Húsfreyjan - 01.10.1964, Blaðsíða 40
Reyniö livort um asetat efni er að ræða
með því að láta aseton drjúpá á þráð úr
efninu, en það étur liann þá strax í sund-
ur. Gætið að því að asetatefni þolir ekki
heitt járn.
Al-tilbúnar trafjar.
Mjög er auðvelt að þvo flíkur úr þess-
um efnum, séu þær ekki látnar bíða lengi
ólireinar, en þá geta óhreinindin setzt föst
í og valdið flekkjum sem erfitt er að bæta
úr. Einnig er hætta á aukabrotum og
krypplum sé flíkin látin standa samankuðl-
uð. Látið því flíkina hanga t.d. á herðatré,
þar til bægt er að þvo hana. Til þess að
draga úr rafmögnun má nota mótefni, sem
fæst í verzlunum í síðasta skolvatnið, eða
glycerin, 1 matsk. í 1 1.
Flest al-tilbúin efni þola að vera þvegin
varlega í þvottavél (t.d. tunnuvél), en oft
er ráðlagt að þvo þau beldur í böndum.
Ekki má heldur nudda þau mikið í liönd-
um, né heldur bursta með bursta, eða vinda
þau. Kreistið vatnið í gegnum þau og núið
með svampi þar sem óhreinast er. Mjög
viðkvæmar flíkur ætti ekki að setja í
þvottavél.
Ekki á að þvo þessar trefjar í beitara
vatni en 40° C, nema annað sé fram tekið
á vörumerki. Sé um litaðar trefjar að ræða
verður að nota fín-þvottaefni, en annars
má nota sama þvotlaefni og á hvítþvott.
Al-tilbúnar trefjar taka auðveldlega lit af
öðru og því á ekki að þvo saman Iivítar
flíkur og mislitar né láta þær liggja sam-
an blautar. Notið ekki vatn, sem annað
befur verið þvegið í. Ekki ætti að vinda
í þeytivindu beldur bengja flíkurnar slétt-
ar og láta drjúpa úr þeim. Látið þvottinn
aldrei taka nema fáar mínútur, helzt ekki
meira en 3—5 mín. í allt. Hengið skyrtur,
blússur o. þ. h. á lökkuð tréherðatré eða
úr plasti. Gott er að vefja herðatré með
smjörpappír, ])á er ekki hætta á lit af
þeim, og síður hætta á skörpum brotum á
öxlum í blússur og skyrtur. Teygið á saum-
um, flibba og líningum, strjúkið belzt ekki,
og þá með lítið heitu járni sé það gert. Um
prjónaefni er sama að segja og um prjóna-
vörur úr reioni og ull. Fara verður var-
lega með þær í þvotti, svo að síður sé hætta
á að þær aflagist.
Látið peysurnar liggja sem mest niðri í
vatninu en lyftið þeim sem minnst upp svo
að þær missi síður lagið. Því fínni og mýkri
sem trefjarnar eru, því varlegar verður að
fara með þær. Nuddið ekki en þrýstið vatn-
inu varlega í gegnum þær.
Mikill ókostur er það við prjónaflíkur,
að þær vilja linökra, bæði flíkur úr ull
og al-tilbúnum trefjum. Komið liefir í Ijós
að sterklegar og fast prjónaðar flíkur
hnökra minna en fínar og laus-prjónaðar.
Einnig ættu flíkurnar að passa vel. Of litl-
um flíkum og þröngum hættir fremur við
að hnökra en öðrum. Þá hefir einnig komið
í Ijós að peysur hnökra fremur séu leður-
eða loðskinnsjakkar notaðir utan yfir þær.
Fínar og lausprjónaðar peysur úr ull eða
gerviefnum á ekki að þvo í vél né vinda í
þeytivindu og forðast alla áreynslu á þær.
Sérstaklega er mikilvægt að fara varlega
með þær í fyrsta þvotti, til að forðast að
trefjarnar hnökri og hlaupi og ull þófni.
Bezt er að láta þær þorna sléttar, liggjandi
á horði eða öðru, í sínu upprunalega lagi.
(Takið mál af flíkinni, áður en farið er
að þvo hana og leggið bana til eftir því til
þornunar).
Ht'iinildarrit: R&d och Rön nr. 2, 1963 og F-rup-
portcn, 1, 1963 og 4, 1964.
Flokkim m vöruheifi á
gervifrefjum
„Hólf-syntetiskar" eSa umbreyttar trefjar
I. Rayon:
Avisco avlin, avicron, avril, coloray, colorspun,
jetspun, enka, viscalon, fortisan, bembérg,
cupioni, corval, topel, framleidd í Bandaríkjun-
um.
Fibranne, framleitt í Frakklandi.
Artilana, elaston, reona, framl. í Svíþjóð.
Cella, framleitt í Sviss.
Colvadur, phrilan, vistra, framl. í V.-Þýzkal.,
delustra, fibrenka, fibro, vincel, sarille, evlan,
ennfrentur kopurrayonlegundirnar:
Beniberg, cuprama, cupresa.
II. Acetat:
Avisco-acetat, celanese, chroinspun, colorsealed,
estron, celaspun, celaperm, celaloft, ucele,
38
HÚSPREYJAN