Vera - 01.12.1998, Blaðsíða 10

Vera - 01.12.1998, Blaðsíða 10
spennumyndir eða dettum ærlega í það. Aðrir þróa með sér líkam- lega sjúkdóma. Öll þessi spenna og stöðuga leit að hamingju fyrir utan okkur færir okkur legnra og lengra frá trúnni, frá Guði og við hættum að bera ábyrgð á okkur sjálfum. nafni trúarinnar. Samt kenna öll trúarbrögð að „Elska skaltu náungann eins og sjálfa þig“ og að umburðarlyndi, kærleikur og eining við Guð sé einn af grunn- þáttum hverrar trúar. Samt getur fólk drepið aðra í nafni trúarinnar. Leiðin Heim Að rækta trúna er að rækta sjálfa sig Við erum jú öll á einhverri leið, hver og einn fer sína leið að sama markinu. Við verðum að virða leiðir annarra þó við getum ekki skilið þær og þó þær séu gerólíkar okkar leið. Við höfum engan rétt til að dæma aðra. „Dæmið ekki svo þér verðið ekki dæmdur“. Það er mjög sorglegt að flest stríð sem hafa verið háð á jörðinni hafa verið háð í I)('.(! vist ) I llíllhc! Upplýsingasími: 563 5809 ÞROSKANOI OG ÖRUGG ÚTIVIST FYRIR BÖRNIN OKKAR Gæsluvellir Reykjavíkurborgar eru 25 að tölu víðsvegar um borgina og eru fyrir 2-6 ára börn. Amarbakki 8 Baröavogur 36A Bleikjuhvísl 10 Brekkuhús 3 Dalaland 18 Fróöengi 2 Hlaðhamrar52 Kambsvegur 18A Ljósheimar 13 Malarás 17 Örugg útivera fyrir börnin. Frjáls leikur í skapandi umhverfi. Góöur félagsskapur meö jafnöldrum undir traustu eftirliti starfsfólks. Vetraropnun: Frá 10.00-12.00 og 13.30-16.00 Njálsgata 89 Sæviöarsund (vetrarlokurii Rauöilækur 21A Tunguvegur Rofabær13 Vesturberg 76A Safamýri 30 Vesturgata 46 Stakkahlíö 19 Yrsufell 44 Dunhagi (vetrarto»um Fannafold 56 Fífusel 38 Freyjugata 19 Frostaskjól 24,. Við þurfum öll andlega næringu eins og líkamlega, jafnvel ennfrekar en líkam- lega næringu og til eru margar leiðir til að næra andann. Þessar leiðir eiga eitt sammerkt og það er að þær fara með okkur innávið, inní kjarnann okkar. Inni í kjarnanum, eða uppsprettunni, finnum við hamingjuna. Með því að vera full- komlega vakandi í hjartanu, laus við allar yfirborðs tilfinningar, náum við sam- bandi við Guð. Neisti Guðs býr í okkur og bíður eftir að við sækjum á. Hugleiðsla og bæn Bænin og hugleiðsaln gera þennan neista að stóru báli. Þegar við setjumst niður við altarið okkar (eða förum t.d. út í náttúruna) til að tala við Guð, þá gleymun við svo oft að hlusta. Þegar við höfum létt á hjarta okkar við Guð er nauðsynlegt að sitja í þögninni og hlusta á Guð. Þessi raunverulegi lifandi máttur talar til okkar þegar hugurinn okkar er hljóður og tilfinningarnar eins og spegilslétt vatn. Við getum yfirleitt ekki heyrt í honum fyrir skvaldrinu í hug- anum okkar, en með því að sitja og hlusta í innri þögn nálgumst við einnig núið þar sem allt getur gerst. Kraftaverkin gerast þegar við erum fullkomlega vakandi og hugarskvaldrið hefur þagnað. Málið er að kraftaverkin eru alltaf að gerast, við tökum bara ekki eftir þeim vegna innri hávaða og spennu. Veröi Guös vilji Þegar við sitjum við altarið okkar er gott að fara með þessi orð úr Biblíunni „- Verði Guðs vilji“ í huganum í 5 - 10 mínútur. Þau hjálpa okkur að tengjast Guði, kenna okkur að treysta þessum lifandi mætti og hleypa honum inn í líf okkar. Við lærum að treysta fullkomlega á framvindu lífsins og á okkar æðri mátt. Við förum að sjá að allt sem gerist hefur fólginn fjársjóð i sér. Hið mesta böl verður til frábærrar blessunar þegar við höfum náð að upplifa það til fulls og lyft því upp á æðra plan með því að sjá lærdóminn, fegurðina og viskuna í því. Til þess að það takist þurfum við að hafa í bakpokanum okkar fulla vit- und um að við berum ábyrgð á því hvernig við tökum á móti lífinu, að við ber- um fulla ábyrgð á viðbrögðum okkar og gjörðum (eða aðgerðarleysi). Við þurfum líka að hafa endalausan kærleika, umburðarlyndi og traust á fram- vinduna í bakpokanum. Við getum ekki látið reka á reiðanum og ætlað öðrum að redda hlutunum, heldur verðum við að gera allt sem við getum til að vinna að lausn mála og treysta síðan Guði fyrir því sem við ekki ráðum við sjálf. „Vegir Guðs eru órannsakanlegir" er setning sem kemur oft uppí huga minn þegar mér finnst ég ekki „eiga eitthvað skilið" og einnig þegar ánægjulegir ó- væntir atburðir eiga sér stað. Viö uppskerum eins og viö sáum Ef við sendum frá okkur neikvæðni fáum við það til baka aftur. Ef óttinn stjórnar lífi okkar, þá hendir það sem við óttumst mest. Ef græðgin er við völd, töþum við öllu o.s.frv. Þannig kemur bros sem við gefum öðrum til baka aftur, eins og traust og virðing. Við verðum að byrja á því að hugsa jákvætt til okkar sjálfra og annara til að eiga ánægjuleg samskipti við annað fólk. Aðventan Nú er aðventan gengin í garð og jólahátíðin framundan. Þetta er sá tími sem gefur okkur hvað mesta gleði og frið. Ég vil hvetja þig, lesandi góður, til að gefa þér stund á hverjum degi til að setjast niður með sjálfri/sjálfum þér, fara inn f hjarta þitt, hugleiða á jólahelgina og njóta kyrrðarinnar og fegurðarinnar þar inni. Auðmýkt, heiðarleiki og einlægni opna hjarta þitt. Þar inni er ótak- mörkuð uppspretta kærleikans sem bíður eftir þér. Guð gefi þér Gleðileg Jól! 1D Asa Hlín Svavarsdóttir er * leikkona, leikstjóri og höfundur leikverksins Málþing hljóönandi radda sem leikhópurinn Bak viö eyraö sýnir. Ása gerðist haþólsk fyrir nokkrum árum og stundar trú sína á vettvangi kaþólsku kirkjunnar. Hverju trúa konur? Sælir verða andvakendur Svitakóf og andvökunætur, eins og það breyti einhverju? Um hálffjögurleytið stunið upp í spenntri angist: „Góði Guð, ég veit að ég á það sjálfsagt ekki skilið, en láttu þau taka kauptilboðinu. Ég ræð ekki við meira en 6 milljónir. Þetta yrði svo fullkom- ið þarna á Grettisgötunni, Jóhann Kristófer þyrfti ekki að skipta um skóla og í ofaná- lag gæti hann gengið, skólinn er bara rétt handan hornsins! Þetta yrði fullkomið.“ / g sofnaði kortéri síðar. Nokkrum dögum seinna fann ég til sárr- ar sektarkenndar þegar ég opinberaði í kúltiveruðu matarboði í fjölskyldunni að ég bæri jafn veraldleg bænarefni fyrir himna- föðurinn. „Nei, heyrðu, svona lágt leggst maður þó ekki! Láttu ekki nokkurn mann heyra þetta!" Þetta var sjálfsagt alveg rétt hjá bróður mínum. (En sú sjálfselska! Eins og Drottinn allsherjar sæti og nóter- aði framgang íbúðarkaupa hjá einni óbreyttri, þéttholda, reykvískri konukind). Ég hafði treyst þeim er við borið sátu þetta örlagakvöld og látið það gossa. Ég fann til sárrar blygðunar að hafa blottað mig á þennan hátt. Þessi orðaskipti velktust í huga mér í nokkra daga, svo fór ég að hug- leiða hvað það var sem hneykslaði bróður minn. Ég veit að sjálfsögðu að maður ætti frekar að biðja fyrir náunganum, en ég, syndugur sauð- ur, freistast þó nokkuð oft til að notfæra mér göfuglyndi himnaföður- ins með góðum árangri. Auk þess man ég eftir þegar ég vandi kom- ur mínar í Karmelítaklaustrið í Hafnarfirði, til pólsku systranna, að bænarefnin voru (bland, að mérfannst, æði hversdagsleg. í eitt skipti minnist ég þess að þegar systir Viktíma sagði með þessari himnesku uppljómun í augunum „að þær hefðu verið bænheyrðar og einhver venslamanneskja klaustursins væri búin að fá íbúð til leigu.“ Ja, að vísu voru þær ekki sjálfar á höttunum eftir íbúð, (enda á mun hærra plani en ég), en skilningur Drottins spannar öll plön mannlegrar til- veru. Já, þetta kom mér á sínum tíma spánskt fyrir sjónir, en svo fyllt- ist ég létti þegar nánar var að gætt. Guð er að sjálfsögðu með okkur í öllu okkar amstri, bæði því sem alvarlegra er og því sem vegur létt- ar. Hann er alltaf nálægur og umvefjandi. Hann er ekki einhver sem við i hálfvelgju, stemningarinnar vegna, grípum til. Hann er hér og nú, og það eina sem við þurfum að gera er að opna hjarta okkar fyrir Ijós- inu og treysta honum. Ég get mér þess til að lesi fyrrnefndur bróðir minn þessar línur sé honum öllum lokið þegar hér er komið sögu. Ég viðurkenni að sjálfri finnst mér ég vera farin að hljóma dálítið eins og farandpredikari með stóru Béi og Effi. En svona er þetta, ég verð bara að láta mig hafa það og treysta ykkur og honum fyrir mér og hugrenningum mínum. Hafa hugrekki til að treysta Guði fyrir sálartetrinu! Treysta honum fyrir sjálfri mér. Og nú eru að koma jól! Fyrstu jólin okkar á Grettisgötunni, ég var nefnilega bænheyrð, kauptilboðinu var tekið! Þvi horfi ég bjartsýn fram á veginn og hlakka til að standa við gluggann og horfa á eftir drengnum minum í skólann. Já, blessuð jólin. Eftirvæntingin lætur ekki á sér standa í sál einfeldningsins. Aðventan minnir mig oft á þessar dimmu leyndardómsfullu vökunætur þegar ég var að vinna á Fæðingarheimilinu og varð þess heiðurs aðnjótandi að sitja yfir konu í fæðingu. Kyrrðin milli hríðanna var þrungin eftirvæntingu og gleðifyllt lotningin að fæðingunni yfristaðinni var algjör. Hvílíkur kærleikur að gefa son sinn mannkyni. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.