Vera - 01.04.1999, Page 15
Notkun geðdeyfðarlyfja á Norðurlöndum 1993-1997 (1998)
6(J100Olb/dag 0 N06AX Oonur oeödeylöaftyl
■ N06AG MAO btokkarar
t
kenni sér um allt sem miður fer, t.d. þegar um kynlífsvandamál er að
ræða. Ungar stúlkur þurfa oft ekki nema tvö til þrjú skipti hjá sálfræð-
ingi til að standa á eigin fótum - standa með sjálfum sér. Þær þurfa
þara að fá að heyra að það sé allt í lagi með þær!”
Lyfin kenna ekki neitt
Þær ískyggilega háu tölur sem hér koma fram um neyslu Islendinga
á geðdeyfðarlyfjum leiða talið að því hvað lyfin gera í raun og veru.
„Lyfin kenna fólki ekkert, þau geta dempað eða örvað tilfinningar
en þau kenna engar leiðir til að takast á við lífið,” segir Ása. „ Nýju
lyfin gera fólk ekki eins sljótt og eldri lyfin en bent hefur verið á að
þau hafa líka alvarlegar aukaverkanir. Þau hafa verið gagnrýnd fyrir
að gera fólk hlutlaust, fólki verður sama um það sem er að gerast í
kringum það og það hljóta að teljast minni lífsgæði en ella, þó að
lífsgæðin aukist að sjálfsögðu ef lyfin draga úr örvæntingu. Talað er
um að lyfin valdi kyndeyfð og þá hef ég heyrt að eiginmennirnir kvarti
um áhugaleysi kvennanna fremur en að þær kvarti sjálfar.”
Ása segir að sálfræðingar noti hugræna nálgun á þunglyndi með
því að skoða tengslin á milli hugsana og tilfinninga. Þeir velta fyrir sér
hvaða hugsanir valda þunglyndi og hvernig fólk leysir vandamál sem
upp koma. „Talað er um verkefnismiðaðar lausnir og tilfinningamið-
aðar varðandi það hvernig fólk bregst við verkefnum. Sumir sérfræð-
Mataræði og þunglyndi.
Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir, rekur læknastofu í Kjörgarði, við
Laugaveg í Reykjavík. Margir halda sjálfsagt að grasalæknar fáist
eingöngu við lækningu líkamlegra kvilla en svo er ekki. Þeir líta á
líkama og sál sem eina heild, ólíkt því sem hefur tíðkast innan
hefðbundinnar læknisfræði á Vesturlöndum. Grasalæknar álíta
einnig að sumar þeirra fæðutegunda sem flestum finnst sjálfsagt
að við neytum daglega séu afar óhollar fyrir líkama og sál.
Kolbrún segir fólk m.a. leita til sín vegna þunglyndis og segist
hún hafa ýmis ráð við því. Hún nefnir fyrst kaffið. Það segir hún að
sé afar slæmt fyrir þunglynda, því það veiki svo taugakerfið. Oft
valdi það svefntruflunum og ef fólk gengur um vansvefta í langan
tíma líður því afar illa og verður þunglynt í kjölfarið. Þá segir
Kolbrún að hvítur sykur sé aðalfíkniefni nútímamannsins. Sykurinn
segir hún valda þreytu og veikja ónæmiskerfið. Líkamlegur
slappleiki valdi svo oft þunglyndi. Kolbrún á í fórum sínum margar
tegundir af jurtum sem hún ráðleggur fólki með léttvæg
þunglyndiseinkenni að neyta, en sé um alvarleg einkenni að ræða
ráðleggur hún fólki að taka jurtirnar inn ásamt lyfjum frá geðlækni.
vsv
ingar telja að munur sé á milli kynjanna hvað þetta varðar, þ.e. að
konur noti tilfinningalegar lausnir en karlar verkefnamiðaðar. Konum
hættir til að ásaka sjálfar sig og telja að þær hafi gert eitthvað rangt
ef eitthvað kemur upp í lífinu, á meðan karlar horfa hlutlausar á mál-
r „Giftir karlar hafa mun lægri tíðni þunglyndis en ógiftir en T
oðru mali gegmr um konur. Viða a Vesturlondum hafa giftar kon-
ur sambærilega eða jafnvel hærri tíðni á þunglyndi en ógiftar. Þetta
er þó breytilegt eftir þjóðlöndum og í sumum löndum þar sem
staða giftra kvenna er mikils metin er tíðni þunglyndis lægri hjá gift-
um konum. Makamissi, hjónaskilnaði og sambúðarslitum fylgir oft
þunglyndi og ekki síður hjá körlum en konum.”
Hatldóru Ólafsdóttur geðlæknis í ritinu
in, telja t.d. að eitthvað í umhverfinu geti valdið vandanum fremur en
eitthvað sem þeir gerðu eða gerðu ekki. Svona hugsanir geta valdið
þunglyndi hjá konum. Karlar leita frekar í áfengi á meðan þær fá ró-
andi pillur. Sumir hafa velt fyrir sér hvort að á bak við hvort tveggja
geti legið sömu orsakir. Verkefni sálfræðinga er að hjálpa fólki að
takast á við tilfinningar sínar án þess að nota áfengi eða pillur. Lífið
er fullt af erfiðum verkefnum sem við þurfum að takast á við. Við
þurfum að spyrja okkur: Ætla ég að láta mig ganga fyrir eða ætla ég
að hugsa um hina? Konur eru ekki aldar upp til þess að láta sjálfar
sig ganga fyrir, þær taka yfirleitt tilfinningar annarra fram yfir sínar
eigin. Kannski er það þetta viðhorf sem við verðum að breyta?”
EÞ
Úr grein
Heilsufar kvenna.
grindavIk
15