Vera - 01.10.1997, Blaðsíða 34

Vera - 01.10.1997, Blaðsíða 34
Þegar ég flutti til Kaupmannahafnar fyrir tuttugu árum var Kvennahúsið Mekka kvennabaráttunnar. Húsið tútnaði af grunnhópum, þar sem konur sátu í hring og ræddu um allt frá kúgun kvenna í þriðja heiminum til kynferðislegrar full- nægingar heyrnarskertra kvenna. A sumr- in hittust tugþúsundir kvenna á kvenna- hátíð í Fælledparken, sumar með barna- kerru á undan sér sem á stóð: „Mamma er líka lesbísk, liggaliggalá." Þá flykktust konur og gera reyndar enn í sumarbúðir á Femo þar sem þær lærðu sjálfsvörn og sungu við bálið á kvöldin. A þessum kvennasamkundum gengu konur iðulega um naktar niður að mitti, það bar vott um stolt og styrk. Nú eru þær farnar að spenna á sig brjóstahöldin aftur. e/ii/* < SÍyn/'fhi/H/ótftt/1 Póstkort frá tímum kvennabtaösins Kvinder. Textinn viö tómu töfflurnar: Þær lásu Kvinder. íslenskir kvennahópar Viö, ungu konurnar íslensku, rifum af okkur himnu sljóleika og meðvit- undarleysis. Þaö var í ótal horn aö líta. Birtingarmyndir kvennakúgunar- innar voru margar. Viö stofnuðum ís- lenska kvennahópa og tókum fundar- sköp dönsku rauðsokkanna okkur til fyrirmyndar. Einn hópur var aö vísu blandaður körlum, en á svokallaöa kvennafundi í húsi Jóns Sigurösson- ar var körlum ekki hleypt inn. Við gáfum út blað til þess að færa systrum okkar, rauösokkunum heima, fréttir af kvennabaráttunni viö Sundiö. Við héldum upp á tíu ára afmæli íslensku Rauösokkahreyfing- arinnar. Það er greinilegt þegar litiö er til baka að við tókum mikið miö af kvennabaráttunni á íslandi. Smám saman tíndust konur heim aö loknu námi. Þar helltu þær sér út í pólitík og tóku meira að segja upp sam- starf viö hægri konur. Nú sitja þær á þingi og ein er orðin borgarstjóri í Reykjavík. En hvernig lítur Kaupmannahöfn út í dag? Hvaö hefur oröið um Kvenna- húsið og Hús Danners greifynju, sem konur hertóku sællar minning- ar? Þegar ég fór að kynna mér málið gerði ég mér grein fyrir að ég hafði ekki stigið fæti mínum í þessi hús árum saman. 34 v^ra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.