Vera - 01.04.1999, Side 26

Vera - 01.04.1999, Side 26
blaðanna er miklu sjálfstæðari; hún er oftast á leiðinni að marki öðru en því að ná í mann, þó það falli að sjálfsögðu einnig inn í áætlanir hennar. Þarna var konan oftlega sýnd sem stefnufestan dæmigerð og skapgerðarein- kenni hennar voru rétt eins mikilvæg og sjálft útlitið. Síðan fer myndin að breytast; viðhorf þjóðsögunnar um konuna taka að breiðast út, blönduð gömlum fordómum og notalegum erfðavenjum sem láta fortíðina ná eins- konar steinbítstaki á framtíðinni. Þjóðsagan segir að uppfylling hins kven- lega hlutverks hverrar konu sé mikilvægasta inntakið í lífi hverrar konu og það sé helgasta skylda hennar að rækja það. Það kunni aldrei góðri lukku O^omon ITALSKIR GÖNGUSKÓR CrtetsMu Leður. Sympatex vatnsvarðir Þyngd 840 gr. parið. Sterkir, léttir, góðir í lengri göngur. Jura Rússkinn.Sympatex. Léttir, fóðraðir og einstaklega þægilegir. SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5 I I 2200 að stýra að víkja af þeirri braut. Undirrót og orsök vanda- mála kvenna sé að þær hafi reynt að líkjast karlmanninum, feta-sömu slóð og hann í stað þess að lifa í samræmi við sitt eigið kvenlega eðli. Þjóðsagan verður sumsé einskonar * uppskrift eða munstur fyrir líf kvennanna, sem þeim ber svo að laga sig að. Betty Friedan rifjar það upp er hún var að hefja störf sín og ritmennsku við vikublöðin kringum 1950 að þá hafi rit- stjórarnir, sem oftast voru karlmenn, litið á það sem bein- harða staðreynd að konur hefðu ekki áhuga á neinu sem héti stjórnmál, alþjóðamál, listir, vísindi, heimspeki, fræði- störf neinskonar eða yfirleitt á veröldinni utan heimilisins og við þetta yrðu þeir að miða skrif sín sem framreiddu efnið fyrir þær á síðum kvennablaðanna. Ætti á annað borð að fjalla um einhverja abstrakt hugmynd, sem ekki þótti þó alt- énd ráðlegt, yrði nauðsynlega að umskrifa hana niður í áþreifanleg smáatriði, ef konur ættu að geta verið með á nótunum. Vildi nú einhver vekja athygli þeirra á hættum atómaldar, myndi grein sem héti „Barnsfæðing í neðanjarð- arbyrgi” ná að vekja áhuga kvenna þar sem þær ættu svo hægt með að setja sér öll smáatriði þar að lútandi fyrir hug- skotssjónir, en þær áttu samkvæmt þessu ekki að vera fær- ar um að tileinka sér hina abstrakt hugmynd um eyðingar- mátt sprengjunnar, sem gæti útrýmt öllu mannkyni. Væru skrifaðar greinar um efnahags- eða hagstjórnar- mál, borgaraleg réttindamál eða kynþáttavandamál myndu þær koma af fjöllum, hafandi ekki heyrt minnst á annað eins, auk heldur að áhugi á slíku væri fyrir hendi. Hún telur einnig að þetta efnisval blaðanna hafi breyst til hins verra á fyrrgreindu tímabili. Áður birtu þessi sömu blöð greinar um hin margvíslegustu efni varðandi veröldina utan heimilanna, sömuleiðis sögur og ritgerðir eftir úrvals höfunda ameríska, og þetta þótti ekki strembið lesefni úr hófi fram. Nú er aft- ur á móti líkast því, segir hún, að hin nýja kvenlega ímynd eigi að vera allsendis ófær um að tileinka sér lesefni sem mótast af sannsögli, hreinskiptni, djúpt hugsuðum athug- unum og mannlegum sannindum, sem eru aðal og kenni- merki allrar vandaðrar ritmennsku og skáldskapar. Ef dæma skal eftir hinum glæsilegu en innihaldssnauðu kvennablöðum nútímans lítur helst út fyrir að öll ytri smáat- riði í lífi kvenna séu stórum áhugaverðari en hugsanir þeirra og skoðanir. Eða á allur þessi ytri glans einungis að hylja tómleikann og leiðann sem fer sífellt vaxandi meðal hús- mæðra, innihaldsleysið í tilveru þeirra? ENDAS KIPTI Hún rifjar einnig upp ræðu sem sjálfur Adlai Stevenson hélt við skólaslit í Smith College árið 1955 og varsíðan birt í víð- lesnu kvennablaði. Þar visar hann eindregið á bug þeirri kröfu skólagenginna kvenna að eiga sjálfstæðan hlut að vettvangi stjórnmálanna. „Hlutur nútímakonunnar og fram- lag til stjórnmálanna á sér stað í stöðu hennar sem eigin- kona og móðir,” sagði hinn frjálslyndi demókrati. „Það sem vantar er bara að konan meti þessa aðstöðu sjálf, t.d. hve ■ vel menntaðar konur hafa einstaka möguleika til þess að hafa heillavænleg áhrif á eiginmann og son.” Það er augljóst, heldur rithöfundur áfram, að eigin innri rök þjóðsögunnar hafa algerlega umsnúið viðhorfum manna og haft endaskipti á vandamálum kvenna. Áður fyrr var barist fyrir því að á konuna væri litið sem jafningja karl- mannsins, og jafnir möguleikar henni til handa voru tak- markið, sem stefnt var að. Þá voru hindranir á þeirri leið hin raunverulegu vandamál sem bar að leysa. Nú á dögum er aftur á móti langhelst litið á konuna innan þess ramma sem 26

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.