Vera


Vera - 01.12.1996, Qupperneq 30

Vera - 01.12.1996, Qupperneq 30
Ipf UjjÍi? UIIU v-a HJALTI HUGASON PRÓFESSOR OG JÓLABAKSTURINN Úr uppskriftabók Hjalta Hugasonar: Jólakaka meö ávöxtum Efni: 250 gr. smjörlíki en þó miklu frekar smjör! 2 1/2 dl sykur 1/2 tsk sait 4 egg 4 1/2 dl hveiti 11/2 tsk. lyftiduft 40 þurrkaöar apríkósur (má lika vera til helminga aprfkósur og sveskjur) 4 dl kúrenur, rúsínur, heslihnetukjarnar, súkkat Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði við Háskóla íslands, hefur séð um jóla- baksturinn heima hjá sér eins lengi og börn hans muna. Hann var svo elsku- legur að gefa lesendum VERU upp- skrift að köku sem er fastur liður í jólabakstri hans. og fleira eftir því hvaö til er í skáþnum! Aöferö: Eins og venjulega eiga öll efnin aö vera moðvolg þegar verkiö er hafiö. Byrjið á aö hræra smjör, egg, sykur og salt vel og lengi. Látið aðeins eitt egg í einu ella fer allt á flot. Blandiö ávöxtunum saman í skál. Best er að klippa apríkósurnar í hæfilega bita meö grófum skærum. Hneturnar mega vera heilar. Ég brytja þær þó alltaf niöur. Sjálfum finnst mér vont að hafa rúsínur í bakstri og hef aldrei látið mér detta í hug að nota sveskj- ur í þessa uppskrift. Þaö kann þó aö vera gott. Best að gera þaö næst! Apríkósurnar eru aftur á móti fínar. Þeir sem ekki vilja E-efni sleppa auövit- aö súkkatinu sem er rotvarið í bak og fyrir. Hveiti og lyftidufti er bætt út í ávextina og blandaö vel saman. Annars falla bitarnir allir á botninn. Ef þiö hafið áhuga á getiö þiö kryddaö meö kanel og ööru kryddi sem ykkurfinnst passa í ávaxtakökur. Hræriö þurrefnunum loks saman við hin efnin. Því næst er aö setja deigið í vel smurö form- kökumót og baka í um þaö bil 11/2 tíma viö 150 gráðu hita. Líklegt er aö þiö þurfiö aö verja kök- urnar meö áipaþþír undir lokin. Að bakstri loknum á aö losa kökurnar úr formunum en leggja þau síöan yfir kökurnar aö nýju. Þannig mega þær gjarna standa viö stofu- hita a.m.k. í sólarhring. Síðan er best að geyma þær lengi, helst í tvo mánuöi eöa meira á köldum staö. Auðvitað má ekki frysta þær ef þær eiga aö ná einhverjum þroska. Ávaxtakakan er sjálfsagt ágæt meö kaffi en þó betri meö tei eöa sherrýi. Eins og þið sjáiö eruö þiö fallin á tlma fyrir þessi jól en það gefst sjálfsagt annaö tækifæri! Heppin áskrifandi í hraustum líkama Aö loknum jólum og áramótum hugsa marg- ir sér til hreyfings eftir vellystingar hátíö- anna. Hinn skilvísi og skuldlausi áskrifandi VERU sem dreginn veröur út í byrjun árs þarf þó ekki aö fara langt því hann fær I verölaun Einkaþjálfarann frá World Class, sem Kvik- myndafélagiö Nýja bíó framleiddi, og getur því sínnt sinni líkamsþjálfun heima hjá sér þegar henni/honum hentar best. Allir skuld- lausir áskrifendur lenda semsagt sjálfkrafa í lukkupottinum, líka þeir sem fá gjafaáskrift aö VERU í jólagjöf. Hægt er að gefa hálfa eöa heila áskrift, eft- ir efnum og aöstæöum, bara hringja, svo kem- ur þaö. Síminn er 552-2188. Gleðilegjól!

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.