Húsfreyjan - 01.10.1964, Blaðsíða 37
um efnum. Þær eru sterkar þurrar, en
veikari votar. Þess vegna er nauðsynlegt að
þvo þær með varúð og forðast að nudda
mikið eða vinda þær. Annars er auðvelt
að þvo þær, óhreinindi ganga vel úr.
Sérstakir eiginleikar.
Viskosareion er mest notað af öllum
hálf-tilbúnum trefjum, bæði sem ullar- og
silkilíki til fatnaðar, t. d. mjög mikið sem
prjónasilki í undirfötum, einnig í glugga-
tjöld, áklæöaefni og fóðurefni.
Koparreion eru mjúkar og fíngerðar
trefjar, léttar að þvo og strjiika. Notað í
kjólaefni og undirfatnað.
Asetatefni tekur ekki í sig mikil brot,
trefjarnar eru mjúkar og því er það mikið
notað í fín kjólefni, einnig í fóðurefni og
berraslifsi. Það þolir illa liita, og J)ví verð-
ur að gæta þess að strjúka það ekki með
mjög heitu járni. Ennfremur Jtolir það
ekki aseton.
Triasetat krypplast minna og er sterkara
vott en aðrar reiontrefjar. Notað í kjólefni
og fóðurefni. Auðvelt er að strjúka J)að og
ennfremur er liægt að pressa í það föst brot
og fellingar. Það er ekki eins viðkvæmt fyr-
ir asetoni og asetatefni.
Hvítutrefjar. Þær eru eingöngu fram-
leiddar sem ullarlíki. Þær eru ekki sterkar,
bvorki votar né þurrar, en l>ykja beppileg-
ar til að blanda saman við sumar „al-til-
búnar“ trefjar, þar eð þær draga auðveld-
lega í sig raka. Einnig er þeim blandað
saman við bómull og reion, og þykja efnin
J)á verða fjaðurmagnaðri, gljúpari og voð-
felldari en ella.
Al-filbúnar frefjar
Þær eru algjörlega tilbúnar af manna
böndum. Einföldum kemiskum efnum er
raðað saman í mjög flókin og margbrotin
efnasambönd. Aðalgerðum J)essara trefja
er skipt í 5 liópa: polyamidtrefjar, poly-
estertrefjar, polyakryltrefjar, polyvinyl-
trefjar og polyuretantrefjar. (Nöfnin eru
dregin af efnafræðilegri samsetningu trefj-
anna).
húspreyjan
Sameiginlegir eiginleikar. Yfirleitt eru
þessar al-tilbúnu trefjar sterkar, bæði
þurrar og votar.
Trefjarnar krypplast lítið; taka minni
raka í sig en aðrar trefjar, það Iiefir þann
kost í för með sér að þær J)orna fljótt, en
gallinn er sá, að J)ær verða rafmagnaðar.
Þá draga þær til sín smáagnir og ólireink-
ast fljótt. Reynt er að bæta úr J)ví með
mótefnum við framleiðslu þeirra, en J)au
eru enn ekki nægilega lialdgóö í þvotti og
efnalireinsun. Þegar mótefnin minnka og
trefjarnar verða rafmagnaðar við notkun,
er liægt að kaupa þessi mótefni og skola
flíkurnar úr þeim að loknum þvotti og
skolun. (Efnin eru seld sem skolefni á
gervitrefjar, t. d. efni til að skíra lit, gera
bvítt nælon bvítara o. þ. li. eða draga úr
rafmögnun, glyserin verkar á sama liátt).
Gervitrefjarnar eru termoplastiskar, sem
kallað er, en J)að þýðir, að J>ær linast og
mýkjast við hita, svo að J)að verður að nota
heitt strokjárn með varfærni á þær. Hægt
er að pressa í þau varanleg brot og fell-
ingar, vegna þessa eiginleika.
Sérstakir eiginleikar.
Polyamidtrefjar eru af mörgum gerð-
um, en bafa allar svipaða eiginleika. Mest
J)ekkt er nælon og perlon. Þær eru mjög
sterkar, sterkari en aðrar gervitrefjar, en
viðkvæmar fyrir sólarljósi og eru því ekki
heppilegar í gluggatjöld, sóltjöld, segl né
þ. h. Þær eru notaðar í sokka, skyrtur,
undirfatnað, kjólefni o. fl.
Polyestertrefjar bafa náð mikilli út-
breiðslu undir ýmsum nöfnum, t. d. tery-
lín og dakron. Þessi efni eru einkum not-
uð til að blanda saman við önnur efni, svo
sem ull og bómull. Þessi blendings-efni
balda mjög vel lagi sínu og brotum, og
krypplast því minna en ella. Polyester-
trefjar eru sterkar og J)ola mikið álak,
bæði þurrar og votar, J)ær J)ola J)vott,
hreinsun og pressun án þess að hlaupa,
einnig þola J)ær vel birtu og þess vegna
eru J)ær bentugar í gluggatjöld, glugga-
tjaldaborða, snúrur o.þ.h.
Polyakryltrefjar jrnla vel sólarljós og
35