Húsfreyjan - 01.01.1966, Qupperneq 33
MANNELDISÞÁTTUR
Framh. af bls. 20.
Hænsnin hreinsuð, brytjuð niður eða liöfð
lieil. Sett í sjóðantli, saltað vatn. Froðan
veidd vel ofan af, þegar suðan kemur upp.
Kryddið látið út í og lireinsaða grænmetið
(grænmetið tekið upp úr, þegar það er
meyrt), látið vera við suðu, ekki bullsjóða
í 2—3 klst. eða bar til kjötið er meyrt. I
sósuna er soðið fleytt. Hluti af fitunni sett
í pott, liveitinu hrært saman við, þynnt út
með soðinu, soðið í 3—5 mín. Kryddað
eftir vihl, sé karrý notað er það látið xit í
iim leið og hveitið. Eggjarauða, lirærð úl
með dálitlum rjóma, bætir sósuna mikið
bæði að bragði og útliti. Eftir það má
sósan ekki sjóða.
Berið liænsnin fram með hrísgrjónum og
grænmeti.
Hænsnajafningur
1(4 msk smjörlíki
1 msk saxaður
laukur
3 msk hveiti
3 dl hænsnasoð
1 dl rjómi
1—2 egg
5 dl saxað hænsna-
kjöt, soðið
Salt
Söxuð steinselja
Papríka
(1—2 msk slierry)
Laukur og smjörlíki soðið saman í 1—2
mínútur, hveiti hrært saman við, þynnt iit
með soðinu. Egg og rjómi þeytt saman,
sósunni hellt varlega saman við, hitað að
suðu, þeytt vel í á rneðan. Hænsnakjötinu
hrært saman við. Kryddað, má ekki sjóða.
Einnig er gott að harðsjóða eggin, skera
smátt og láta þau þannig í jafninginn.
Jafningurinn borinn fram í hrísgrjóna-
eða spaghettirönd eða í tartalettum, einn-
ig ljúffengur á smjörristuðu brauði.
Hænsni á spánska
1 hæna
50 g smjör
2(4 dl vatn
2 tsk salt
Sósan:
Lifur, hjarta og
sarpur
1 tsk rifin laukur
vísu
y2 í soð
35 g smjör
35 g hvcili
12 sætar möndlur
2 bitrar möndlur
1 tsk rifiun sítrónu-
börkur
1 tsk sykur
Hænan hreinsuð og skorin í bita, brúnuð
Ijósbrún í potti, vatni og salti hellt yfir.
Soðið við vægan hita undir lilemm í 1%
klst.
Á meðan hænan sýður er innmaturinn
skorinn smátt, soðið í soðinu (af bakinu)
ásamt lauknum í (4 klst. Möndlurnar af-
hýddar og saxaðar gróft. Soðið af hænunni
jafnað með smjörbollu, soðið síað frá inn-
matnum, sósan þynnt með því eftir þörf-
um. Möndlum, sítrónuberki og innmatnum
bætt í sósuna. Dálitlum sykri lirært sam-
an við.
Hænan sett í hálfdjúpt fat, sósunni hellt
yfir. Borið fram með hrísgrjónum sem í er
laukur og sveppir.
Hænsni í hlaupi með salati
1 liæna
1 1 vatn
1 msk salt
10 hlöð matarlím
Salatió:
125 g sveppir
(4 seljurót
3 matarepli
1 msk sítrónusafi
7—8 valhnetukjarnar
(4 rauður pipar
1 dl rjómi
100 g majonnes
(4 tsk franskt sinnep
Hænan hreinsuð og soðin á venjulegan
hátt, atliugið að taka froðuna vel af. Kæld
í soðinu. Soðið síað og skírt með eggjahvítu
ef þarf. Matarlímið lagt í bleyti, % 1 af
soði tekið frá, hluti af því hitað, matarlím-
ið brætt þar í, liellt saman við afganginn
29
HUSFREYJAN