Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 18
/ JAFNRÉTTI
auðvitað enn talsvert langt frá því að vera ásættanleg.
Um leið og efnahagsleg staða öryrkja batnar eykst mögu-
leiki þeirra til að taka þátt í samfélaginu. Þó er það einnig
staðreynd að atvinnuleysi meðal öryrkja er að aukast
með aukinni einkavæðingu og harðari samkeppni á at-
vinnumarkaði. Þetta er sá hópur sem verður hvað verst
fyrir barðinu á slíkum breytingum á vinnuumhverfi."
Steinunn nefnir ákveðna viðhorfsbreytingu sem henni
finnst hafa orðið meðal öryrkja og annarra á síðastliðnum
árum. Umræðan sé orðin opnari og jákvæðari.
„Fólk er farið að þora að koma út úr skápnum sem ör-
yrkjar ef svo má segja. Fyrir þau sem ekki hafa sýnilega
fötlun er svo auðvelt að skilgreina sig sem eitthvað annað
en öryrkja og sleppa því að sýna samstöðu og berjast
sem heilstæður hópur. Fólk er orðið opnara, það hafa
birst greinar í dagblöðum eftir fólk sem titlar sig öryrkja
sem mér finnst vera mjög jákvætt. Þetta tel ég meðal
annars vera afleiðingu af opinni baráttu Öryrkjabanda-
lagsins. Hún hefur þjappað öryrkjum saman og gert þá
meðvitaðri um hagsmuni sína. Um leið og við viðurkenn-
um að við séum öryrkjar styrkir það okkur í baráttunni og
eykur sjálfsvirðingu okkar, þetta er ekki og á ekki að vera
ástand sem þarf að fela. Það er einnig markmið þessarar
opnu umræðu að afmá letistimpilinn af öryrkjum sem
virðist vera ótrúlega lífseigur. Það vita allir sem reynt hafa
að það að vera með sjúkdóm eða fötlun er meira en full
vinna."
Jafnrétti erfyriralla
Steinunn segir fulla þörf á því að ræða jafnrétti milli ör-
yrkja og heilbrigðra, ekki siður en kynjajafnrétti. „Mér hef-
urfundistáberandiá síðustuárum hvaðjafnréttisumræð-
an snýst afskaplega mikið um jafnrétti kynjanna. Þegar
einhver nefnir jafnrétti gerir fólk ráð fyrir því að verið sé
að vísa til jafnréttis kynjanna. Fólk er orðið meðvitaðra
um að huga að kynjajafnrétti. Stjórnmálamenn komast
t.d. ekki upp með annað en að lofa að huga að þessum
málaflokki. Það er eins og umræðan hafi einskorðast að
einhverju leyti við þennan anga jafnréttismála. Mér finnst
mál til komið að fara að víkka jafnréttishugtakið virkilega
út og taka tillit til þess að kynjaumræðan, eins mikilvæg
og hún er, á ekki einkarétt á þessu hugtaki. Jafnrétti er
vítt hugtak og við eigum að nota það sem slíkt.
18/3. tbl. / 2004 / vera