Vera - 01.04.1999, Side 10

Vera - 01.04.1999, Side 10
Geðheilsa kvenna möguleikar, lægri laun og aðrar samfélagslegar aðstæður, þ.e. verri staða kvenna i samfélaginu, jafnvel bein áhrif á geðheilsu kvenna? „Það virðist í fljótu bragði líkleg skýring og sú sem við konur viljum helst trúa. Hins vegar er flókið mál að sýna fram á þetta með óyggjandi hætti. Sumir hafa bent á að það er mjög erfitt að vera nægilega hlutlaus í rann- sóknum sem þessum. Sé rannsakandinn kona er það henni, og öðrum konum, ef til vill í hag að sýna fram á að kúgun kvenna, lakari þjóðfélags- staða, verri laun og minni virðing sé tengd aukinni tíðni þunglyndis hjá kon- um. Sé hins vegar rannsakandinn karlmaður þá mætti hugsa sér að honum þætti það hagstætt að sýna fram á að konur séu veikgeðja, taugaveiklaðar og óútreiknanlegar vegna hormónabreytinga. Með þannig rök að vopni er auðveldara að halda konum áfram í lægri stöðum, bjóða þeim lægri laun eða halda þeim innan veggja heimilisins." Þú nefnir líka hormónabúskap kvenna. Hefur pillan jafnvel áhrif á þunglyndi? „Hér vantar góðar rannsóknir. Fyrstu tegundir pillunnar gátu klárlega stuðlað að þunglyndi en það er umdeilt hvort nýrri tegundir hafi þessi áhrif. Stundum kvarta konur um að þær verði þunglyndar á pillunni og þá er oft reynt að skipta um tegund eða jafnvel að hætta töku hennar. Við þyrftum að vita miklu meira um þetta með vissu og einnig hvaða áhrif það hefur að nota samtímis geðlyf og pilluna eða önnur lyf sem innihalda kvenhormóna. Hvað varðar kvenhormóna sem gefnir eru á breytingaskeiðinu, þá gefa ■ A Meltingarfæralyf ■ B Blóðlyf ■ C Hjarta-og æðalyf ■ DHúðlyf G Þvagfæralyf ■ H Hormónalyf ■ J Sýkingalyf L Æxlishemjandi lyf ■ M Vöðva-og beinal> ■ N Tauga- og geðlyf ■ P Sníklalyf R Öndunarfæralyf S Augn-og eyrnalyf ■ V Ýmis lyf læknar þessi hormónalyf gjarnan við vægum þunglyndisein- kennum hjá miðaldra konum þótt það sé ósannað mál hver gagnsemin er. Hér áður fyrr var talið að breytingaskeiðið, og þá væntanlega lækkandi blóðþéttni kvenhormóna, gæti stuðlað að þunglyndi hjá konum. En nú er orðið Ijóst að svo er ekki.” Eru einkenni þunglyndis mismunandi eftir kyni? „Flest einkenni eru þau sömu: depurð, áhugaleysi, þreyta, of lítil eða of mikil matarlyst, svefntruflanir eða ofsvefn, eirðar- leysi og spenna eða hægar hreyfingar og tal, skert einbeit- ing, vanmetakennd eða sektarkennd, vonleysi, uppgjöf og dauða- eða sjálfsvígshugsanir. Sum einkenni eru heldur al- gengari hjá konum, til dæmis aukin matarlyst og þyngdar- aukning, ofsvefn, kvíði og pirringur. Einnig er heldur algeng- ara að konur kvarti um ýmis konar líkamleg einkenni samfara þunglyndi, eins og höfuðverki, bakverki og verki í útlimum.” Nú er sjálfsvigstíðni karla hærri en kvenna. Er þunglyndi þeirra kannski duldara en hjá konum? „Þetta er góð spurning. Það má hins vegar benda á að kon- ur gera oftar sjálfsvígstilraunir en karlar og þær eru oftar með það sem við köllum sjálfseyðileggjandi atferli, eins og það að vera stöðugt að skera sig og meiða á annan hátt. Þetta með dulda þunglyndið er hins vegar erfiðara að spá í. Eins og ég sagði áðan þá er heildartíðni geðraskana svipuð hjá konum og körlum. Þótt við konurnar séum þunglyndari þá eiga karl- arnir oftar við áfengissýki að stríða og andfélagslegt atferli er mun algengara hjá þeim. Kannski liggur eitthvað af „þung- lyndi” karla þar falið. Hér má nefna að það eru vægari teg- undir þunglyndis sem eru algengari hjá konum. Vægt þung- lyndi leiðir síður til innlagna og felur í sér minni röskun á lík- amsstarfsemi, eins og svefni eða matarlyst. Vægt þunglyndi getur þó valdið töluvert mikilli vanlíðan og röskun á lífi fólks og verið afar hamlandi fyrir þann sem verður fyrir því.” 10

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.