Húsfreyjan - 01.01.1966, Blaðsíða 14
Okkar á milli sagt
1 síðasta hefti „Húsfreyjunnar“ jólablaS-
inu og í þessu liefti er birtur úrdráttur
úr fundargjörð landsþings Kvenfélaga-
samhandsins, sem haldið var í Reykja-
vík í ágúst s. 1. Þar er liægt að fylgjast
með störfum K. f. tvö undanfarin ár og
einnig því, sem áformað er að vinna að
á næstu tveimur árum. Vil ég sérstaklega
hcri da á sníðanámskeiðin, sem verzlunin
Pfaff í Reykjavík veitir fyrirgreiðslu, en
á þeim námskeiðnm fá allir meðlimir
K. f. nokkum afslátt á kennslugjaldi.
Einnig vil ég vekja athygli félagsfor-
manna á þeim styrk sem veittur er til
héraðssambandanna vegna fræðslustarf-
semi heima fyrir, og nauðsyn þess að
senda nákvæmar skýrslur til stjórnar
viðkomandi Iréraðssambands um fyrir-
komulag og kostnað við námskeið og
aðra fræðslu, sem félögin halda á sinn
kostnað. Þá er og nauðsynlegt að félög-
in geti þessarar fræðslu í ársskýrslum
sínum.
Bókin „Frysting matvæla“, sem frú
Sigríður Kristjánsdóttir Iiúsmæðrakenn-
ari tók saman og bjó til prentunar, kom
út á vegum K. í. s. 1. haust. Þar sem hún
er aðeins seld á kostnaðarverði var hún
ekki sett í bókabúðir til sölu, lieldur
send öllum formönnum héraðssam-
banda og nokkrum félagsformönnum til
sölu og dreifingar. — EintahiS kostar
aSeins kr. 25.00 — tuttugu og fimm
krónur —.
Bókinni hefir verið mjög vel tekið
t. d. notar Húsmæðrakennaraskóli ís-
lands liana sem kennslubók, og nám-
stjóri húsmæðraskólanna hefir einnig
keypt eintök fyrir alla nemendur þeirra.
Margar konur hafa þegar selt öll ein-
tökin sem þær fengu send og beðið um
fleiri. En eins og fyrr er sagt er bókin
aðeins til sölu hjá kvenfélagasambönd-
um, sem sjá um dreifingu og sölu á
henni út um landið og á skrifstofu K. 1.
á Laufásvegi 2 í Reykjavík. (Opið frá
3—5 alla virka daga nema laugardaga).
Síðara hluta septembermánaðar og
októbermánuð starfaði frk. Fríða Vala
Ásbjömsdóttir húsmæðrakennari sem
heimilisráðunautur á vegum K. 1. Ferð-
aðist liún á milli héraðssambandanna
og Iiafði með sér ágæta kvikmynd um
frystingu matvæla, en mynd þessi er
fullkomin sýnikennsla á því sviði. Á
nokkrum stöðum sýndi hún einnig kvik-
mynd nm kindakjöt, hvernig hagkvæm-
ast er að taka sundur heilan skrokk og
síðan að matbúa einstaka hluta lians.
Því miður varð þessi kennsla að liætta
10
HÚSFREYJAN