann hefur talað um að hugsunin hafi oft leitað á sig: hvað varð af hinum gömlu félögum og vinum? Hvað störf- uðu þeir í stríðinu, var kannski einhver þeirra að hinum háleitu störfum í fangabúðunum? hvað um sjálfan mig, þýzkan mann? hvernig hefði ég brugðizt við? Þessar spurningar hafa vakið margt fram í skáldskap Peter Weiss. birtingur 15

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.