Vera - 01.12.1999, Side 68
stór hluti þeirra er í stöðugri megrun til að vera
ánægðari með sjálfsímyndina.
í auglýsingum eru konur sýndar sem kyn-
þokkafullar, glæsilegar, vel á sig komnar líkam-
lega, afslappaðar, sjálfstæðar, uppreisnargjarnar
og grannar. Konum er talin trú um að reykingar'
séu leiðin að þessari tilbúnu kvenímynd. Þessi
ímynd kemur fram meira og minna í fjölmiðlum.
Samkvæmt könnun Hagvangs 1998 hefuráróður
tóbaksframleiðenda haft áhrif á íslenskar konur á
aldrinum 40-49 ára. 32% þeirra reykja sígarettur
og virðist ekki fara fækkandi, meðan 26% karla á
sama aldri eru að stórminnka reykingar. Ungar
stúlkur eiga erfiðara en strákar að standa á móti
félagslegum þrýstingi jafningja. Islensk rannsókn
hefur sýnt að menntun foreldra og félagsleg
staða hefur áhrif á reykingar unglinga. Auknar lík-
ur eru á að unglingar hefji frekar reykingar ef for-
eldrar þeirra reykja og eru áhrif móður heldur
meiri en föður. Einnig skiptir afstaða foreldra til
reykinga máli, þ.e. ef foreldrar eru afskiptalaus þá
fara unglingarnir frekar að reykja. Oft er fyrsta
sígarettan reykt I vinahópi. Auknar líkur eru é að
unglíngar byrji að reykja ef þá skortir heilbrigð
áhugamál og hafa lítið fyrir stafni annað en
sjoppuhangs.
Hvers vegna halda konur áfram að reykja ?
Komið hefur í Ijós að konur reykja af öðrum
ástæðum en karlar. Meðal annars má þar nefna
flókna stöðu þeirra í þjóðfélaginu, þær gera oft of
miklar kröfur til sjálfra sín og upplifa að standa
ekki undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar.
Konur nota reykingar til að deyfa tilfinningar sín-
ar, losa um streitu og draga úr félagslegum þrýst-
ingi frá umhverfinu. Einnig nota þær reykingar til
að ná betri stjórn á óþægilegum tilfinningum sín-
um sem þær óttast að umhverfið samþykki ekki,
eins og reiði, pirringi, vonleysi og þeirri tilfinningu
að hafa ekki stjórn á eigin lífi. Þess vegna sækja
konur í róandi eða sljóvgandi áhrif nikotíns. Kon-
ur eru líklegri en karlar til að hafa þörf fyrir að
auka félagslegt sjálfsöryggi sitt. Að bjóða sígar-
ettu getur virkað eíns og ísbrjótur og athöfnin að
reykja gefur konunni eitthvað að gera með hönd-
unum. Konur leiða oft hjá sér heilsuspillandi áhrif
reykinga. Þær trúa gjarnan að léttari sígarettur
séu „betri" en annað hefur komið í Ijós. Viðkom-
andi dregur reykinn dýpra niður í lungnapípurnar
og heldur reyknum lengur niðri og veldur jafnvel
meiri skaða. Að hafa mörg hlutverk veldur oft
kvíða og spennu. Margar konur nota reykingar til
að draga úr vinnuálagi heima og á vinnustað, t.d.
er yfirleitt samþykkt af umhverfinu „að skreppa í
reykingapásu".
Geta konur ekki hætt að reykja ?
Sannfæring margra kvenna að þær séu háðar
sígarettunni veldur því að þær reyna ekki að
hætta að reykja.
Feimni og geðsveiflur eru algengar hjá ungu
fólki. Um svipað leyti og þátttaka þess í atvinnu-
lífinu er að hefjast eru mörg þeirra einnig að byrja
að reykja. Ef ungar konur læra á þeim tíma að
sígarettan dugar vel á geðsveiflur og félagslegt
ósjálfstæði þá eru meiri líkur á að þær haldi reyk-
ingum áfram.
Komið hefur í Ijós að almennur áróður gegn
reykingum höfðar síður til kvenna en karla. Flest
reykingavarnanámskeið eru samin með það fyrir
augum að henta báðum kynjum, samt er stigs-
munur á körlum og konum. Konum er hættara
við að falla þegar þær lenda í erfiðum aðstæðum
eins og álagi, deilum, streitu eða sorg. Körlum er
aftur á móti hættara víð að falla á reykbindindi við
aðstæður þar sem þeir eru að fá tilfinningalega
útrás og oft í góðra vina hópi.
Samkvæmt reynslu okkar á Reykjalundi hafa
reykingavarnanámskeið frekar stuðst við að þátt-
takendur lifðu reglubundnu lífi, fengju fræðslu og
hræðsluáróður og það þurfi ákveðni og viljastyrk
til að hætta. Þessi aðferð hentar ekki konum til að
halda reykbindindið. Þær þurfa góðan stuðning
frá umhverfinu, t.d. vinum og fjölskyldu, sveigjan-
leika vegna barna, heimilis og atvinnu. Þær hugsa
fremur um heilsu annarra en sína eigin. Þær nota
ákveðnina og viljastyrkinn i að hugsa um heimilið
og uppfylla kröfurnar sem til þeirra eru gerðar.
Konur þurfa stuðning og skilning til að takast
á við fráhvarfseinkenni og brjóta upp reykinga-
mynstrið. Þær þurfa að gefa sér tíma til að byggja
sig upp andlega og líkamlega. Einnig þurfa þær
að sjá sig sem mikilvæga fyrirmynd í sínu nánasta
umhverfi. Það er nauðsynlegt fyrir konur að
byggja upp sjálfsöryggi sitt og ákveðni með
stuðningi frá öðrum konum til að stuðla að ár-
angursríku og viðvarandi reykbindindi.
Elfa Dröfn Ingólfsdóttir
Guðbjörg Pétursdóttir
Rósa Friðriksdóttir
Rósa Maria Guðmundsdóttir
Höfundar eru hjúkrunarfræðingar
við Reykjalund, endurhæfingarmiðstöð.
Orkuveita
Reykjavíkur
KVENNA
SÖGUSAFN
ÍSLANDS
ARNGRÍMS
GÖTU3
68 • VERA
/ munninn
rm NICDRETTE 2 Resoribletter - mm m*. *•••* NCaMETT6 l!
Undir
tunguna
Milli
fingranna
á húöina
NICORETTE
Hjálpar þér að ná takmarkinu!
Hjálpurlæki sem innihcldur nikótín sem kemur í stað nikótíns
við reykingar og dregur þannig úr fráhvarfseinkennum og
auðveldar fólki að hætta að reykja eða draga úr rcykingum.
Gæta vcrður varúðar við notkun lyljanna hjá sjúklingum
með alvarlcga hiarta- og æðasjúkdoma. Reykingar gcta
aukið liættu á blóðtapnamyndun og
það sama á við ef nikotínlyf eru notuð sumtímis lyljum sem
innihalda gcstagen-östrogen (t.d. getnaðarvarnatöflur).
Þungaðar konur og konur með barn á brjósti ættu ekki að
nota nikótínlyf. Þeir sem eru með sykursýki, ofstarfsemi
skjaldkirtils eða krómfíklaæxli eiga að fara varlega í að nota
Nieorette tungurótartönur. Lylið crekki ætlað börnuin yngri
en 15 ára ncma í samráði við lækni. Nieorettc er til sem
tyggigúmmí, forðaplástur sem er límdur á húð, töflur scm
settar eru undir tungu og sem sogrör. Skömmtun lyljunna er
einstaklingsbundin. Leiðbciningar um rétta notkun eru í
fylgiseðli með lyflunum. Brýnt er að lyfið sé notuð rétl og
í tilætlaðan líma til að sem bestur árangur náist. Mcð hverri
pakkningu lyfsins er fylgiscðill með nákvæmum upplýsingum
um hvernig nota á lyfin, hvaöa aukaverkanir þau geta naft
og fleira. Lestu fylgiscðilinn vundlega áðuren þtí byrjarað
nota lyflð.
Markaðsleyflshafi: Pharmaeia & UPjohn AS, Danmörk -
Innflytjanui: Pharmaco hf. Hörgutúni 2, 210 Gurðabær.