Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 43

Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 43
/ VIÐTAL um og hefur gert samstarfssamninga við skóla í Kína, Ameríku, Kanada, Japan, Þýskalandi, Finnlandi og víð- ar. Það er mjög mikilvægt fyrir nem- endur að fá að kynnast öðrum skól- um en um helmingur fyrstu út- skriftarnemanna tók hluta af námi sínu erlendis.“ Ingibjörg segir að undanfarin ár hafi orðið sprengja í meistaranámi hér á landi sem sé merki um hækk- andi menntunarstig þjóðarinnar. Á síðasta ári hófst kennsla til meistara- náms í viðskiptafræði á Bifröst og undirbúningur að doktorsnámi er hafinn. „Það er í vaxandi mæli litið á BA og BS nám sem grunn og MA próf sem fyrstu gráðu enda hefur doktorsnemum farið fjölgandi í há- skólum landsins. Bifröst er kjörinn vettvangur fyrir nám af þessu tagi en þar hefur risið öflugt háskólaþorp á síðustu árum. Starfsemin er lífleg allt árið og ýmsar hugmyndir um vaxtarmöguleika. Fyrir utan hið hefðbundna nám er boðið upp á styttri námskeið og minni gráður og það munum við einnig gera í lög- fræðideildinni. Margt fólk hefur á- huga og þörf á frekari lögfræði- kunnáttu og ég get séð fýrir mér ÞAÐ ER ALVARLEG STAÐREYND ÞEGAR KONUR HAFA VERIÐ MEIRA EN HELM- INGUR ÚTSKRIFTARNEMA ÚR LÖGFRÆÐI- OG VIÐSKIPTADEILDUM í MEIRA EN ÁRATUG AÐ ÞÆR SKILI SÉR EKKI í STJÓRNIR FYRIRTÆKJA, FRAMKVÆMDA- STJÓRNIR NÉ FORSTJÓRA- EÐA BANKASTJÓRASTÓLA. ÞAÐ SEGIR OKKUR AÐ EINHVERS STAÐAR ER KERFISBUNDIN SKEKKJA í DÆMINU ýmsar áhugaverðar samsetningar af lögfræðitengdu námi. Ég gæti líka vel hugsað mér að kenna á nám- skeiði fyrir almenning um lögfræði- lega hugsun eða aðferðafræði. Málið er nefhilega að lögfræðileg umræða í samfélaginu verður skemmtilegri og frjórri eftir því sem fleiri öðlast færni í henni. Það er svo heillandi við fagið.“ Verðum að breyta viðhorfunum Þegar talið berst að ráðstenfunni Völd til kvenna - tengslanet segir Ingibjörg að þar hafi rnargt komið fram sem hefur orðið henni um- hugsunarefni. „Mér þótti t.d. merki- legt að lilusta á konu sem býr ein lýsa viðhorfi samfélagsins til kvenna í hennar stöðu og á lögfræðinginn sem sýndi fram á að í lögum er hvergi gerður greinarmunur á körl- um og konum. Lögin eru sem sé ekki hindrun, heldur samfélagsgerð- in. Ég var ánægð með að ekki var talið að vandamálið með stöðu kvenna myndi leysast af sjálfu sér, það væri næstum úr sögunni, eins og heyrist oft. Á ráðstefnunni var breiður hópur kvenna sem taldi á- standið ekki viðunandi og það væri í okkar verkahring að breyta því.“ lngibjörg er ekki í vafa um að konur verði að vera duglegri að mynda tengslanet og segist hafa glaðst í vetur þegar stelpurnar í lög- fræðideildinni ákváðu að gera eitt- hvað án strákanna. Þær kornu á því sem þær kalla „Rauðir dagar“, þar sem þær hittust til að styrkja böndin og fengu til sín gesti. „Ég notaði tækifærið og brýndi fyrir stelpunum að konur verði að standa saman um að ná árangri. Ég hvatti þær til að stofna tengslanet sín á milli og styðja hver aðra þegar út í vera / 3. tbl. / 2004 /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.