Vera


Vera - 01.12.1996, Qupperneq 48

Vera - 01.12.1996, Qupperneq 48
kv nnafræði /y/'/////■ ///• ÞÆTTIR ÚR KRISTNISÖGU ÍSLANDS Höfundar greina: Helga Kress bókmenntafræðingur. Agnes S. Arnórsdóttir sagnfræöingur. Ásdís Egilsdóttir bókmenntafræðingur. Elsa B. Guðjónsson textílfræðingur. Margrét Eggertsdóttir bókmenntafræöingur. Sr. Gunnar Kristjánsson. Guðrún Ása Grímsdóttir handritasagnfræðingur. Margrét Jónsdóttir féiagsfræöingur. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. ÖÐRUVÍSI * KRISTNISAGA Konur og kristsmenn Ritstjóri: Inga Huld Hákonardóttir, sagnfræ&ingur. I inngangi sínum aö ritinu Konur og kristsmenn tekur ritstjóri þaö fram aö rannsóknir sem snerta hlut kvenna í samskiptum þjóöar og kirkju séu enn af skornum skammti. Víst er þaö svo og þeim mun lofsveröara hlýtur aö teljast hversu vel hefur þó tekist aö gera efni þessu fróðleg skil í ritinu. Hér verður ekki lagt út í aö taka hverja grein fyrir sig til nánari athugunar þótt þær eigi þaö fyllilega skiliö, enda allar vandaöar og skemmti- legar aflestrar, heldur vel ég þann kostinn aö rekja aö nokkru þær hugleiðingar sem vakna meö mér viö lestur ritsins í heild, eftir því sem rými leyfir. Er þar skemmst frá aö segja aö hann staðfestir aö mínu mati þaö sem margir hafa vit- aö en fæstir hafa séö ástæöu til aö hampa: Hlutur kvenna í hinni opinberu sögu kristninnar er í fáum orðum sagt: a) Neikvæður, sbr. lýsingu Helgu Kress á konum sem birtingarmyndum heiðni í íslenskum fornbókmenntum. b) Næsta lítils metinn, sbr. tilvitnun Margrét- ar Eggertsdóttur í rithöfundatal Jóns Ólafssonar úr Grunnavík: „Enda hljótum vér nú að tjalda því sem til er, ef vér skulum fá nokkrar konurtil karl- manna vorra hér fyrir framan." c) Blátt áfram enginn, sbr. tilvitnum M.E. í kvæöiö Kvennadans eftir Magnús Ólafsson í Laufási: „... en þaö hefur aldrei gerst aö konur geröust upphafsmenn trúvillu." Mérfinnst þetta lýsandi dæmi um kenningasmíöi kirkjunnar: Ná- lægt henni hefur aldrei nein kona komiö. Hvers vegna kvenfyrirlitning? Bæöi Helga Kress og Ásdís Egilsdóttir rekja meö réttu hina neikvæöu afstööu kristninnar til kvenna fyrr á tímum til ofstækisfulls fjandskap- ar kristinna manna í garö holdsins. Mér finnst aö þar mætti þó koma skýrar fram aö þar er ekki viö Krist aö sakast, heldur áhrif hellenískrar heim- Dúkurinn er margnota, vatnsvarinn og er auðvelt að þrífa hann. Dúkarnir og servíetturnar fást í ýmsum litum og eru unnin úr hágæða pappír. <

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.