Vera - 01.04.1999, Síða 34

Vera - 01.04.1999, Síða 34
að skapi [ kvenna j „Menntun er mesta auðlind samfélagsins, en aukin mennt- un er lítils virði, nema hún auki visku heilsteyptra manna”. Svo ritaði breski hagfræðingurinn Schumacher fyrir fjórðungi ald- ar. Schumacher var vitki. Hann sá fyrir það sem aðrir sáu síðar. Þar munu eftir undursamligar gullnar töflur í grasi finnask, þærs í árdaga áttar höfðu. Valgerður H. Bjarnadóttir, verkefnisfreyja Menntasmiðjunnar á Akureyri Erindi flutt á ráðstefnu KRFÍ: Menntunin; mátturinn og dýrðin ? essi orð eru aftur höfð eftir konu fyr- ir meira en þúsund árum. Sú kona, ónafngreind eins og milljónir systra hennar, var völva. Hún sá fyrir það sem við erum að byrja að sjá. Hún sá endalok eins tíma og byrjun annars, og þar sá hún að við mundum þurfa að leita eftir og finna hin upprunalegu gildi, hinar gullnu töflur sem goðin höndluðu forðum. Þetta er reyndar mín túlkun á orðum völvunnar í Völuspá, og að ætla sér að túlka það helga kvæði kann að vera hroki, en ég vel að líta á orð völv- unnar sem gullnar töflur í grasi, brunn fyllt- an svörum við svo mörgum grundvallar- spurningum nútímans. Á árunum 1993 - 95 átti ég því láni að fagna að vera annar fulltrúi íslands í norrænum starfshópi eða Þankatanki um fullorðins- fræðslu. Hlutverk okkar var að skilgreina hæfnikröfur komandi tíma og setja fram hugmyndir að innihaldi og skipulagi sí- menntunar framtíðarinnar, sérstaklega með tilliti til þróunar í Evrópu. Við val í þennan starfshóp var leitast við að safna saman fólki með sem ólíkastan bakgrunn til að tryggja heildstæða niðurstöðu. Þar sátu saman kennarar og rannsakendur, félags- fræðingar, starfsmannastjóri risafyrirtækis- ins ABB, formaður TCO eins stærsta stétt- arfélags Norðurlanda (sem nú er reyndar ráðherra), forstjóri LEGO, blaðamaður, rit- höfundar, fiðlusnillingur, eðlisfræðingur, rit- arar, kvenréttindakonur, söguskoðarar og dreymendur. Og það ómögulega gerðist. í öllum meginatriðum vorum við sammála. Niðurstöðurnar, sem birtar voru í skýrslunni Gullnar töflur í grasi, voru m.a. þessar. Hæfnikröfur framtíðarinnar, sem í raun er þegar orðin nútíð, eru : • Alþjóðlegur skilningur • Tungumálaþekking • Tákngreining • Samskiptahæfni • Þátttökuvilji • Sveigjanleiki • Heildræn hugsun • Opinn hugur og löngun til að vera í sífelldri þróun og námi Það er ekki fólk með mjög sérhæft lang- skólanám sem verður eftirsóknarverðast, heldur fólk sem hefur víðtæka þekkingu og á auðvelt með að skynja heildir; fólk sem kann að eiga bein og skilvirk samskipti; fólk sem er svo sjálfsstyrkt að það þarf ekki að eyða orku sinni í valdabaráttu; fólk sem ber svo mikla virðingu fyrir sjálfu sér að það á auðvelt með að bera virðingu fyrir öðrum; fólk sem þekkir svo vel eigin menningu og hefur svo skýra sjálfsmynd að það á auðvelt með aö umgangast og skilja fólk sem hefur gjörólíkan menningarbakgrunn; fólk sem ekki eyðir tíma og orku í að gera ómeðvituð mistök vegna þess að það þekkir takmark- anir sínar ekki nógu vel; fólk sem vinnur verk sín af öryggi vegna þess að það þekkir hæfileika sína; fólk sem getur aðlagað sig að breyttum aðstæðum án þess að missa sjálfstæði sitt og sérkenni. Fólk sem hefur tilfinningu fyrir fegurð og lifandi umhverfi. 34

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.