Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 49
soporno* “ 4
ÞESSI MYNDBÖND ERU FULLTRÚAR 11.303
NÝRRA HARDCORE MYNDA SEM KOMU ÚT
2002, SAMKVÆMT ADULT VIDEO NEWS, VIÐ-
SKIPTABLAÐI KLÁMIÐNAÐARINS. ÞETTA ER
MYNDEFNI SEM NÝTUR ALMENNRA VINSÆLDA,
FRAMLEITT AFIÐNAÐI SEM SELUR FYRIR 10
MILLJARÐA DOLLARA ÁR HVERT. ÞETTA ER ÞAÐ
SEM BRÆÐUR OG FEÐUR OG FRÆNDUR HORFA
Á, KÆRASTAR OG EIGINMENN OG í MÖRGUM
TILFELLUM ÞAÐ SEM LITLIR STRÁKAR HORFA Á
/ YSTU MÖRK GRIMMDARINNAR
mennra vinsælda, gengur ekki út á bindileiki (bondage)
eða sadómasókisma, yfirlýst ofbeldi, fólk að kasta af sér
þvagi eða saur, enda þótt slíkt efni sé auðvelt að nálgast í
verslunum, með pósti eða á netinu (barnaklám er eina
klámið sem er klárlega ólöglegt alls staðar í Bandaríkjun-
um). Til þess að verða mér úti um klámmyndir sem njóta
I almennra vinsælda til að rannsaka fór ég í verslanir sem
seldu vörur fyrir fullorðna (eins og það er kallað) og bað af-
greiðslufólk og yfirmenn að hjálpa mér að velja það sem
helst var leigt eða keypt. Ég vildi forðast að liggja undir því
ámæli, sem femínistar sem gagnrýna klám verða oft fyrir,
að ég hafi valið verstu dæmin og ofbeldisfyllsta klámið.
Mörgum finnst efnið sem ég lýsi hér óþægilegt en þetta
sýnir ekki undantekningar. Þessi myndbönd eru fulltrúar
11.303 nýrra hardcore mynda sem komu út 2002, sam-
kvæmt Adult Video News, viðskiptablaði klámiðnaðarins.
Þetta er myndefni sem nýtur almennra vinsælda, framleitt
af iðnaði sem selurfyrir 10 milljarða dollara ár hvert. Þetta
er það sem bræður og feður og frændur horfa á, kærastar
og eiginmenn. Og í mörgum tilfellum það sem litlir strákar
horfa á.
Hvaða sögur eru þessar vinsælu klámmyndir að segja
karlmönnum - og hvaða þýðingu hefur það fyrir konur?
Hér eru þrjú dæmi:
„Sopornos 4", gefin út 2003 af VCA Pictures sem er eitt
af „high-end" fyrirtækjunum sem framleiðir myndir fyrir
það sem klámiðnaðurinn kallar „hjónamarkaðinn". Slíkar
myndir sýna viðleitni til persónusköpunar og söguþráðar.
y Klámiðnaðurinn heldur því fram að slíkar myndir höfði til
kvenna jafnt sem karla. Söguþráðurinn í „Sopornos" er
stæling á sjónvarpsþáttunum vinsælu um mafíósana [
New Jersey. í síðustu senunni af sex hefureiginkona æðsta
mafíósans samfarir við tvo manna hans. í hinum hefð-
bundna klámmyndastíl eru ( fyrstunni höfð munnmök,
síðan hefðbundin kynfæramök og loks endaþarmsmök,
og hér býr annar karlanna sig undir að hafa endaþarms-
mök við konuna. Hún segir við hann: „That fucking cock is
so fucking huge.... Spread [my] fucking ass.... Spread it
open." Hann setur liminn inn í hana. Þá segir hún, lægra:
„Dont' go any deeper," og virðist finna til. I lok senunnar
biður hún um sæði þeirra, („Two cocks jacking off in my
face. I want it.") opnar munninn og karlarnir sprauta sæði
sínu samtímis upp í hana.
„Two in the Seat #3" er mynd frá Red Light District frá
árinu 2003. Þetta er svokölluð „gonzo" mynd, sem þýðir að
það er engin viðleitni til persónusköpunar eða söguþráð-
ar. ( myndinni eru sex mismunandi senur þar sem tveir
karlmenn hafa samfarir við eina konu og ná þær hámarki
þegar báðir hafa mök við hana í einu, þar af annar í enda-
þarminn. I einni senunni segir hin tvítuga Claire, sem er
með tíkarspena [ hárinu, að hún sé búin að starfa í klám-
iðnaðinum í þrjá mánuði. Sá sem tekur við hana viðtalið
(sést ekki í mynd) spyr hana hvað muni gerast í senunni og
hún svarar: „l'm here to get pounded." Karlmennirnir tveir
koma á sviðið og hella svívirðingum yfir hana, kalla hana
„a dirty, nasty girl,"„a little fucking cunt,"„a little slut." Eftir
að ferlinu munnmök - samfarir lýkur, segir hún við annan
þeirra: „Please put your cock in my ass." Á meðan báðir
karlmennirnir hafa við hana samfarir, þar af annar í enda-
þarm, gætir sársauka í rödd hennar. Hún er skorðuð við
sófann, hreyfir sig lítið. Karlarnir flengja hana og rasskinn-
arnar eru áberandi rauðar. Annar karlmaðurinn spyr hana
hvort hún sé að gráta sem leiðir til þessa samtals:
Claire: „No, l'm enjoying it." Karlmaðurinn: „Damn, I
thought you were crying. It was turning me on when I
thought you were crying." Claire: „Would you like me to?"
Karlmaðurinn: „Yeah, give me a fucking tear. Oh, there's a
fucking tear."
„Gag Factor #10" er frá 2002, gefin út af J.M. Product-
ions. Ein af tíu senum (myndinni sýnir konu og karlmann í
lautarferð í lystigarði. Hann stendur upp og treður lim sín-
um upp í munn hennar þar sem hún situr á teppinu. Tveir
karlmenn sem eiga leið hjá bætast í hópinn. Á meðan þeir
halda höfði hennar segja þeir: „Pump that face, pump that
vera / 3. tbl. / 2004 / 49