Vera - 01.12.1999, Side 8
K V
NETIÐ
D
Z
Jí
D
Z
Z
>
I-
<
<
Z
z
u
0
:0
'UJ
Ll
Þann 25. september 1986 hittust rúm-
lega 100 konur á Hallveigarstöðum og
stofnuðu samskiptanet kvenna í at-
vinnulífinu. Ákveðið var að kalla sam-
tökin Netið. Yfirlýstur tilgangur Netsins
er að opna vettvang fyrir konur I at-
vinnulífinu til að hittast og skiptast á
skoðunum og gagnlegum upplýsingum,
miðla af reynslu og styðja hver aðra.
Upphafið að stofnuninni má rekja til
þess að Verkstjórnarfræðslan hélt ném-
skeið á Iðntæknistofnun I mars 1986 fyr-
ir konur. ( kjölfar þess var haldin ráð-
stefnan „Konur við stjórnvölinn", en þar
kom upp sú hugmynd að stofna sam-
skiptanet kvenna. Vilborgu Harðardóttur
var falið að kalla saman stofnfund en hún
og Úlla Magnússon boðuðu til fundarins
30. ágúst 1986, að loknum námskeiðum
fyrir konur um „Stofnun og rekstur fyrir-
tækja". Á þann fund mættu 48 konur auk
þess sem fleiri höfðu samband. Ákveðið
var að halda framhaldsstofnfund þann 25.
september 1986 og er það talinn stofn-
dagur Netsins.
Síðan þá hefur starfsemi Netsins þróast
í þá átt að það starfar annars vegar sem
heildarsamtök og hins vegar í tveimur hóp-
um, stjórnunarhóp og viðskiptahóp. Hóp-
arnir funda I sitt hvoru lagi einu sinni í mán-
uði. Stórfundir eru svo haldnir einu sinni í
mánuði þar sem báðir hóparnir mæta og
eru þá fengnir fyrirlesarar með athyglisvert
og uppbyggilegt efni.
Netið er fyrir konur sem vilja stuðla að
áhrifum kvenna í atvinnulífinu og fyrir konur
í rekstri og við stjórnunarstörf. Gestir eru vel-
komnir á alla stórfundi, utan vinnufundar. Ef
konur hafa áhuga á þvi að kynna sér starf-
semi Netsins frekar er þeim bent á að hafa
samband við Félagaþjónustu Netsins. Net-
fangið er helgass@centrum.is og síminn
898 2026.
Hulda Halldórsdóttir, upplýsingafulltrúi
hjá Impru, hefur verið félagi í Netinu frá
fyrsta starfsári þess. „Ég frétti af stofnun
þess hjá Iðntæknistofnun í byrjun árs
1987 en þá starfaði ég á Verkfræðistofu
Jóhanns Indriðasonar ehf," segir Hulda.
„Aðdragandinn að stofnun Netsins var sá
að vorið 1986 efndi Verkstjórnarfræðslan
á Iðntæknistofnun til námskeiðs í stjórnun
sem sérstaklega
var ætlað konum.
Var þetta nám-
skeið viðleitni af
hálfu Verkstjórnar-
fræðslunnar til að
reyna að breyta ímyndinni á vinnumarkaðinum. í lok námskeiðsins var efnttil ráðstefnu
um hvernig fá megi fleiri konur til stjórnunarstarfa, hvað hvetur þær eða hindrar. Þar var
talið að konur stæðu utan þess óformlega samskiptanets sem karlar nota til að fleyta sér
fram á við, t.d. karlaklúbbar, veiðitúrar o.s.frv. Einnig kom fram að konur skorti fyrir-
myndir á sviði stjórnunar og að konur í stjórnun þyrftu að komast meira í sviðsljósið. Þá
kviknaði sú hugmynd að stofna samskiptanet fyrir konur. Konur á Iðntæknistofnun höfðu
frumkvæði að stofnun Netsins haustið 1986. Nú mynda tveir hópar Netið, stjórnunarhóp-
ur og viðskiptahópur."
Persónuleg tengsl
og traust mikilvæg
Hulda er meðlimur ( stjórnunarhóp og var tengill
þess hóps árin 1990-1991. „Áherslan er á að gera
konur að sterkari stjórnendum og meiri þátttak-
endum í atvinnulífi," segir hún um markmið Nets-
ins. „Enda er félagsskapurinn stærsti hlutinn.
Maður leitar ekki til ókunnugra með vandamál sín
og þvl eru persónuleg tengsl og traust sem mynd-
ast mikilvæg. Ég held að móralskur stuðningur sé
það sterkasta f þessu og að átta sig á því að aðrir
fá líka skrýtnar hugmyndir og að hægt er að
framkvæma þær. Nýjar hugmyndir eru ræddar,
ekki kveðnar í kútinn, og litið er é allt sem mögu-
leika. Enda finnst mér það einkennandi fyrir Net-
ið að þar eru allir tiltölulega fordómalausir og
opnir fyrir nýjum hugmyndum. Og svo er þetta
líka svo skemmtilegt, það er ekki síður mikilvægt.
Þó maður fari tómur og þreyttur á fundi kemur
maður með endurnýjuð batterí heim og í raun
mætti Ifkja Netinu við hleðslubatterí," segir Hulda
og brosir við.
Að læra af öðrum og byggja sig upp
í vinveittu umhverfi
Á sameiginlegum fundum hópanna eru fengnir
fyrirlesarar með áhugavert efni, yfirleitt konur.
„Ég hef fengið heilmikið út úr þvi að heyra í þess-
um mismunandi fyrirlesurum," segir Hulda. „Svo
eru það vor- og haustferðirnar. Á haustin sjáum
við sjálfar um dagskrána og fyrirlesararnir eru úr
Netinu. Þannig fær maður þjálfun í að koma fram
og tala í vinveittu umhverfi. Einnig fær maður við-
brögð við fyrirlestrunum og uppbyggjandi gagn-
rýni. Þarna er fjallað um allt mögulegt, allt frá
pólitík til trúmála. ( vorferðunum eru svo
skemmtiatriðin meginatriðið. Ég held maður læri
mest af þvf að fá að vera maður sjálfur og finna
að það er í lagi að vera kona með hugmyndir. Þá
er einnig mikilvægt að fá aðstoð við að slipa gall-
ana og finna hjá sér styrkleika sem maður vissi
ekki að maður byggi yfir. Félagsskapurinn hefur
vissulega ýtt undir sjálfið. Það hefur byggt mig
upp að eiga þær sem bakhjarl og að finna að það
er tekið mark á því sem ég segi. Maður finnur að
maður á sinn rétt. Karlar og konur hugsa oft ólfkt
en félagsskapur eins og Netið tekur mið af því að
konur og karlar vinni saman, enda tel ég það hag-
stæðast. Ég hef reyndar oft sagt að mín heim-
speki sé fengin úr Dýrunum I Hélsaskógi: Öll dýr-
in f skóginum eiga að vera vinir," segir Hulda og
hlær. „Þá er mikilvægt að hafa í huga það sem
Margrét Indriðadóttir, konan sem rauf glerþak
fréttastjóra, sagði eitt sinn í blaðaviðtali að það sé
ekkert endilega eðlilegt að allar konur hafi sam-
kennd eða séu sammála öðrum konum. En við
getum samt komið fram og sýnt styrk sem heild
þar sem þess þarf."
Mikilvægt að fara ekki aftur á núllpunkt
Þegar Netið var stofnað var því ætlað að vera
samskiptanet. Ekki félag heldur stuðningsnet fyr-
ir konur í atvinnulífi. Netið hefur þróast í það að
vera svolítið lokað og þó okkur líði mjög vel er
alltaf hætta á stöðnun. Því hefur komið upp sú
umræða undanfarið að Netið verði opnað meira
fyrir nýjum konum. Það er hins vegar mikilvægt
að taka það fram að þú tekur ekki meira úr neti
Viðtöl: Auður Aðalsteinsdóttir
8 • v E R A