Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 14

Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 14
voru þær með einum hverjum hætti ný- lundarlegar en virðulegar samt og kann- ske þeim mun virðulegri sem þær voru nýlundarlegri. Eftir þetta réðist Þorgerður að Ytri- Hlíð til ágætra hjóna, Sigurjóns Hall- grímssonar og Valgerðar Helgadóttur. — Eftir það fór hún ekki vistferlum, en lifði þó nokkra stund- Hún fór aldrei Fjallagötu eftir þetta. Ég mætti henni aldrei framar á neinni götu. Ég sá hana aðeins við Hofskirkju einu sinni eða tvisvar eftir þetta. Þá sat hún með grann- konu sinni á leiði að kirkjubaki eftir messu. Ég veit ekki til að nokkur kona í Vopnafirði bæri nafn hennar, svo upp- skátt hafi verið látið. En Kaffons heiti þekkti ég á hundum- Eftir leiði hennar í Hofsgarði hef ég spurt á seinni timum, en enginn getað vísað mér á. Það sagði mér gamall maður, er ég var enn ungur, að hann hefði tekið gröf í Hofsgarði eitt hvert sinn, og verið þá ungur. Upp úr gröfinni kom mikið og forkunnarfagurt kvenhár, rauðgult og gljáandi. Fylgdi því aðeins höfuðskelin en þó mjög rotin. Presturinn taldi að þetta hár hefði verið smurt með rotverjandi efnum, og mundi seint eða eigi fúna. Þetta hefur mér þótt eitt hið merkilegasta sem ég hef heyrt um dagana og undraðist það, að hárið skildi látið aftur í gröfina. Ég hef oft hugsað út í það, hvaða kona hafi borið þennan hadd í lifenda lífi og ætið stað- næmst við Sólveigu Hálfdánardóttur, konu Þorvarðar Þórarinssonar, er dó á fimmtugsaldri. Og jafn oft sem mér hef- ur komið þetta í hug hef ég minnst rauð- gulu lokkanna sem stóðu framundan húfu Þorgerðar á Hraunfelli, er ég mætti henni á mónum forðum daga. Ég veit að hvoru tveggja hárið geymir Hofsgarður, — og skilar aldrei aftur. í sælu Siglufjarðar Framhald af bls. 78. hin síðustu ár. Hin síðari ár er ekki mik- ið um skipakomur til Siglufjarðar mið- að við það sem áður var. Árið 1955 komu þar til hafnar 2025 skip, en árið 1939 komst talan hæst, en þá komu þangað 6047 skip. Starfslið bæjarins virtist mér vera ó- venjulega geðfellt, elskulegt og kurteist fólk. Það var eins og það hefði nautn af því að sýna mér og svara fyrirspumum hins spurula blaðamanns. Auk þeirra sem ég hefi áður nefnt í þessu sambandi má nefna hin geðfellda bæjargjaldkera þeirra Ragnar Jónasson og fjölskyldu hans. — Hann greiddi götu mína á svo skemmti- legan og elskulegan hátt, eins og við hefðum þekkst frá gamalli tíð, og nú verið að endumýja hin gömlu góðu kynni, en Ragnar hafði ég auðvitað aldrei séð fyrr. Fyrir allt þetta vil ég að lokum þakka þessu ágæta fólki, sem á svo áþreifan- legan og skemmtilegan hátt hefur sem starfsfólk bæjarins staðið svo óvenjulega vel i stöðu sinni, og kynnt bæ sinn á svo virðulegan og skemmtilegan hátt. Um leið og ég þakka svo vini mínum Jóni Kjartanssyni öll elsikulegheit á heim- ili hans og aðra fyrirgreiðslu, óska ég Siglufjarðarbæ heilla og framtíðargengis. Vona ég að yfirstandandi sumar verði honum hagstætt og heilladrjúgt, og að bærinn eigi eftir að vaxa fyrir mikla síldargengd á komandi árum, án þess að gleyma því, að enginn maður og enginn bær lifir á síld einni saman fremur en — brauði. — 1 fyrstu grein minni gat ég um fyrstu komu mina til Siglufjarðar 1919, en það átti að vera 1916. 82 A K R A N E S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.