Vera


Vera - 01.12.1999, Blaðsíða 22

Vera - 01.12.1999, Blaðsíða 22
Þurfum að leita nýrra leiða í kynferðisbrotamálum Um fátt hefur verið meira rætt meðal al- mennings að undanförnu en sýknudóm Hæstaréttar frá því í lok október yfir föður sem ákærður hafði verið fyrir kyn- ferðislega misnotkun á dóttur sinni. Minnist ég þess ekki að nokkur dómur Hæstaréttar hafi fengið svo mikla um- fjöllun eins og raun bar vitni. Það er því áhugavert að skoða í fyrsta lagi hvers vegna almenningur brást svo harkalega við og ekki síður er þessi dómur tilefni til vangaveltna um réttarstöðu barna sem verða fyrir kynferðislegri misnotkun af hálfu fullorðinna, einkum þeirra sem standa þeim nálægt. Verjandi sakborningsins hefur haft sig allmikið í frammi eftir uppkvaðningu dómsins og haldið áfram vörninni í fjölmiðlum. Ekkert er svo sem við þvf að segja að verjandi beiti sér opinberlega á þennan hátt en þó fannst mér í umfjöllun hans gæta nokkurs hroka gagnvart þeim sem tjáðu sig um málið. Talaði hann um múgæsing og fullyrti að ýmsir þeir sem tjáðu sig um málið töluðu af vanþekkingu og hefðu ekki lesið dóminn. Þar held ég reyndar að lögmaðurinn hafi misreiknað sig dálítið. Svo vildi til í þessu máli að athygli al- mennings var sérstaklega vakin á því að nálgast mætti dóminn á veraldarvefnum og nýttu margir sér þennan möguleika. Það varð mikil framför sl. vetur þegar Hæstiréttur opnaði heimasíðu og tók að birta dóma sína þar. Þessi tilhögun gerir al- menningi kleift að kynna sér dóma réttarins og komast þannig í nánari snertingu við réttarkerfið, vinnubrögð þess og niðurstöður. Þetta var einmitt það sem varð til þess að almenningur gat tekið þátt í umræðunni um þetta tiltekna mál og mynd- að sér skoðun á því, byggða á gögnum málsins eins og þeim er lýst í dóminum, en í dóminum eiga vitaskuld að koma fram öll þau atríði sem niðurstaðan er leidd af. Ekki dró það úr umræð- unni að niðurstaða Hæstaréttar var ekki einróma, reyndar ekki héraðsdóms heldur. Um málið höfðu 11 dómarar fjallað alls, tvisvar hafði málið komið fyrir héraðsdóm og höfðu 5 af 6 dómurum viljað sakfella manninn en í Hæstarétti vildu 3 sýkna og 2 sakfella. Þessi staðreynd leiddi huga margra að þvi hversu niðurstöður slíkra mála eru í raun byggðar á mati dómara og almenningur spyr sig því hvernig unnt sé að tryggja „rétta niðurstöðu" þegar hin eina sanna niðurstaða virðist alls ekki vera til í reynd. En dómurinn og umræðan í kjölfar hans hefur einnig opnað augu margra fyrir því hversu lítillar réttarverndar fórnarlömb kynferðislegrar mis- notkunar í æsku njóta í okkar velferðarsamfélagi. Fulltrúi Stígamóta vakti m.a. athygli é svari félags- málaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttur á Alþingi um meðferð og lyktir þeirra kærumála sem barnaverndarnefndum berast vegna kynferðisbrota. I Ijós kom sú nöturlega staðreynd að á 5 ára tímabili bárust barnavernd- 22 • VERA Myndirnar eru frá mótmælagöngu Stigamóta 8. mars 1994 þar sem helstu stofnanir sem fjalla um kynferðisafbrotamál voru heimsóttar. (Myndir: K.l. Mbl.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.