Vera - 01.10.1997, Side 25

Vera - 01.10.1997, Side 25
„Eg er ýmist kölluð Didda pönkskáid eða Didda klámskáld. Ég sem er ekki einu sinni búin að ná utanum þá tilhugsun að égsé skáld." fimmtudagur svo skrítið á meðan bann var að tala, segja frá hvemig gengi hjá sér núna, þá bugsaði ég ekki um neitt anitað en að geta látið snípinn rétt blánema við varimar á honum. og hann myndi halda áfram að tala, blása milli orða og með þeim. hvemig ég hefði getað útfœrl þetta þama á kaffihúsinu án þess að vekja eftirtekt veit ég ekki, en það hefði verið alveg indœlt. hún: ég er ekki mikið fyrir þú veist. En mér finnst það samt alveg sjálfsagt að það sé með þegar sam- band er traust. enda verða blessuð bömin ekki til öðruvísi! ha ha hal! hin: elska það að bafa stjómina þegar ég er að ríða, verst hvað það getur virkað fallandi á risið hjá sum- unt. eins og að þeir meiki það ekki að kona öskri og biti og mggi sér á þeim þegar þeir em orðnir slapp- ’>'■ ég vil bara mitt. ríð þeim. konur vilja gefa af sér. Hún er falleg og sak- laus, vill öllum vel en er einhvern veginn alltaf plötuð. Svolítið ábyrgðarlaus gagn- vart lífinu. Fórnarlamb. HIN er alveg á hin- um enda línunnar. Stendur á háhæluðu skónum sínum jafnfætis og ofar þeim mönnurn sem hún mætir. Einblínir á kynlíf. Gefur skít í það að konur rnegi ekki tala opinskátt urn losta og langanir eins og karl- menn. Báðar hafa þær sarnt sömu drauma og þrár, þótt þær hagi kannski ekki orðum sínum á sama veginn. Eg held að konur séu mun magnaðri en þær gera eða vilja gera sér grein fyrir. Mér finnst það tákn- rænt að af öllum vöðvum karls og konu hefur konan þann sterkasta. Við notum hann að vísu bara til að fæða börn en hann myndi vel duga til að handleggsbrjóta mann.“ Skrifvenjur? „Eg skrifa í hvert sinn sem mig langar til. Á klósettinu, úti að labba... Það er ekki til neitt sem heitir dæmigerður dagur í lífi mínu hvað þetta varðar. Ef ég fæ hugmynd þá reyni ég að henda henni niður á blað áður en hún afmyndast í hausnum á mér. Eg skrifa fyrir sjálfa mig. Það er mín Ieið til að halda sönsum. Það er ekki eins og það sé hægt að lifa á því að skrifa bækur í þessu landi. Eg vinn fyrir niér og syni mínum, honum Ulfi, með blaðamennsku og upp- vaski.“ Hvernig er að vera Ijóðstirni í litlu Reykjavík? „Það þarf ekki að leggja mikið á sig til að verða eitthvað þekktur í þessu litla samfé- lagi. Annars finn ég lítið til frægðarinnar. Það eru held ég fleiri sem þekkja mig fyrir að hafa verið partur af mannlífinu í mið- bænum í svo mörg ár eða fyrir að vera mamma hans Úlfs. Það kernur samt fyrir að fólk kemur til mín í einlægni og segir eitt- hvað fallegt. Eg verð alltaf hálffeimin þegar það gerist. Svo finn ég fyrir því að fólk ger- ir sér væntingar um mína persónu, ímynd- ar sér til dæmis að ég sé alltaf umvafin ein- hverjum listaspírum. En svo er ekki. Ég er eiginlega bara mest ein. Fer á kaffihús eins og hver annar og skoða sæta stráka. Það er ekkert óeðlilegt að í kringum mig og mín skrif hangi einhver mýta. Það er bara von- andi að ég valdi ekki vonbrigðum með því að gera alla þessa normal hluti sem ég geri. Ég leyfi mér samt að halda að ef fólk er ánægt með það sem ég er að gera þá sé það sátt við það hver ég er.“ Eg heyrði það einhvers staðar að von vœri á geisladisk með Ijóðum eftir þig. „Já, sú hugmynd er upphaflega frá Guð- mundi Steingrímssyni djassgeggjara, en hef- ur þróast út í það að ég hef beðið vini og kunningja að gera eitt og eitt lag við eitt og eitt ljóð. Þetta verða textar bæði úr bókinni og svo eitthvað alveg nýtt sem kemur ekki til með að birtast á öðru formi en þessu.“ Fylgistu með hinum? „Ég fylgist eitthvað með því sem er að koma út, en ég er ferlega kresin á það sem ég les. Ég hef meira gaman að því að þefa uppi bækur sem mér finnst skemmtilegar og er oft treg til að lesa þessar sem annað fólk er að bera í mig. Einhverra hluta vegna örvar það mig meira að lesa enska texta og svo er það líka ódýrara. Mér finnst, ef ég á að segja eitthvað um íslenska bókaútgáfu, allt of margir vera að setja sér skorður með því að skrifa fyrir ákveðinn lesendahóp. Það er auglýsingamennska og lítilsvirðing við lesandann. Ég geri alltaf ráð fyrir því þegar ég skrifa, að fólk sé eins og ég: Vilji láta koma sér á óvart, vilji eitthvað nýtt. Og annað sem ég skil ekki eru allar þessar ævisögur sem fólk á besta aldri er að skrifa eða láta skrifa fyrir sig. Fólk er ekki hálfn- að gegnum lífið þegar það rýkur til og gef- ur út ævisögu. Maður freistast til að halda að það sé að þessu af því að enginn nenni að hlusta á það. Samt vil ég ekki meina að bókin sé á niðurleið. Þvert á móti. Lægðir eru eðlilegar í öllurn þroska. Fólk er alltaf að segja að allt sé dautt, ljóðið sé dautt, skáldsagan sé dauð. Mér finnst ekki hægt að dærna heilt listform úr leik eins og ekk- ert sé, enda hefur það sýnt sig að þetta fólk sem heldur því fram hefur ekki rétt fyrir sér. Ljóðið er ekki dautt!“ • Viltu fá sömu laun og' karlmenn? •Hvernig g'eturöu látiö launin endast? •Hvert sný ég' mér ef ég missi vinnuna? •Er sama hvort þú ert g-ift eöa í sambúö? •Hver á hvaö viö samvistastlit? •Hver er erfaréttur kvenna viö fráfall maka? •Eyðir þú um efni fram? • Fj árhagsráög'j öf, hvar fæst hún? Þessum spurning'um og Peningarnir og lífiö mörgum fleirum er svarað í nýrri handbók fyrir konur. Handbók ætluð konum um fjármál og félagsleg réttindi Bók sem þú ættir aö kynna þér! Hægt er að nálgast bókina á fræðsludeild Iðntæknistofnunar eða panta hana í síma 587 7000 Iðntæknistofnun Verö bókarinnar iðntæknistofnun íslands er 3.600 kr. an vsk. Keldnaholti »112 Reykjavík Sími 570 7100 • Bréfasími 570 7111 • Heimasíða: http://www.iti.is 25

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.