Vera - 01.10.1997, Page 40
ngar
kon u r
Lcet engan segja
mér fyrir verkum
segir Heiða Björk Marinósdóttir,
önnur konan sem nemur pípulagn-
ingar á íslandi
Konur hafa haslað sér völl í fjölda starfs-
greina undanfarna áratugi, en þó hafa
margar iðn- og tceknigreinar verið áfram
karlavígi. Þannig hefur aðeins ein íslensk
kona lokið sveinsprófi í múraraiðn og var
það á fyrri hluta aldarinnar. Ein stúlka er
nú í námi í Borgarholtsskóla í rennismíði
og nokkrar í bifvélavirkjun.
Fyrir sjö árum lauk fyrsta konan sveins-
prófi í pípulagningum og er hún enn sem
komið er sú eina sem lokið hefur prófi í
faginu hérlendis. Ung stúlka úr Vest-
mannaeyjum, Heiða Björk Marinósdóttir,
lét þó skort á kvenkyns pípulagninga-
mönnum ekki fcela sig frá því að hefja
nám í greininni síðasta haust.
s . ,. .
g var að vinna í fiski með skólanum og fór að vinna í
frystihúsi strax eftir níunda bekkinn. Einn daginn sagði
ég við sjálfa mig: „Heiða, þú ert orðin 22ja ára og kom-
in með sjö ára taxta í fiski.“ Eg sá að ég yrði að gera eitt-
hvað ef ég ætlaði ekki að festast þarna alla ævi,“ segir
hún um aðdragandann að pípulagnanáminu.
Heiða Björk á ekki langt að sækja áhugann á pípulagningum, þar
sem bæði faðir hennar
og bróðir starfa við
pípulagnir í Vest-
mannaeyjum í fjöl-
skyldufyrirtæki þar
sem móðir hennar sér
um bókhaldið. Hún
segist ekki hafa haft
áhuga á hefðbundnum
kvennastörfum vegna
launanna, en áður en
hún fór í pípulagning-
ar íhugaði hún um
tíma að gerast kokkur.
Ég held að þetta sé betur borgað en
kvennastörf,“ segir hún. „Það er alla vega bet-
ur borgað að vera pípari en að vinna í fiski. Ég
vann láglaunastarf árum saman og hef alveg
fengið nóg af því.“
Nám í pípulagningum tekur fjögur ár og
Heiða Björk stefnir að því að útskrifast árið
2000. Til þess þarf hún að fara í skóla í
Reykjavík eftir áramótin, en hún hefur verið á
samningi í eitt ár. En hvernig tekur fólk því
þegar hún segist vera að læra pípulagningar?
„Það er rosalega misjafnt hvernig fólk tekur þessu. Sumir eru
hneykslaðir, sérstaklega karlmenn af gamla skólanum. Hins vegar
eru margir líka mjög jákvæðir, sérstaklega konur. Þeim finnst þetta
bara flott hjá mér.“
Heiða segist ekki láta álit fólks hafa nein áhrif á sig og segir að
neikvæð viðbrögð geri sig bara ákveðnari í að halda sínu striki. „Ég
læt engan segja mér fyrir verkum. Ætli ég sé ekki kvenremba inn
við beinið,“ segir hún og hlær. „Ég þoli alla vega ekki karlrembu.
Ef fólk segir: „Þú ert kvenmaður og getur þetta ekki,“ þá verð ég
að sýna að ég geti það.“
Nú ert þú einstceð móðir. Er ekkert erfitt að sameina þetta starf
barnauppeldi?
„Vinnutíminn getur auðvitað verið svolítið langur en ég á æðis-
lega fjölskyldu sem hjálpar mér mjög mikið. Við vinnum venjulega
frá hálfátta til fimm, en þegar mikið er að gera þá vinnum við fram
eftir kvöldi. Sumir halda líka að þetta sé of líkamlega erfitt fyrir
konu, en mér finnst það ekki. Mér finnst þetta ekki erfið vinna og
hún er andlega hvetjandi.“
Heiða Björk hvetur aðrar konur til þess að kanna möguleikana í
hefðbundnum karlastörfum og segir pípulagningar vera mun
skemmtilegri og fjölbreyttari en margir geri sér grein fyrir.
„Kosturinn við pípulagningar er að maður lærir svo mikið í sam-
bandi við húsbyggingar yfirleitt, bæði múrvinnu, trésmíði og fleira.
Ef maður kann þessa hluti nýtist það bæði í vinnunni og líka á
heimilinu. Ég keypti mér til dæmis íbúð fyrir rúmu ári og hef tekið
hana mjög mikið í gegn sjálf. Það er mikill munur fyrir konur að
geta gert hlutina sjálfar, en þurfa ekki alltaf að fá aðra til þess.“
Sv.J.
Ef fólk segir:
„Þú ert kven-
maður og getur
þetta ekki,“ þá
verð ég að
sýna að ég
geti það.
40 'ifera