Ritmennt - 01.01.1997, Blaðsíða 21
RITMENNT
HANDRITASAFN LANDSBÓKASAFNS 150 ÁRA
legri arfleifð fyrri lcynslóða. Kom nú í ljós að býsna margt hand-
ritakyns leyndist enn hjá fólki - og sumt gamalt. Bættust við
mörg og margs kyns sagnahandrit, bæði uppslcriftir fornra sagna
og síðari tíma sagna, sem margar voru frumsamdar af lands-
mönnum eða þýddar úr dönsku eða þýsku eða öðrum tungum
grannþjóðanna. Var efni þeirra gjarnan af riddurum og göfugum
frúm eða með sviplíkum ævintýraminnum. Þá skiluðu sér svo
margar rímur að vart verður komið á tölu þar sem notað var
sams konar skáldskaparefni. Hafa þær varðveist í fleiri upp-
skriftum en nokkurt annað efni frá liðnum öldum. Ekki verður
annað séð en þessi efniviður hinna fjarlægu ævintýraheima hafi
verið ótrúlega vinsæl afþreying í fásinni og harðri lífsbaráttu hér
úti við nyrsta haf. Er enn ótalinn margs konar annar lcveðslcap-
ur, bæði þjóðkvæði og efni sem eignað er ákveðnum höfundum.
- Einstakar gersemar mætti sem fyrr telja upp, en hér skulu að-
eins nefndar Evangelískar collectur og pistlar, er Jón Guðmunds-
son lærði ritaði einlcar fagurri hendi árið 1596.
Árið 1879 voru fest kaup á handritasafni Jóns Sigurðssonar
forseta, alls 1342 skráðum handritanúmerum. Er hér sem og
annars staðar tilgreindur fjöldi þeirra númera sem handritunum
er raðað í, en í hverju númeri getur verið allt frá fáeinum blöð-
um til margra hundraða blaða af ólíkum toga, svo ómögulegt er
í reynd að segja til um fjölda handrita þessa safns fremur en ann-
arra sérsafna eða allra handrita í Landsbókasafni. í safni Jóns
voru flest eiginhandarrit hans sjálfs og einnig mörg önnur, sem
ómetanleg eru fyrir íslenska menningarsögu. Þarna er meðal
annars að finna þá bólc sem jafnan er talin einn mesti dýrgripur
sem varðveittur er í Landsbókasafni, það er að segja eiginhand-
arrit séra Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum er hann
sendi Ragnheiði Brynjólfsdóttur bislcups Sveinssonar að gjöf í
maímánuði 1661. Mun rétt að minnast hér upphafsorða skálds-
ins í formála til lesarans: „Það verður dýrast sem lengi hefur
geymt verið ..."7 Hefur Landsbókasafn nú gefið út ljósprentun
þessa handrits, ásamt stafréttum texta og lestexta með nútíma-
stafsetningu, auk nákvæmrar bókfræði um prentaðar útgáfur
sálmanna, en þeir höfðu er hér var komið verið prentaðir áttatíu
og tvisvar sinnum eða oftar en nokkurt annað íslenskt ritverk.
7 Hallgrímur Pétursson. Passíusálmar, bls. 20 og 21.
Ljósm. H.B. - Landsbókasafn.
Blað úr galdrakveri á skinni
frá um 1650. (Lbs 143 8vo|
Ljósm. H.B. - Landsbókasafn.
Evangelískar collectur og
pistlar með hendi Jóns Guð-
mundssonar lærða frá 1596.
(Lbs 1235 8vo|
17