Vera - 01.10.1997, Síða 7

Vera - 01.10.1997, Síða 7
Ragga Gísta syngur og Herdís (með húfuna) leikur á bassa. Bára Grímsdóttir tónskálds, meö hattinn, spilaði á gítar smátíma með Grýlunum - hér á Melarokki. Ljósm: Emilía B. Björnsd. okkur allar fram. Linda hafði aldrei áður verið í hljómsveit en lagðist nú í að stúdera trommubít, Inga Rún hafði fram að þessu stundað klassískt gítarnám og lítið höndlað rafmagnsgítar. Eg hafði mesta reynsluna í að koma fram og þá sem söngvari, og ég var svo sem allt í lagi sem hljómborðsleikari, en ég var alveg óvön að syngja um Ieið og ég spilaði.-.Herdís var klárasti hljóðfæraleika- rinn strax í upphafi.“ En af hverju var Ragnhildur að stofna kvennahljómsveit - einhver erlend fyrir- myndf „Eg hafði verið í rnjög skemmtilegri kvennahljómsveit í tónlistarskóla, spilaði á bassa - að vísu karlmaður við trommurnar en við klæddum hann í bleikan kjól.“ Af öðrum liðsmönnum má nefna Tótu kórstjóra (Þórunni Björnsdóttur) sem spilaði á saxófón og Hrafnhildi Guðmundsdóttur óperusöng- konu sem lék bæði á gítar og píanó. „Þessi hljómsveit hét Sveindís. En aðalástæðan fyr- ir að ég stofnaði Grýlurnar var að ég var orðin leið á karlrembunni í hljómsveitunum sem ég hafði verið í. Þegar ég sagði skilið við þann tíma var tekið viðtal við mig og í því sagði ég að nú ætlaði ég að stofna kvenna- hljómsveit og gaf upp símanúmerið mitt fyr- ir þá sem áhuga hefðu - og þá varð ekki aft- ur snúið. Það var ótrúlegur hellingur af stelp- um sem hringdi, þannig að ég setti upp svona alvöru „odisjón", eða prufu, þar sem umsækjendur komu í æfingahúsnæði og spiluðu á sín hljóðfæri og ég og tveir vinir mínir spiluðum með á það sem þurfti með hverjum og einum. En frammistaða á hljóðfæri er ekki aðalatriðið, heldur karakt- erinn - það skiptir miklu máli að þeir veljist vel saman í hljómsveit - að fólk sé áhugavert og hafi húmor. En þrátt fyrir fjöldann var ég fljót að velja verðandi Grýlur. Herdís hafði verið að semja lög og spilaði vel; Linda hafði litla kunnáttu en var mjög taktföst og hafði mikið úthald í Henson-gallanum - kom örugglega beint af fótboltaæfingu á Eyrar- bakka. Ég hafði aldrei séð þær áður, en Ingu Rún hafði ég heyrt urn því að við áttum sam- eiginlega vini. Þetta var reyndar ekki bara spurning um mitt val, heldur líka hvort þær vildu vinna með mér. Það var engin erlend fyrirmynd að Grýlunum - mig langaði bara að vinna með konum. Þær hafa aðra tilfinn- *ngu en karlmenn fyrir tónlist - dýpri, næmari - einhvern veginn öðruvísi... Karl- menn hefðu aldrei búið til eins tónlist og Grýlurnar, eða texta. Þeir sjá ekki það sama í fari fólks og konur“. Grýlurnar urðu til á pönk- og nýbylgju- árunum hér. Hvernig flokkar þú ykkar músik? „Grýlurnar voru ekki pönk - þetta er svona ,,sarkastikk“ kvenna-popp-rokk. Háðið skipti miklu máli - jákvæðnin í text- unum er hæðin gagnrýni - fyrir þá sem ekki skilja... Og útlitið á hljómsveitinni var í sama stíl - blanda af kvenlegum blúndufatnaði og svörtum plastpokum, ögrandi í margar áttir. Fólk hafði skiptar skoðanir á því, burtséð frá aldri, en margir sem sjokkeruðust á okkur til að byrja með skiptu um skoðun og ég hef orðið vör við að við höldum vinsældum enn í dag meðal margs eldra fólks. Annars voru okkar aðdáendur mjög tryggir - af báðum kynjuin og á ýmsum aldri - við fundum sérstaklega fyrir því eftir myndina Með allt á hreinu. Já, það má kannski segja að tónlistin okkar hafi verið brjáluð en vönduð." Af hverju bcettu Grýlurnar - og það á hátindi? „Það voru nú ýmsar ástæður fyrir því. Linda þurfti að láta skera upp á sér hnjáliðina - íþróttameiðsl. Herdís var orðin þreytt á þessari törn, við fórurn t.d. í erfiða hljómleikaferð um alla Skandinavíu, komum þar líka fram í sjónvarpi, fórum í mörg útvarpsviðtöl og við fengum fínar móttökur. Mér skilst að lögin okkar séu enn spiluð í útvarpi þar. En við vorum mjög þreyttar eft- ir þessa ferð. Ég held við höfurn verið hættar í ágúst 1983. Þá ákvað ég að breyta til og fara til Bandaríkjanna með Kobba og kynna mér djass í leiðinni.” Og Ragga fór í djassskólann, líka í leiklistarskóla í Lundúnum þegar hún flutti þangað, og eins og alþjóð veit hefur hún verið viðloðandi Stuðmenn, síðan Grýlurnar lögðust niður, og hliðarsveit þeirra Strax. Þá spilaði hún á raftrommur og söng í tölvubandi, Bone symphony, þegar hún var í Bandaríkjunum ásamt sambýlismanni sínum Jakobi Magnússyni. Upp úr því segist hún hafa fengið tímabundið ógeð á tónlist. „Mér fannst þá ég sjálf hafa svo lítið frarn að færa. Það er nú fyrst, síðan ég var í Grýlunum, að ég „fíla“ mig í þeirri tónlist sem ég er að flytja“, segir Ragnhildur og er þá að tala um tríó sitt Ragga & the Jack Magic Orchestra sem hefur fengið mjög jákvæða umfjöllun um sína fyrstu plötu í erlendum tónlistarblöðum og góðar viðtökur á hljóm- leikum í Evrópu í suntar, nú síðast í Þýska- landi þar sem þau komu líka fram í sjónvarpi og útvarpi. Hinir tveir í tríóinu eru þeir Jak- ob Magnússon og Bretinn Mark Stephen Davies, eða Pylon King eins og hann kallar sig stundum. Sólóplata Röggu, Rombigy, sem kom út árið 1992, er dálítið Grýluleg á köflum, en líka undanfari þess sem hún er að gera í dag - eða hvað? „Ja, með henni var ég eiginlega að gera það sem mig langaði - rnjög eigingjarnt en heiðarlegt. Ég fékk Hilmar Örn Hilmarsson í stúdíó með mér og við drifum þetta af á rúmum tveimur vikurn. Þetta var hreint v±m 7

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.