Vera


Vera - 01.12.1999, Síða 13

Vera - 01.12.1999, Síða 13
FÉLAG BRAUTARGENGISKVENNA BRAUTARGENGI Án þekkingar er maður stjórnlaust farartæki Ólöf de Bont tók þátt í fyrsta Brautargengisnámskeiðinu, sem hófst árið 1996, og útskrif- aðist hún því árið 1998. „Ég hafði áður hlotið styrk hjá atvinnu- og þróunarstofnun sem þá sá um námskeiðin. Peir sendu mér upplýsingar um námskeiðið og ég ákvað að slá til," segir Ólöf en hún tók við rekstri fyrirtækisins Fjölprents árið 1994. „Ég hafði enga hug- mynd um viðskiptarekstur þegar ég tók við fyrirtækinu heldur rak ég það fyrst og fremst á innsæi og þori. Mig vantaði alla grunnkunnáttu í sambandi við rekstrarfræði, hagfræði, lög sem snerta fyrirtækjarekstur, möguleika, starfsmannahald og í raun líka atvinnusál- fræði. Þetta voru hins vegar hlutir sem voru uppi á borði hjá mér, t.d. hvernig tekst mað- ur á við vaxandi starfsmannafjölda eða breytingar af því að samstarfsaðilar verða aðilar að fyrirtækinu. Það var eiginlega ástæðan fyrir því að ég tók þátt í námskeiðinu. Brautargengi, frá hugmynd til veruleika, er eins árs námskeið fyrir reykvískar konur sem hafa áhuga á að hrinda eigin viðskiptahugmynd í framkvæmd. Reykjavíkurborg og félagsmála- ráðuneytið hafa styrkt átakið en verkefnisstjórn er í höndum Impru, þjónustumiðstöðvar frum- kvöðla og fyrirtækja á Iðntæknistofnun. Samkvæmt skýrslu iðnaðarráðuneytisins um atvinnurekstur kvenna eiga íslenskar konur og/eða stjórna aðeins um 18% fyrirtækja. At- vinnu- og ferðamélanefnd Reykjavíkurborgar sá því ástæðu til að styðja sérstaklega við konur sem vilja efla þekkingu sína á sviði rekstrar og stjórnunar og búa yfir viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Á námskeiðinu tileinka þátttakendur sér ný vinnubrögð í rekstri og stjórnun fyrirtækja, veita eigin viðskiptahug- mynd brautargengi undir leiðsögn ráðgjafa og afla sér um leið hagnýtrar þekkingar á íslensku viðskiptaumhverfi. Þá er lögð áhersla á að skapa varanlegt tengslanet milli kvennanna sem sækja námskeiðið. ( fyrstu var Brautargengi tveggja ára nám- skeið. Fyrri veturinn voru vikulegir fundir, að mestu í fyrirlestraformi, en seinni veturinn mán- aðarlegir vinnufundir. Sú breyting var gerð á framkvæmd námskeiðsins að blanda meira sam- an fyrirlestrum og vinnufundum og hafa styttra á milli funda. Fyrstu tvö námskeiðin hófust haustið 1996 á vegum Atvinnu- og ferðamálastofu Reykjavíkur- borgar og tóku 47 konur þátt I þeim. Námskeið- unum lauk með útskrift 44 kvenna vorið 1998. Haustið 1997 hófst þriðja námskeiðið með 25 þátttakendum. Eftirspurnin var svo mikil að strax eftir síðustu áramót hófst fjórða námskeið- ið með 28 þátttakendum en því lýkur um næstu áramót. Áætlað er að halda áfram að bjóða upp á Brautargengisnámskeið en að sögn Brynhildar Bergþórsdóttur rekstrarhagfræðings hjá Impru eru námskeiðin sífellt í mótun og endurskoðun og því allt eins líklegt að form þeirra taki breyt- ingum á næstunni. „Mér fannst ég þarfnast meiri þekkingar, alveg eins og núna," segir Ólöf, en hún hefur sótt um nám í viðskipta- og rekstrarhagfræði við Endur- menntunarstofnun Háskóla Islands. „Það geri ég í raun í framhaldi af Brautargengisnámskeiðinu. Ég hef þörf fyrir að vita meira. Ef þekkingin er ekki fyrir hendi er maður eins og stjórnlaust farartæki. Heimurinn er bara orðinn þannig að rekstrarform fyrirtækja er orðið mun flóknara en það var fyrir 20 til 30 árum. Manneskja í vaxandi rekstri, sem er með fólk í vínnu, þarf að þekkja viðskiptaum- hverfíð, reglur og samskiptakóða. Maður þarf að temja sér sérstakt hugarfar ef maður ætlar sér að lifa af í viðskiptaheiminum. Ómetanleg aðstoð Ég held að það hafi ýtt undir mig mjög styrkum grunni að hafa farið á þetta námskeið. Það varð töluverð breyting á mínum stjórnunaraðferðum eftir að ég byrjaði í Brautargengi, þó mér finnist enn skorta á að þær séu fullkomnar. En þetta gerði mig sterkari og ákveðnari, sérstaklega að geta rætt um stjórnun, viðbrögð, ákvarðanatökur og annað við hinar konurnar í hópnum. Fyrsti veturinn I Brautargengi var alveg frábær og gerði það að verkum að ég þorði að taka ákvarðanir og framkvæma hluti. Ég vissi að ég gæti fengið kennslu og ráðleggingar. Það er ómetanlegt að geta gengið að þessari aðstoð, því margar af konunum sem voru á námskeiðinu eru ómenntaðar á viðskiptasviðinu en með frábærar viðskiptahugmyndir. Og stórum hópi þeirra hefur virkilega vegnað vel. Brautargengi er mjög góð byrjun fyrir fólk sem ætlar sér að stækka út fyrirtæki eða er að koma á fót nýrri hugmynd. Svona eins og barna- og mið- skóli en síðan kemur framhaldsnámið. Því þegar búið er að smita mann og maður vill verða gjald- gengur I viðskiptaheiminum þarf að halda áfram og kafa dýpra til að geta haldið betur um stjórn- völinn. Á námskeiðinu lærðum við líka ákveðna vinnusálfræði, að ég er ekki sú eina sem er að fást við hin og þessi vandamál. Flluti af okkur heldur enn hópinn og við veitum hver annarri mikinn styrk. Það er mikilvægt fyrir konur að nýta sér slíkt og að mínu mati eiga karlar að vissu leyti erfiðara en við. Þeir eiga við sömu vandamál að stríða en eiga í meiri erfiðleikum með að tjá sig um þau." Ólöf segir að vissulega sé að sumu leyti erfið- ara fyrir konur að standa I fyrirtækjarekstri en karla, enda sé gamla viðskiptaumhverfið mótað af körlum. „Að starfa á jafnréttisgrundvelli með körlum er mér stundum erfitt. En það er að mörgu leyti hægt að rekja til minna eigin við- horfa. Ef ég geng út frá því að karlmenn séu með fordóma bregðast þeir oft einmitt þannig við. VERA • 13

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.