Vera


Vera - 01.12.1999, Qupperneq 58

Vera - 01.12.1999, Qupperneq 58
E Q K A D Q M A B. jólabækurnaf söguna á enda. Þó sagan sé öðrum þræði frásögn af daglegu lífi fólksins í braggahverfinu er spenn- an alltaf undirliggjandi og stingur alls staðar upp kollinum. Frásagnirnar eru þar að auki gjarnan mjög nöturlegar og skilja lesandann eftir með heilan haug af ósvöruðum spurningum og vanga- veltum um lífið og tilveruna. Einmanaleiki sögumanna gegnir stóru hlut- verki. Þarna er um tvo unglinga að ræða sem virð- ast þurfa að takast á við lífið og tilveruna án tengsla við, eða tilsagnar frá, þeim fullorðnu. Báðar frásagnirnar eru mjög litaðar af persónu- leika og reynslu sögumanna en það gerir hana skrítna, og að vissu leyti óáreiðanlega, þar sem þau virðast bæði eiga við alvarleg sálræn vanda- mál að stríða. Stundum eiga þau erfitt með að greina á milli ímyndunar og veruleika, það gerir lesandanum óneitanlega stundum erfitt fyrir að sjá hvað er raunverulega að gerast en skemmir alls ekki frásögnina. Þvert á móti gefur það oft á tíðum skýrari mynd af hugsanagangi sögumanna. Frásagnir af veraldlegri og andlegri fátækt Is- lendinga á eftirstrlðsárunum eru ekki ný bóla í ís- lenskum bókmenntum og minnir efnið óneitan- lega nokkuð á Djöflaeyju Einars Kárasonar svo eitthvað sé nefnt. Þessi tími virðist þannig eiga djúpar rætur í þjóðarsálinni. Þetta efni og þessi kuldalegi frásagnarstíll, sem virðist loða við skáld- verk um þetta tímabil, er þó alltaf jafn áhrifaríkur. Elísabetu Jökulsdóttur tekst vel upp að skapa spennuþrungna og áhrifaríka stemningu og þessa bók er erfitt að leggja frá sér í miðju kafi. Sigriður Lára Sigurjónsdóttir, bókmenntafræðingur Lögmál, lfkami stéttar. Kynlífi má þó lifa með fólki úr annarri stétt svo framarlega sem bæði athöfnin og afleiðingar hennar, ef einhverjar, eru ekki hafðar í hámæli. Unnur kynnist þessari hlið mannlífsins snemma. Lærir fljótt að „það er hægt að gera illt með þvi að vera góður" - að það eru lægri stéttir, og þá helst konur, sem bera skarðan hlut frá borði ( þessum málum. Hún lætur þessa vitneskju þó ekki buga sig. Er sterk og örugg með sig, vex og þroskast í skjóli Gömlu og Sýsla. Hún er ákveðin í að bjóða valdinu byrginn, berjast móti gömlum og úreltum viðhorfum. „Mínu stríði er lokið og kominnn friður." Ást, kynlíf, vald, orð. Þræðirnir í lífi Unnar. Úr þeim vefur hún sögu sem hún getur verið ánægð með. Hún vill vera „sterk og menntuð kona" og verður það. Saga hennar er ekki saga fórnarlambs heldur sterkrar konu sem tekst á við hefðir og venjur og sigrar, á sinn hátt. Hugmyndafræðin sem hún aðhyllist hjálpar henni I baráttunni, hún trúir því að mennirnir séu að flestu leyti einsog dýrin, að siðalögmál og stéttir séu mannanna til- búningur og þarmeð er kominn grunnur að nýju hlutskipti, nýju lífi. Örlög móður hennar, eða vinnukvennanna á setrinu, þurfa ekki að verða hennar. Þegar við bætist vitneskja um eigin upp- runa og þarmeð skilningur á veigamiklum atburð- um I Iffi hennar nær hún að skilja líf sitt og ann- arra á dýpri hátt. Það sem áður virtist vera valdið f sinni Ijótustu mynd fær nýjan svip og nokkurs konar jafnvægi er náð. Hér kemur fram einn meg- inkostur bókarinnar - persónur, atburðir, hug- myndir eru hvorki algóð eða alvond - allt á sér sínar góðu og slæmu hliðar. Það er ekki fyrr en þeim skilningi er náð sem stríðinu lýkur og á kemst friður. Sigfríður Gunnlaugsdóttir, bókmenntafræðingur Stúlka með fingur eftir Þórunni Valdimarsdóttur Forlagið 1999 Á kápu bókar Þórunnar Valdimarsdóttur Stúlka með fingur er notaður undirtitillinn „Söguleg skáldsaga." Þetta er ekki gert á titilsíðu bókarinn- ar sem mér þykir benda til að þó sagan sé „sögu- leg" sé áherslan fyrst og fremst á skáldskapinn. I gegnum persónu Unnar Jónsdóttur fléttast lýsing- ar á lífi og störfum í sveit og borg í kringum síð- ustu aldamót saman við hugleiðingar um viðhorf og skoðanir sem ríkjandi voru á þeim tíma. Þó þessi „sögulegi" hluti bókarinnar sé afar áhuga- verður og vel úr honum unnið er skáldskapurinn þó það sem gefur sögunni mest gildi. Textinn er vel skrifaður, þéttur, þar er engu ofaukið - at- burðir, persónur, þemu tengjast saman og mynda trúverðuga heild. „las ég í bók Darwins. . ." Stúlka með fingur er ástarsaga. Öðruvísi ástar- saga. Saga um ást sem ekki getur gengið upp en gerir það þó, á sinn hátt. Ást sem bæði er, og er ekki, einsog sú sem lýst er í dönsku rómönunum sem Unnur les fyrir þá Gömlu, móður Sýsla, á setrinu þarsem hún dvelur langdvölum sem barn og ung stúlka. Ástin er þó ekki hafin til skýjanna, hún er fyrst og fremst líkamleg, kviknar af „dýrs- legum" hvötum sem þarf að svala. Kynlífið geng- ur einsog rauður þráður í gegnum söguna og er tengt við hugmyndir Darwins. Mennirnir eru dýr og hegða sér í samræmi við það. Lífið er einsog plata sem hefur verið spónlögð með hugmyndum og lögmálum menningarinnar. Líkt og til að und- irstrika þetta vinnur Unnur fyrir sér um tíma við það að skrésetja og flokka dýr og les bækur Darwins i tengslum við vinnu sína. „Ég var hermaður í stríði við gamlar vondar hugmyndir." Valdið í öllum sínum margbreytileika er eitt meg- inþema bókarinnar. Kynlífið er e.t.v. ein skýrasta birtingarmynd þess. Fólk skal giftast innan sinnar 5 8 • VER A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.