Vera


Vera - 01.12.1999, Síða 39

Vera - 01.12.1999, Síða 39
}\ í yp \ i \m \ A I ! 1 \ \ i ! i í fisléttum silkikjólum, skreyttum rósaböndum, eða flosmjúkum flauelskjólum með stórum, hvít- um perlumóðurhnöppum. Við vorum í hælbandalakkskóm, hvítum hálfsokk- um og auðvitað með silkislaufu í hárinu. Hátíðin fór fram með hefðbundnum hætti. Börn- in dönsuðu prúð og fín kringum jólatréð sem skreytt var englahári og álfahári með lifandi Ijós- um og sungu jólasöngvana sína. Gleðin náði hámarki þegar „skipstjórarnir og stýrimennirnir" úthlutuðu jólagottinu. Það var í gullpokum sem skreyttir voru örsmáum myndum af liljublöðum. Pokarnir voru dregnir saman í opið með svartri silkisnúru, kögraðri I endann. Eftir innihaldinu man ég ekki, en pokann átti ég lengi. Nú birtast hratt nýjar myndir á vefnum. Ég staldra við mynd þar sem við erum að flytja úr Reykjavík suður með sjó. Suður á Strönd, eins og það var kallað. Það er hávetur og aftur nélgast jól. Þarna þekkjum við engan. Jólaball sveitarinnar var haldið í litla barnaskóla- húsinu, annað samkomuhús var ekki til í þeim hreppi. Mamma klæddi okkur í englabarnakjól- ana, hælbandalakkskóna og hálfsokkana og þar utan yfir í þykka snjósokka, sem náðu upp í nára. Svo óðum víð snjóinn upp í skóla. Þar var þröng á þingi. Mæður voru að klæða börn sín úr hlífðar- fötum, snyrta þau til og ýta þeim inn í „salinn". I öðrum endanum hafði veríð komið upp dálitlu leiksviði en á miðju gólfi stóð jólatréð með log- andi Ijósum. Kennarinn, hún Viktoría, stjórnaði hátíðinni. Hún hafði valið fjóra forsöngvara til þess að leiða sönginn. Tveir drengir og tvær stúlkur stilltu sér upp fremst á sviðinu og hófu upp rödd sina þeg- ar Viktoría gaf þeim merki. Þvílíkan englasöng höfðum við mæðgur aldrei heyrt. Flestir tóku undir, en mamma féll í stafi og hlust- aði með tárin í augunum. Þarna heyrði ég í fyrsta sinn sélminn „Sem börn af hjarta viljum vér / nú vegsemd Jesú flytja hér." Við sungum og dönsuðum og fórum (jólaleikinn okkar og svo fengum við súkkulaði og smákökur sem mæðurnar komu með. Börnin ( sveitinni tóku okkur vel, skoðuðu okkur í krók og kring, spurðu okkur spjörunum úr og sögðu að það væri af okkur búðarlykt. Við vorum feimnar, en samt var gaman. Sveitabörnin voru vel klædd og snyrtileg, en fötin þeirra voru vænni og hlýlegri en okkar föt, sem voru að kalla mátti hálfgert hýjalín. Það sem okkur þótti skrýtið var að flest barnanna voru í brúnum strigaskóm, með svörtum gúmmí- sólum sem náðu eins og brydding upp á strigann. Hælbandalakkskórnir okkar stungu í stúf við fóta- búnað sveitabarnanna og auðvitað var enginn í hálfsokkum. Það vorum við heldur ekki þegar fram í sótti. Á næstu mynd eru áramót. Þegar best lét Ijómaði himinninn af stjörnum og bragandi norðurljósum, en I fjarska glitruðu raf- Ijósin í Reykjavík eins og eðalsteinar á bandi. Mamma og pabbi fóru með hópinn sinn út á hlað og við sögðum: „Komi þeir sem koma vilja, fari þeri sem fara vilja og veri þeir sem vera vilja, mér og mínum að meinalausu." Ég rek vefinn. Þarna birtist þrettándinn. Þar sést stór og mikil brenna niðri á bökkum. Við kölluðum það álfabrennu og dönsuðum álfa- dans. Fyrir brennuna æfðum við söngva og viki- vaka. Allir voru með, bæði börn og fullorðnir, en það var bara valið fólk sem var í skrautlegum bún- ingum og lék hlutverk, kóng og drottningu, prins og prinsessu, karl og kerlingu, púka og jafnvel sjálfan pokurinn. Á eftir var drukkið súkkulaði og dansað í skóla- húsinu fram á morgun. Flestir þeir sem stóðu að uppeldi okkar ungu kyn- slóðarinnar voru 19. aldar fólk. Ég spurði mömmu: „Hvernig var í gamla daga?" „Á mínum ævidögum hefur litið breyst," sagði mamma, „þó ég sé fædd fyrir aldamót. Það væru þá helst húsin sem eru orðin betri og við skúrum ekki lengur gólfin með sandi. Annars hefur lítið breyst, eins og ég segi. Við notum enn sömu áhöld til allra starfa. Við höfum sömu siði og venj- ur. Við sveitafólkið sækjum enn vatnið í brunn og læk. Víða er þó komið rafmagn til Ijósa og það er mikil blessun. Vegir hafa líka batnað og þeim hef- ur fjölgað, svo nú er hægt að ferðast á bílum nokkurn veginn um allar trissur. Það eru líka komnar brýr yfir verstu árnar. Nú þarf enginn að sundríða jökulfljótin, eins og ég gerði þegar ég fór með hana Unni litlu í fóstur austur í Mýrdal." Þannig bré mamma upp fyrir mér myndum af sínum vef og svo fór hún að tala um stríðið 1914-1918. Hún sagðist mundu steypa sér í brunninn eða gjána með allan hópinn sinn, ef það kæmi annað stríð. Svo kom annað stríð, en gjáin og brunnur- inn voru gleymd. Þá bjuggum við á stærri jörð með stærra bú í sjálfri höfuðborginni, inn undir Elliðaám. Það hét í Réttarholti og er ekki lengur til. Myndir frá þeim tíma eru margar á mínum vef, en ég hleyp yfir þær. Enn nálgast jól og áramót, en ekki bara áramót heldur aldamót. Á mínu æviskeiði hafa breytingar orðið svo miklar að kalla má byltingu frá því sem var. Ég hef lifað tímana tvenna í nánum tengslum við frændur og vini frá 19. öld og enn nánari tengsl- um við 20. aldar fólk mitt og þjóð. Ekki er von- laust að ég féi nokkur kynni af 21. öldinni. Þá má búast við að tími stórfjölskyldunnar verði liðinn undir lok og mannleg samskipti verði með öðrum hætti en á öllum liðnum öldum.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.