Ritmennt - 01.01.2002, Page 188
GAGNFRÆÐINGURINN
RITMENNT
Ljósm. Bjarnþór G. Kolbeins.
Sr. Gísli H. Kolbeins og Hall-
dór Laxness framan við veit-
ingastofu Rosenbergs við
Austurvöll þar sem Halldór
Kolbeins tók nafna sinn í
tíma til undirbúnings gagn-
fræðaprófinu.
Á samtalsfundi þeirra þriggja var lýst alræðislcennaravaldi
Halldórs Kolbeins og fyrsti tilsagnartími tekinn í stofunni á Bók-
hlöðustíg 2. Einnig var sett upp nokkurs konar stundaskrá til að
fara eftir næstu vikur. En Halldór skáld kom eklci í næsta tíma og
ekki heldur í þarnæsta tíma. Er næsti tími þar á eftir skyldi vera
fetaði skáldið sig eftir Tjarnarbakkanum í skáldahugleiðingum.
Sem hann skrefar norður Tjarnargötuna mætir hann allt í einu
Halldóri Kolbeins heimspekingi með meiru. Hann heilsar upp á
skáldið með þeim orðum að nú eigi að vera tími. „Ég er ekki með
neinar bækur," sagði ungi Halldór. „Gerir ekkert, bara betra",
ansaði Halldór heimspekingur. „Ég er með bækur, og hérna í
næsta húsi hefir Árni vinur minn Sigurðsson herbergi sem hann
lánar okkur áreiðanlega til þess að við nýtum betur tíma oltkar"
hélt hann áfram. Ekki varð undan vikist. Tíminn fór fram. En
ekki var björninn unninn. Næsti tími hjúpaðist gleymsku í huga
skáldsins sem þá var gripið á Austurvelli og tekið í tíma við
innsta borð í innsta horni hjá Rosenberg við Austurvöll.
Gleymskan fór því að renna af skáldinu, og tímarnir á Bókhlöðu-
stíg 2 urðu hluti af námi þess allt þar til gagnfræðaprófið frá M.R.
utanskóla vorið 1918 var í höfn. Að því loknu gekk prófsveinn-
inn á vit meistara síns, með prófskírteini eftir Örsted-kerfi upp á
vasann, og átti með honum síðdegisstund á Bókhlöðustíg 2:
Létt er klappað á hurðu heimspekings. „Kom inn", ansar
hann. Inn gengur Halldór Guðjónsson gagnfræðingur og heilsar.
„Sæll og blessaður nafni." „Sæll nafni minn, það er ekki tími
núna." „Nei, það veit ég vel. En nú er ég gagnfræðingur með ein-
kunnina 1 í skriflegri stærðfræði og 6 í bæði skriflegri og munn-
legri íslensku."
„Hvað með dönskuna?" „Þar voru 4." „Þetta dugar til að byrja
með. Skáld þarf lítið að reikna á meðan það skrifar þótt nauðsyn
sé að vera vel að sér í móðurmálinu til þess að klæða hugsanir
sínar viðeigandi orðum. Raunar er rétt að vera rökvís í stílnum
eins og í prósentureikningi." „Samtals fékk ég 51 stig í öllu próf-
inu sem nægir til að byrja nám í 4. bekk í haust." „Þú segir tíð-
indin. Gott er að heyra. Til hamingju nafni. Ekki var til einskis
barist. Þú gætir orðið stúdent ungur ef þú stundar skólann. Þú ert
gáfaður nafni og verður mikið skáld ef smekkleysum fækkar í
skáldskap þínum." „Hm, já. Ég fæ mér reiðsprett á Hæringi.
Vertu blessaður."
184