Vera - 01.04.1999, Side 38

Vera - 01.04.1999, Side 38
Bláa lónið - ný og glæsileg baðaðstaða Bláa lónið hefur verið vinsæll baðstaður ferðamanna síðan það var opn- að almenningi árið 1986. Undanfarin ár hefur aðsókn gesta í lónið auk- ist til muna, alls heimsóttu 171.650 gestir Bláa lónið í fyrra. Núverandi baðaðstaða annar ekki þeim gífurlega fjölda gesta sem nú fer í lónið og því hefur verið ráðist í miklar umbætur á staðnum. í maí verður opnað- ur nýr og glæsilegur baðstaður með stórglæsilegri baðaðstöðu. F Reykjanesskaganum eru mikil há- hitasvæði. Hitaveita Suðurnesja rek- ur varmaorkuver í Svartsengi þar sem 240 gráðu heitum jarðsjó er dælt upp af allt að 2000 metra dýpi. Jarðsjór þessi er saltvatn að tveimur þriðju hlutum en fersk- vatn að einum þriðja. Efnahvörf eiga sér stað er jarðsjórinn kemst í snertingu við bergið sem umlykur lónið og stuðlar þetta að ein- stakri efnasamsetningu baðvatnsins. Jarð- sjórinn er notaður til upphitunar á ferskvatni og framleiðslu á rafmagni. Síðan er honum hleypt út úr orkuverinu, út á hraunbreiðuna við orkuverið 80 gráðu heitum. Kísileðja sem fellur út hefur smám saman fyllt í sprungur í hrauninu og myndað bláa lónið. Bláa lónið er í raun einstakt náttúrufyrir- bæri. Á leiðinni frá Reykjanesbraut að lóninu blasa við hraunbreiður á báða bóga. í björtu veðri er úfið, mosavaxið hraunið hrikalegt og einkar fagurt. í augum erlendra ferðamanna er þetta umhverfi afar framandlegt og fyrir þreyttan ferðalang, sem e.t.v. kemurfrá landi þar sem vatn er sparað og sjaldnast vel heitt, er bað í Bláa lóninu einstök reynsla. Vatnið og eðjan í botni lónsins er sérlega gott fyrir viðkvæma og þurra húð og því fara exem- og psoriasis sjúklingar gjarnan í lónið sér til heilsubótar. Hefur orðrómur um lækninga- mátt lónsins fyrir löngu borist út fyrir lands- steinana og því koma margir erlendir ferða- menn gagngert í lónið til að fá bót meina sinna. Margar gerðir af snyrtivörum eru nú framleiddar úr þeim efnum sem vatnið og eðjan hefur að geyma undir vörumerkinu „Blue Lagoon”. Þær eru einkum ætlaðar fólki með húðvandamál en eru einnig góðar fyrir aðra því náttúruleg efnasamsetning þeirra viðheldur eðlilegum raka húðarinnar. Allir njóta góðs af því að baða sig í lóninu. Það er góð slökun falin í því að liggja eða svamla í vel heitu vatninu og saltbragð vatnsins er hressandi. í Bláa lóninu má sjá fólk á öllum aldri, börn fara sér til gamans, unglingar sér til afþreyingar og fullorðnir sér til upplyfting- ar, endurnæringar og heilsubótar. Þá er gaman að sjá til sumra gestanna sem eru svo hugulsamir að nudda ferðafélaga sína upp úr hvítum leirnum. Magnea Guðmundsdóttir markaðsstjóri Bláa Lónsins hf. fræddi útsendara VERU nánar um breytingarnar sem staðið hafa fyr- ir dyrum. Hún segir að mikið hafi verið lagt í nýja 2700 fm byggingu sem hýsir fullkomna búnings- og baðaðstöðu sem rúmar allt að 900 manns auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Veitingar verða framreiddar í glæsilegum sal umluktum sjö metra háum glerveggjum með útsýni yfir blátt lón og stórbrotið umhverfið í kring. Baðlónið sjálft er 5000 fm með sléttum botni og jöfnu og þægilegu hitastigi. Hluti baðlónsins er yfirbyggður. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt hjá Vinnu- stofu Arkitekta hf. hefur haft yfirumsjón með verkinu fyrir hönd Vinnustofunnar. Hún segir að hið sérstæða umhverfi Bláa lónsins hafi 38 Magrtea markaðsstjóri B\áa Lónsins

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.