Vera - 01.04.1999, Síða 11
Alls engin töfralyf
Nú hefur mikið verið rætt undanfarið um hin nýju geðdeyfðarlyf,
t.d. prozac. Komið hefur i Ijós að notkun geðdeyfðarlyfja hefur
aukist gífurlega undanfarin ár. Hvaða reynsla er komin á þessi
nýju geðdeyfðarlyf?
„Á þessi lyf er komin áratugsreynsla sem er almennt nokkuð hag-
stæð og konur virðast reyndar svara þessum lyfjum betur en karlar.
Þetta eru þó alls engin töfralyf. Þau eru álíka gagnleg við þunglyndi
og eldri lyfin og ekki allra meina bót, eins og stundum er haldið fram
í blaðagreinum og sjónvarpi. Þau hafa sína kosti og galla og eru alls
ekki laus við aukaverkanir. Aukaverkanir nýju lyfjanna eru þó öðruvísi
en af gömlu lyfjunum. Svo að dæmi sé tekið eru þau síður líkleg til
þess að valda sleni og þyngdaraukningu og eru hættulítil í of-
skömmtum. Áfengisneysla gat verið stórhættuleg með gömlu þung-
lyndislyfjunum en minni hætta er á milliverkunum við áfengi af þeim
nýju. Nýju lyfin bæta hins vegar ekki svefninn jafn vel og þau gömlu
og eru ekki jafn kvíðastillandi í upphafi meðferðar. Algengar auka-
verkanir eru meltingartruflanir, ógleði, höfuðverkur, spenna og
kyndeyfð. Það er hins vegar íhugunarefni hvers vegna notkun geð-
deyfðarlyfja hefur aukist svona mikið. Hér á landi er mun meiri
neysla á geðdeyfðarlyfjum en í nágrannalöndunum en þó er ekki að
sjá að þunglyndi sé neitt algengara hjá okkur. Kannski meðhöndlum
við þunglyndið betur en nágrannar okkar. Kannski gefum við of mik-
ið af lyfjum.”
Eru heimilislæknar kannski of fljótir á sér að gefa þessi lyf? Væri
ekki betra að reyna aðrar aðferðir fyrst?
„Ég veit það ekki. Þeir gefa hins vegar út mikinn meirihluta þessara
ás
„Eðlilegt þunglyndi stafar af sárum tilfinningum við áföll,
ástvinamissi, vonbrigði eða annað mótlæti í lífinu. Það líður hjá
og lagast af sjálfu sér, oft með stuðningi ættingja og vina til dæm-
is í sorg. Eiginlegt þunglyndi eða geðlægð þróast yfirleitt út frá
þessum eðlilegu viðbrögðum við mótlæti en getur þó lika komið
án framkallandi þátta i umhverfi. Það „einkennist af mikilli van-
líðan sem sjúkiingurinn lýsir oftast sem dapurleika en getur birst
sem algert áhugaleysi á lífinu. Önnur einkenni dæmigerð fyrir
geðlægð fylgja með, svo sem breytingar á matarlyst og svefni,
eirðarleysi og spenna eða seinkun á hugsunum, tali og hreyfing-
um, mikil þreyta, léleg einþeiting og óákveðni, sektarkennd
og/eða vanmetakennd, dauðahugsanir og /eða sjálfsvígshugsan-
ir. Samkvæmt bandarísku greiningarkerfi (DSM-IV) sem læknar
styðjast oft við, þarf einstaklingur að hafa haft a.m.k. fimm af áð-
urgreindum einkennum í tvær vikur samfleytt til að greinast með
geðlægð.”
Úr grein Halldóru Ólafsdóttur geðlæknis í ritinu Heilsufar kvenna.
lyfja, allt að 80%. Ef til vill erum við læknar almennt of fljót á okkur
og gefum okkur of lítinn tíma til að huga að öðrum leiðum. Það er
svo auðvelt að taka bara um lyfseðlablokkina. Margar vægari teg-
undir þunglyndis koma í kjölfar áfalla, langvinns álags eða annarra
erfiðleika í lífinu. Sum þessi köst ganga yfir af sjálfu sér með stuðn-
ingi ættingja og vina og aðrir geta fengið mjög góða bót með viðtöl-
um við fagfólk. Því má samt ekki gleyma að lyfin eru afar gagnleg
fyrir mikinn fjölda fólks og ekki síst þegar þunglyndi er alvarlegt,
Þanhig notar bú endurvinnsluslöft
ópóiitískt
Þannlg á aö o Timbur
flokka úrgang Q Dagblöð, tímarit, skrifstofupappír
O Bylgjupappi
() Fernur
0 Málmar
0 Garöaúrgangur
O Grjót, gler og burðarhæfur jarðvegur
Q Nytjahlutir
o Hjólbarðar
(£) Teppi, dýnur
(D Grófur, óbagganlegur úrgangur
© Annar bagganlegur heimilisúrgangur
© Kælitæki
© Vörubretti
© Skilagjaldsumbúðir
© Klæði
© Skór
© Spilliefni
Þú ferð með forflokkaðan úrgang á rampa aö gám sem merktur er
úrganginum sem þú ætlar að losa.
Ef þú ert með fleiri tegundir úrgangs losar þú hverja fyrir sig í gáma
merkta þeim úrgangi. Atvinnulifið greiðir fyrir allan úrgang.
Úrgangur frá almenningi er gjaldfrír með undantekningum af
• úrgangi frá byggingu og breytingu húsa
• úrgangi frá húsdýrahaldi
• lagerum yfirteknum við húsakaup.
Greiðsluskyldur úrgangur er mældur upp og þú greiðir fyrir þjónustuna
að lokinni afgreiðslu.
flokkakerfi
Vissir þú að 70% af úrgangnum sem kemur inn á endurvinnslustöðvar
SORPU fer til endurnotkunar og/eða endurvinnslu.
Upplýsingar um afgreiðslutíma endurvinnslustöðvanna er að finna
í simaskránni, dagbók Morgunblaðsins og Gulu Línunni.
Upplýsingabæklingar SORPU liggja frammi á endurvinnslustöðvum.
Hvenær er oplö?
Á veturna: 16. ág. -15. maí kl. 12:30 -19:30
Á sumrin: 16. maí -15. ág. kl. 12:30-21:00
Að auki eru stöðvarnar við Ánanaust, Sævarhöfða og í Garðabæ
opnar frá kl. 08:00 á virkum dögum.
SORPEYÐING HÖFUOBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi • Box 12100 • 132 Reykjavík
Slmi 520 2200 • Bréfasími 520 2209 • www.sorpa.is
11