Vera - 01.12.1996, Blaðsíða 21
Kristín Aðalsteinsdóttir er fráskilin fjögurra barna móðir og
hefur keyrt leigubíl í fjórtán ár. Jafnframt því að keyra leigu-
bíl hefur hún unnið síðustu fimm árin á verkstæði sem sér-
hæfir sig í að ryðverja bíla. Stína, en hún er aldrei kölluö
annað, er ein af tíu konum sem vinna við leigubílaakstur hjá
Hreyfli. Þegar hún var að byrja að keyra var fólk mjög hissa
á þvt að sjá kvenmann við stýrið, en hún segir að það sé lið-
in tíð. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að keyra
leigubíl - oft vill verða þras og leiðindi út af sígarettum og
áfengi sem farþegar geta ekki hugsað sér að vera án. Verst
hlýtur þó að vera þegar ælt er í bílinn, kvöldið ónýtt og
óskemmtilegur þrifnaður framundan.
Sem betur er það þó fremur undantekning en regla og
farþegar Stínu eru flestir hinir prúðustu. Það er vissulega
mikið annriki hjá Stínu en hún reynir að gefa sér tíma fyrir
áhugamálin og fátt kann hún eins vel að meta og góða úti-
veru, en hana fær hún meö því að þeysa á snjósleðanum
sínum á veturna. Það liggur beinast við að spyrja Stínu hvort
hún sé með einhvers konar mótor-dellu. Hún svarar því neit-
andi en segist hins vegar ekki vera í nokkrum vafa um hverj-
ir draumabílarnir séu, en þeir eru Audi ogNissan Maxima.
Ég þakka Stínu fyrir spjallið og svo er hún rokin út í umferð-
ina í leit aö farþegum.
Unnur Valdís Kristjánsdóttir