Vera - 01.12.1998, Blaðsíða 29

Vera - 01.12.1998, Blaðsíða 29
plakatinu voru teknar af stelpu sem sótti líka um styrk hjá Hinu Húsinu til að geta unnið sem Ijósmyndari í sumar. Hún heitir Berglind Hlyns- dóttir. Það voru síðan tveir tölvu- strákar sem voru í vinnu hjá Hinu Húsinu sem unnu plakatið fyrir okk- ur. Hvað eruð þið svo að gera núna? Sólrún: Við erum allar á fullu hér í Tónlistarskólanum. María: Við erum einmitt að æfa fyrir kammertónleika sem verða haldnir bráðlega hér í skólanum. Svovorum við upphitunarhljómsveit á útgáfu- tónleikum hjá hljómsveitinni Lhooq um daginn, í Loftkastalanum. Hvað spiluðuð þið þar? I/3/3; Við spiluðum Haydn og líka frumsamið efni eftir okkur sjálfar, eins konar spuna. Og hvernig var því tekið? María: Ég held að við höfum ögrað áhorfendum mjög mikið. Sumirvirt- ust vera hrifnir en aðrir voru mjög hissa og vissu ekki alveg hvernig þeir ættu að taka þessu. Svo höfum við líka verið að spila með Unun, spilum m.a. með þeim á nýja disknum. Og ætlið þið að halda áfram í tónlist- arnámi? Sólrún og Vala: Já, við stefnum á að fara í framhaldsnám næsta haust. Hildur og María: Og við tvær þarnæsta haust. Hverjir eru möguleikarnir fyrir fólk með klassíska tónlistarmenntun hér á landi? Hefur tónlistarfólk yfirleitt nógu mikið að gera? I/3/3; Það er mjög mikið að gerast hér og senni- lega mun meiri möguleikar fyrir íslenskt tónlistar- fólk hér heima heldur en úti í heimi, þar sem eru miklu fleiri að leita eftir því sama og samkeppnin mun harðari. Sólrún: Það er mjög mikill vöxtur í klassískri tón- list á íslandi núna. María: Það er kannski bara of mikið framboð fyr- ir þann litla markað sem hér er. I/3/3; Svo getur líka verið að fólk sé ekki nógu duglegt við að aulýsa sig. Sólrún: Það skiptir líka máli hvernig það er gert. Þegar við auglýstum okkar tónleika lögðum við á- herslu á að plakatið höfðaði til krakka á okkar aldri. Það þarf að breyta því hvernig klassísk tón- list er kynnt. Þetta hefur verið svo fast í forminu að þegar krakkar á okkar aldri heyra talað um klassíska tónleika sjá þeir þara fyrir sér sal fullan af gömlu fólki. Þessi hópur er a.m.k. alveg ó- sýnilegur ef borið er saman við þann hóp sem stundar íþróttir og alltaf er verið að fjalla um. Sólrún: Það kemur líka mjög vel fram þegar borin er saman að- staðan í tónlistarskólanum ann- ars vegar og aðstaða fyrir íþrótta- fólk hins vegar. I/3/3; Við getum bara skoðað skólann hér. Þetta er tónlistarhá- skólinn á íslandi og það eru papp- írsveggirá milli kennslustofa, það heyrist allt á milli. Sólrún: Annað gott dæmi er að tónlistarsaga 20. aldar hefur ekki veirið kennd hér í skólanum í 2-3 ár af því það voru ekki til pening- ar. Þetta er mjög slæmt því að tónlistarsaga er mikilvægur hluti af tónlistarnámi. Og það eru bara tveir kennarar sem kenna kamm- ermúsík við skólann þar sem nemendur eru um 250. I/3/3; Hún er reyndar kennd núna. Hildur.Mið auglýstum líkaá útvarpsstöðvunum. I/3/3; Þetta virtist hafa áhrif því það var fullt af krökkum á tónleikunum sem fara yfirleitt ekki á klassíska tónleika. Þau virtust bara skemmta sér vel. María: Þessi formfesta í kringum klassíska tón- list er mjög fráhrindandi fyrir okkar kynslóð og fólk virðist yfirleitt ekki vita mikið um það hvað við erum að gera hér í þessum skóla. Ungt fólk í klassísku tónlistarnámi virðist einhvern veginn vera ósýnilegur hópur þótt tölur sýni að það er mjög hátt hlutfall íslenskra barna í tónlistarnámi. María: Þessi skóli var einn salur sem var hólfaður niður í 10 kennslustofur sem eiga að rúma allt það athafnalíf sem hér er. Hildur: Og það er engin æfinga- aðstaða fyrir nemendur. I/3/3; En nú er reyndar búið að stofna Listaháskóla og meira segja búið að ráða rektor fyrir hann. En það á reyndar enn eftir að finna húsnæði fyrir hann. SEE Andlitslyftíng með ©S'Ö NOVAFON 1 ~ V Z' \ -ynr J fTj Viðbrögð taugaenda húðar, setja í gang blóðstreymi í háræðum. Næringar og súrefnisaukning I ásamt úthreinsun á úrgangsefnum, gerir húðina sléttari, fallegri og mýkri á skömmum tíma. Novafónninn vinnur einnig á gigt og vöðvabólgu - ótrúleg og óskaðleg ÞUMALINA Snyrti- og beiIsuvörudeiId. Pósthússtræti 13 v/ Skölabrú sfmi 551 2136 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.