Ritmennt - 01.01.1997, Page 74

Ritmennt - 01.01.1997, Page 74
JÓN ÓLAFUR ÍSBERG RITMENNT hinn fyrra hlutinn, og er á þann máta materian klofinn i sundr. Ratio est: Sitt stod i hvörium annal, enn compilator gaf sier eigi stunder til ad hyggia ad hvad saman heyrdi qvod ad materiam. Og er þetta eigi opus viri accurati. Ekki tekur betra við eftir 1300 en þá „continuerast sömu vitia compilatoris" og ritarinn hefur víða „rangt skrifad upp ur þeim gömlu Exemplaribus, og þat stundum svo rangt, ad þat varierar sensum. Nockur nomina propria eru hier og aflagislega rangt skrifud."40 Eftir 1394, þ.e. þegar Flateyjar- annál þrýtur, var Annála harmonían afskrift af Nýja annál til enda með lítilsháttar frá- vikum að sögn Árna.41 Nú var því haldið fram að þær upplýsing- ar sem koma fram í annálagreinunum séu ættaðar frá Nýja annál annaðhvort beint eða sem líklegra er frá afskrift. Þá kemur varla annað til greina en Annála harmonía Jóns Erlendssonar í Villingaholti eða hugsanlega áðurnefndar afskriftir. Eins og áður hefur komið fram leiddi sú vissa Hannesar Þor- steinssonar og Jóns Helgasonar að hvorki Jón Arason né aðrir annálahöfundar hefðu þekkt Nýja annál til þess að talið hefur ver- ið að séra Jón hafi haft undir höndum heim- ild frá því um 1400. Telja má fullvíst að svo hafi ekki verið jafnvel þótt annálagreinarn- ar séu eklci í öllu samhljóða Nýja annál. Frá- vikin frá Nýja annál henda á millilið og þá er Harmonía séra Jóns Erlendssonar líklcg- ust. Hér eru birtar fjórar af annálagreinun- um tólf, þ.e. þær sem fjalla um Svarta dauða.42 1402. Þennann vetur var Vijgfus ffarsson hird- stiöre af Jslande. Vrdu menn vijda bráddauder. Var sien cometa i nordre. Mikil sött vmm pll lönd, hafde hun þá geingid vm sudurlpndinn, vmm Danmork Svijaryke og Noreg, gieclc þá plágann sem mest nordur i landit med ákafligu mannfalle. 1403. Kom herra Vilchin vt og Vijgfus Jfarsson, med samre magt eda meire. Vrdu marger firer- burder og stördraumar. Kom j Hualfiörd Einar Heriölffsson, var á þui skipe sött mikel, slö þeg- ar söttinne á landzfolked, med mannfalle. And- (adist) S. Ole Svarthöfdason og vij sveinar hanz j Botnsdal, þegar hann reid frá skipcnu. 1404. Mannfall vm allt Jsland. And(adist) S. Hauskulldur Jonsson hann var rádzmadur j Skálhollte. And(adist) S. Þordur og S. Steinmöd- ur, og S. Halldör, þeir riedu Hölabisltupzdæme, og allt lærdra manna, nema vij prestar og iij diáknar, er hier med Bröder ad Þingeyrum. 1405. Mannfall hid sama vard vm allt land. lifdu prestar vj j Hölabiskupsdæme, enn eige aller 1 j Skalh(ollts) B(isl<ups)dæme. Vetur so gödur, ad vijda geingu naut siálfala vte. Tok af sött alla ept- er páska. Jón Helgason hefur rannsakað annála- greinarnar nánar og borið þær saman við aðrar heimildir.43 Hann bendir réttilega á hvernig ártölin grautast til í annálagreinun- um og sum atriði séu ekki í röklegu sam- hengi. Samkvæmt annálagreinunum gengur plágan norðan lands árið 1402 en hún kem- ur ekki til landsins fyrr en árið eftir. Jón Helgason telur að hún hafi átt að fylgja þeirri grein, þ.e. árinu 1403, en bendir á að skv. heitbréfinu frá Grenjaðarstöðum (í.f. III, bls. 680) þá hafi plágan verið komin norður í land á jólum 1402. Tímasetningin 40 Gustav Storm, Islandske annalei indtil 1578, bls. lxii. 41 Sama rit, bls. lxiii-lxiv. 42 Tekið eftir Jóni Helgasyni: Tólf annálagreinar frá myrkum árum, bls. 405-407. 43 Jón Helgason: Tólf annálagreinar frá myrlrum árum, bls. 399—418, einkum bls. 404-409. 70
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.