Vera


Vera - 01.12.1999, Qupperneq 31

Vera - 01.12.1999, Qupperneq 31
Alþjóða verslun með konur og börn sem eru misnotuð í formi vændis hefur verið að teygja arma sína í auknum mæli frá hinum svokölluðu þróunarlöndum og * Suðaustur-Asíu til landa Austur-Evrópu. í þessari grein verður staða kvenna á tímum stjórnarfarsbreytinganna í Aust- ur-Evrópu lauslega rakin í því augnamiði að benda á mögulegar ástæður þess að vændi hefur aukist eins mikið og raun ber vitni á áratugnum sem nú er að renna sitt skeið. Lýðræði, frjálst markaðshagkerfi og konur Samanburðarrannsóknir á stöðu kvenna á tímum lýðræðisþróunar hvarvetna í heiminum hafa leitt í Ijós að með tilkomu lýðræðislegra stjórnarhátta eru konur gerðar að pólitískum minnihlutahópi. En þær staðhæfingar virðast einnig hafa átt við um stjórnarfarsbreytingarnar I löndum Austur- Evrópu. Þjóðfélagsbyltingin sem átti sér stað eftir hrun kommúnismans í lok síðasta áratugar hefur haft mikil áhrif á stöðu og líf kvenna. Samfara breytingum á flestum sviðum samfélagsins stóðu konur andspænis margvíslegum vandamálum sem litla eða enga áheyrn hafa fengið í opinberri eða vísindalegri umræðu um þróunarferlið í átt til lýðræðis. I kjölfar stjórnarfarsbreytinganna urðu lífsskilyrði kvenna önnur. Mikilvægir þjóðfélags- legir þættir sem áhrif hafa á samskipti kynjanna tóku miklum breytingum. Kynjaskiptur vinnu- markaður og pólitískur ójöfnuður kynjanna öðl- aðist til að mynda nýja merkingu því kommúnismi og lýðræði bjóða upp á ólíka samfélagsgerð og mismunandi möguleika til pólitískra athafna. Á nýjan leik er ákvarðað á hvaða hátt hver og einn einstaklingur tilheyrir hinu pólitíska samfélagi. Við upphaf stjórnarfarsbreytinganna endaði mótun lýðræðislegra stjórnarhátta í höndum þröngs hóps karlmanna, með þeim afleiðingum að kröfur kvenna um lýðræðisleg réttindi hlutu ekki áheyrn stjórnvalda. Þá hafa þjóðfélagslegar kröfur um að konur sinni sínum kynbundu hlut- verkum, umhyggju- og láglaunastörfum, jafn- framt aukist. Þróun í átt til frjáls markaðshagkerf- is að hætti nýfrjálshyggju var talin mikilvægasta verkefnið eftir þjóðfélagsbyltinguna og sú stefna talin í fullu samræmi við markmið stjórnvalda að koma á lýðræðislegu stjórnskipulagi. I skjóli póli- tískra og efnahagslegra umbreytinga létu ráða- menn kröfur vanmáttugra kvennahreyfinga sem vind um eyru þjóta og bentu á brýnni verkefni sem krefjast skjótari afgreiðslu en málefni kvenna. Nýju stjórnkerfin eru, að sögn kvenna frá þessum löndum, karlstýrt lýðræði og þó svo að löndin búi 4 við ólíkar þjóðfélagsgerðir og sögu virðist þessi fullyrðing eiga við þau öll. (leppríkjum Sovétríkjanna ríkti engin hefð fyr- ir óháðri kvennabaráttu því ríkisstýrð jafnréttis- stefna sósíalismans sá um að tryggja félagsleg réttindi kvenna að ofan. Dagvistun barna, frjálsar fóstureyðingar, barnsburðarleyfi eða réttur til at- vinnu, sem vestrænar kvennahreyfingar börðust fyrir áratugum saman, voru sjálfsögð réttindi þar til þau voru afnumin fyrstu árin eftir stjórnarfars- breytingarnar. Kynjaskiptur vinnumarkaður, veikt þegnasamfélag og ríkiskerfi sem á glæpsamlegan hátt bannaði hvers kyns gagnrýni á stjórnarhætti sína, urðu til þess að konum gafst lítið svigrúm til að ræða sameiginlega reynslu sína og hagsmuna- mál. Þær höfðu engan pólitískan vettvang fyrir baráttumál sín. Þegar járntjaldið hrundi töldu margar konur að lýðræðislegir stjórnarhættir myndu með tímanum tryggja réttindi þeirra. Konur fyrstar til að missa vinnuna Ein birtingarmynd veikrar stöðu kvenna í Austur- Evrópu í kjölfar stjórnarfarsbreytinganna er mikil fátækt meðal fólks sem á tímum ríkissósíalismans starfaði sem almennir verkamenn. Með tilkomu lýðræðislegra stjórnarhátta, frjáls markaðshag- kerfis og aukinnar samkeppni á vinnumarkaði voru konur fyrstar til að missa störf sín, en at- vinnuþátttaka kvenna var mjög mikil á tímum út- þenslu þungaiðnaðar og stórfelldrar iðnaðarfram- leiðslu miðstýrðs hagkerfis. I lok síðasta áratugar voru um 3/4 hlutar kvenna á aldrinum 18-60 ára í fastri heilsdagsvinnu. I kjölfar stjórnarfarsbreytinganna hefur þorri kvenna í Austur-Evrópu þurft að þola mikla fá- tækt. Þær hafa með öðrum orðum vaknað upp við þann slæma draum að borgararéttindi kvenna eru ekki sjálfsagður fylgifiskur lýðræðislegra stjórnarhátta. Sérfræðingar í efnahagsmálum og stjórnmálafræðingar hafa líkt fyrstu árunum eftir stjórnarfarsbreytingarnar við „táradal efnahags- legra sviptinga". Táradal sem almenningur þyrfti að sætta sig við í þágu lýðræðis og frjáls markaðs- hagkerfis sem að lokum myndi tryggja velsæld allra. Efnahagslegir erfiðleikar og spilling ráðandi valdastétta víðast hvar hafa hins vegar fram til dagsins f dag verið meginástæða þess að mikill meirihluti fólks nýtur ekki ávaxta frelsisins sem lýðræðislegir stjórnarhættir bjóða annars staðar. (iðnaðarborginni Vladimir í Rússlandi deyja að meðaltali þrettán manns á dag af völdum hung- urs og fátæktar. Heimilislaus börn og gamalmenni leita svo þúsundum skiptir húsaskjóls á aðaljárn- brautarstöðvum og í holræsakerfum Búdapestar, Varsjár, Prag, Bratislava og í Moskvu og þau yngstu vinna fyrir daglegu brauði slnu með því að selja líkama sinn í formi vændis. Austan við landa- mæri Þýskalands og Austurríkis, ( löndum Mið- austur-Evrópu, hafa á örfáum árum risið einskon- ar „vændisþorp" á svæðum þar sem áður var blómleg iðnaðarframleiðsla. ( Póllandi má helst nefna Stubice og Swinoujschie við Eystrasaltið. I Tékklandi Krupka, Dúbí, úthverfi Kostany, Ustí og Austan við landamæri Þýskalands og Austurríkis, í löndum Miðaustur-Evrópu, hafa á örfáum árum risið cinskonar „vændisþorp" á svæðum þar scm áður var blómleg iðnaðarframleiðsla. Teplice. Þegar keyrt er í gengum þessa staði blas- ir við hvert vændishúsið á fætur öðru. I þorpun- um sem næst eru landamærunum má allt árið um kring sjá fáklæddar stúlkur dansa í litlum „gler- búrum". Ofan á búrunum blikka auglýsingaskilti vændishúsa og „nektardansstaða" sem oftar en ekki eru innan seilingar. Til sveita eða í útjaðri þorpanna eru starfrækt munaðarleysingjaheimili og að sögn starfsmanna þeirra eru börn vændiskvenna oft meirihluti þeirra barna sem heimilin hýsa. Mikill meirihluti þeirra sem kaupa sér ódýra þjónustu austur-evrópskra vændis- kvenna eru vel stæðir karlmenn frá Vestur-Evr- ópu, sem skreppa yfir landamærin gagngert í ofangreindum tilgangi. Eftir stjórnarfarsbreytingarnar hefur vændi aukist til muna í löndum Austur-Evrópu og kyn- lífsiðnaður þar staðið í miklum blóma. ( nýlegri skýrslu nefndar um afnám allrar mismununar gegn konum, sem kynnt var á alsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna ( september sl., var ályktað að hátt á annnað hundrað þúsund konur og börn frá löndum Austur-Evrópu hafi látið leiðast út í vændi ár hvert það sem af er þessum áratug. (inngangs- orðum skýrslunnar er saga alþjóða verslunar með konur og börn sem misnotuð eru í formi vændis Á íslandi hefur fyrrnefndum glæpahringjum tckist að villa á sér heimildir og snúa á íslensk lög í því yfirskyni að stundaður sé innflutningur á listdönsurum til landsins. á Vesturlöndum rakin. Samkvæmt málflutningi nefndarmanna á þinginu virðist verslun þessi vera að teygja arma sína í auknum mæli frá hinum svokölluðu þróunarlöndum og Suðaustur-Asíu til landa Austur-Evrópu. Alþjóða glæpahringir og vestrænir viðskiptajöfrar hafa fundið nýjan mark- að þar sem hvítt fólk gengur kaupum og sölum því næg er eftirspurnin heima fyrir. Sérfræðingar á þessu sviði telja hnattvæðingu viðskiptahátta og aukið frjálsræði í viðskiptum landa á milli annars vegar hafa aukið kynlífsverslunina og gert glæpa- mönnum auðveldara um vik og hins vegar tor- veldað eftirlit yfirvalda og Sameinuðu þjóðanna með henni. ( skýrslunni er verslun þessari líkt við nútíma þrælasölu á fólki til Vesturlanda þar sem lýðræði og siðmenning er sögð vera stoð þeirra samfélaga er þau byggja. Á íslandi hefur fyrrnefndum glæpahringjum tekist að villa á sér heimildir og snúa á fslensk lög í því yfirskyni að stundaður sé innflutningur á list- dönsurum til landsins. Á þann hátt vefja glæpa- menn sem hagnastaf neyð annarra löggjafarvald- inu og stjórnvöldum um fingur sér og eiga hægt um vik í landi þar sem háttsettir embættismenn leyfa sér að líkja vændi við hverja aðra tískubólu hins frjálsa markaðar. Frjálshyggjan er í algleym- ingi og óskráð lög markaðarins ráða ferðinni svo lengi sem framboð og eftirspurn ríkja um vöruna. ( samþykkt stjórnar Sambands ungra sjálfstæðis- VER A • 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.