Húsfreyjan - 01.10.1964, Blaðsíða 42
Jólaljósin utanhúss
1 bæ og borg fjölgar þeim stöðugt, sem
tendra jólaljósin utanhúss. Ljósin eru sett
meðfram gluggum og svölum eða trén í
garðinum prýdd með þeim. Við skulum
vera þess minnug, að liinar venjulegu „jóla-
trésseríur“ eru ekki ætlaðar til notkunar
utan dyra. Þess vegna ber okkur að leita
til rafvirkja eða sérverzlana við kaup á úti-
Ijósum. Leiðslurnar verða að þola veður og
vinda, og gæta verður þess vandlega, að
einangrunarlagið merjist ekki í sundur í
dyra- og gluggagættinni. Sé þessa ekki gætt,
getur slys borið að liöndum og varpað
skugga á jólagleðina. Rád och Rön 10, 1962.
JólaljósasamstœSur, sem ætlaðar eru utan-
húss, eru vatnsþéttar og þannig gerðar,
að perustæðin og rafmagnssnúran eru
klædd samhangandi gúmí. Það er alls ekki
ráðlegt og heldur ekki leyfilegt að nota
venjuleg perustæði á venjulegri rafmagns-
leiðslu, það er ekki nógu sterklega gerl og
heldur ekki vatnsþétt. Þá þarf að ganga
vandlega frá snúrunum, t. d. gæta að því
að láta þær ekki liggja í bleytu, heldur
hengja þær upp, og kannske má nota ein-
angrunarband eða plast til að verja þær.
Heimagerðar jólaljósasamstæður ætti eigi
að nota utanhúss við liærri spennu en 32 V.
Æskilegt er að tengja litla spennubreyta
á raflögnina, en þeir geta þá breytt 220
V. í 32 V.
Samkv. viðtali við Kafmnagnscftirlit ríkigins.
100 kerta Ijósaperur eru hœttulegar
Framleiddar hafa verið 100 W. perur af
sömu stærð og 25 kerta perur. Þetta getur
verið hættulegt, ef þær eru notaðar í litla
lampa með litlum skermum, eða Ijósastæði
sem liggja nærri lofti eða veggjum. 100
kerta pera liitnar mun meira en lítil pera
(25—40 W) og ætti einungis að nota liana
í borð- eða gólflampa með opnuin skermi,
sem veit upp á við, eða þá í rúmgott og
opið vegg- eða loftljós.
Ráfl och Rön 10, 1962.
A T H U G I Ð !
I síðasta tölubl. Húsfreyjunnar tókst svo
illa til á bls. 14, að lieil lína úr handritinu,
sem eftir var prentað, féll niður. Þetta er,
þar sem lýst er þingslitum í Bodö. Rétt er
málsgreinin á þessa leið: .... fánaborgin
var aftur borin fram á sviöiS af sömu kon-
um og óiSur, tónlist flutt og þinginu þannig
slitiö með sama viröuleik og festu og þaö
var sett“.
40
HÚSFREYJAN