Ritmennt - 01.01.1997, Page 91
RITMENNT
ANNA SIGURÐARDÓTTIR OG KVENNASÖGUSAFN ÍSLANDS
Önnu var ekki nóg að ræða við aðrar kvenréttindakonur. Hún
skrifaði einnig greinar í blöð og bréf til þingmanna þar sem hún
krafði þá svara um skoðanir þeirra á málefnum kvenna. Ónefnd-
ur þingmaður skrifaði henni langt bréf í ágústmánuði 1951 þar
sem hann gerði grein fyrir skoðunum sínum á skattamálum
hjóna. Óhætt er að segja að þær hafi um flest verið hefðbundnar
og jafnframt örlaði á fordómum í garð kvenréttindakvenna. Hon-
um þótti þó bréf Önnu að mestu hleypidómalaust og laust við þá
„áttavillu" sem einkenndi málflutning kvenréttindakvenna eins
og hann komst að orði. Þau Anna gátu verið sammála um margt
en mér er til efs að hún hafi verið tilbúin til að kyngja þeirri stað-
hæfingu hans að í hjónabandi, sem hann kallaði félag karls og
konu, væri „Maðurinn, með fáum undantelcningum, betur fall-
inn en konan, til þess að vera framkvæmdarstjóri félagsins."
Fyrrnefndur þingmaður taldi óþarft að eiginkonur hefðu sérstakt
skattframtal - „hvers virði er þeim sérframtal? Það er ekki kven-
réttindamál". Það voru einmitt skoðanir sem þessar sem Anna
og stöllur hennar í kvenréttindabaráttunni vildu andmæla. Þær
vildu að konur yrðu metnar sem sjálfstæðir einstaklingar og full-
gildir þegnar í samfélaginu en ekki viðhengi karlmanna. Meðal
þess var að telja sérstaklega fram til slcatts í stað þess að vera að-
eins nafn á framtali eiginmannsins.11
Anna Sigurðardóttir bjó yfir þeim hæfileikum að setja mál sitt
fram á skýran hátt. Hún spurði hárbeittra spurninga sem ekki
urðu sniðgengnar og það er ekki laust við að í bréfurn megi sjá
aðdáun á því hversu rökföst og skynsamleg bréf hennar og grein-
ar voru. Urn það vitna athugasemdir í fyrrnefndu bréfi og hið
sama má sjá af orðum Sigríðar J. Magnússon, formanns Kven-
réttindafélags íslands, í bréfi til Önnu árið Í952:
Þegar eg spurði próf. Ol. Jóhannesson hvort hann mundi ekki vera til
með að svara einhverjum spurningum, sagði hann: „Jú, ef þær ekki
verða eins margar og nákvæmar og hjá henni frú Onnu á Eskifirði. Til
þess þyrfti að skrifa heila bók." Mér skildist á honum að það væri nóg
efni í doktorsritgerð!12
11 Kvennasögusafn íslands. Bréf til Önnu Sigurðardóttur dagsett 20. ágúst 1951.
12 Kvennasögusafn íslands. Sigríður J. Magnússon til Önnu Sigurðardóttur 18.
april 1952.
85