Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 13

Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 13
um. Aðalheiður var vinnukona á Egils- stöðum árið 1899—1900, en hafði litlu stúlkuna á fóstri annars staðar, en þó ekki á Hraunfelli að því er mig minnir- Hún réð þá för sína til Ameríku með barnið. Hún var þrifin vinnukona, en jafnan fálát, hafði miklar virðingar í umgengni, var aldrei kölluð hvorki Alla né Heiða, heldur ætíð Aðalheiður. Undir 'vor tók hún þó barnið til sín. Morgun- inn eftir að litla stúlkan kom sat hún uppi í rúmi mömmu sinnar, en Aðal- heiður sat fyrir framan hana og hafði fengið henni úrið hans Valdemars til að leika sér að. Þar mátti ég ekki nærri koma, en sótti þó eftir. Hafði Aðalheiður aldrei stjakað við mér fyrr- Um sumar- málin kom Þorgerður að finna Aðalheiði. Hún kom innan grundirnar og reið fót fyrir fót. Móðir mín gekk á hlað að taka á móti henni. „Komið þér nú sælar Þor- gerður,“ sagði hún í líkum virðingartón og hún væri að heilsa séra Sigurði Sívert- sen. Þorgerður dvaldi næturlangt og töl- uðu þær Aðalheiður löngum saman. Svo fór Þorgerður, en Aðalheiður gekk á götu með henni alla leið inn að Þverá. Ég man gleggst eftir Aðalheiði þegar hún kom aftur, enda var ég að passa Gerðu litlu á þriðja árinu, og var helmingi eldri. Og Aðalheiður fór til Ameríku. Á Is- landi hefur hennar ekki verið getið síðan. Sigurgeir andaðist 1901, og Þorgerður gekk inn í sinn einstæðingsskap af stað- festulegri venslamannavöntun. Flestum, eða öllum, var hlýtt til hennar, en viðast hvar ekki ofrúm fyrir hana- Hún tók hinn fyrirsagða kost, að seljast bónda nokkrum arfsali, og varð henni það að mikilli raun ofan á allt. annað. Sjálf þekkti hún ekki brigðmælgi né tryggða- rof. Hún átti nokkur efni, því jafnan bjuggu þau hjón þrifabúi- Það var í sög- um hversu mikill dýravinur Þorgerður var, og gekk ekki önnur saga meiri af henni né einkennilegri að hátterni. Sumt í þeim háttum hennar vakti aðdáun, ann- að þótti sérviska, og var hlegið að, og þó með varasemi, því ef til vill var hér ekki um hláturefni að ræða heldur fyrirmynd, sem þó enginn treystist til að hafa eftir. Hún bjó ætíð smalann sjálf að heiman hvern morgun, en er hún hafði tekið upp eldinn byrjaði hún á því að ylja hundamatinn og skammta seppanum, og varð smalinn að hafa þetta virðingarleysi bótalaust. Orðræðum skipti hún á milli þeirra, og hafði seppinn hiim hlýrri hlut. Saga var það að hvolp einn ól hún upp og lét hann ekki skorta dálætið, og þá er hún fór með kaffi handa fólki, þóttist hún ekki geta sett hann hjá. Vandist hann á að lepja kaffi- Var hann af því Kaffon kallaður. Þótti þetta snjöll saga, en þó meira nýmóðinsleg. Kaffon þótti afburða vitur hundur, og allra hunda frægastur af nafni sínu. Það var á einu hausti að Valdemar var að smala inní heiði — Hraunfellspart — og fylgdi honum Kaffon. Veðri brá þá mjög snögg- lega til hins verra, og varð Valdemar í nauðum staddur að komast heim vegna villu. Hann hafði tekið eftir því að hund- urinn skildi það, ef talað var til Þorgerð- ar, að sinna honum á einn eða annan hátt. Honum varð þá fyrir að kalla úti í veðrið, eins og til móður sinnar: „Mamma! Kallaðu á liann Kaffon!“ — Hundurinn skildi þetta og tók óðara stefnu heim í Hraunfell, og hélt Valde- mar á eftir honum. Þurfti ekki að því að spyrja, að Kaffon rataði heim í Hraun- fell. Varð þetta fræg saga, og máttu allir skilja að á bak við hana lágu snild og vitsmimir, af ekki stærra efni, en sýna hundi lítillæti og umönnun. Eftir slíkum nýmóðins leiðum lágu virðingar Þorgerð- ar lit á meðal sveitarmanna. Ef til vill 81 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.