Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 43
tíð. Þessir menn teyma oft hina þungu
lest í átt til athafna og framfara, eða
þeir bjarga verðmætum, sem bregða má
upp með björtu ljósi yfir liðna tíð, og
varðveita þannig oft á hinn ljósasta og
furðulegasta hátt samhengi mikillar sögu,
sem annars hefði með öllu glatast.
1 þessu sambandi virðist mér mega
þakka forráðamönnum Reykjavíkurbæjar
þá framsýni og skilning, er bærinn kaup-
ir hið mikla safn Reykjavíkumiynda úr
dánarbúi dr- Jóns Helgasonar biskups, en
það safn er einstætt og ómetanlegt í sam-
bandi við byggingarsögu bæjarins og um-
hverfi.
Dr. Jón Helgason var mikill eljumaður
og næsta merkilegur. Hann var ótrúlega
sögufróður, en einnig mjög listhneigður
og drátthagur vel. Líklega hefur enginn
biskup á Islandi fyrr eða síðar visiterað
jafnmargar kirkjur sem hann. Dr- Jón
lét sér ekki nægja að skrásetja allt á
venjulegan hátt, er viðkom hverri ein-
stakri kirkju, heldur teiknaði hann eða
málaði hverja einustu kirkju er hann
visiteraði á sinni löngu starfsævi. Þetta
mikla kirkjumyndasafn dr. Jóns — sem
mim vera yfir 200 myndir — er þvi
alveg einstætt í sinni röð, og næsta mik-
ilsverð heimild um byggingarlag, um-
hirðu og ásigkomulag kirkna á þvi tíma-
bili er myndimar ná til. Hér er um að
ræða torfkirkjur og eldri og yngri stein-
kirkjur.
Því minnist ég hér á þetta siðasta at-
riði, að ekki er seinna vænna að gera til-
raun til að bjarga þessu mikla kirkju-
myndasafni dr. Jóns á einn stað, ef þess
væri enn kostur, og áður en það tvístrað-
ist. Börn dr. Jóns munu liafa sýnt mik-
inn skilning og þegnskap gagnvart hinu
fyrrnefnda safni sem Reykjavíkurbær
keypti. Þykir mér ekki síður líklegt að
þau mundu vilja heiðra minningu síns
mæta föður, með því að stuðla að þvi að
kirkja Islands gæti eignast svo einstætt
safn sem hér er um að ræða. Svo kær
sem Reykjavík var Jóni biskupi, var hon-
um þó enn kærari kristni og kirkja lands-
ins, heiður hennar og sæmd, og allt sem
lyfta mætti henni til vegs og sóma á
komandi öldum. Hér er áreiðanlega ekki
um hégómamá] að ræða. Heldur mál
sem er næsta athyglisvert og þarf að
liyggja að sem allra fyrst, ef það er ekki
þegar orðið um seinan. öllum þeim er
hér eiga hlut að máli treysti ég að
óreyndu hið bezta.
Það er gaman að fylgjast með ýmsum
viðbrögðum Reykjavíkurbæjar til hinnar
öru þróunar, bæði efnahagslega og bættra
skilyrða á svo mörgum sviðum- Ekki að-
eins með hliðsjón af hinu matrialiska,
sem allt annað hverfur í skuggann fyrir.
I þeirri glímu virðist mér i Reykjavík
mega sjá nýja dagsbrún á lofti. Hin síð-
ustu ár virðist forráðamönnum bæjarins
vera að skiljast æ betur og betur, að
samhliða hinu matrialiska kapphlaupi
einstaklinga og þjóða, verði að korna
nokkur mannrækt og umhyggja fyrir
andlegri velferð þjóðarinnar. Þetta er
gleðilegt tímanna tákn, og sem hlýtur að
hafa gagnleg áhrif til þjóðheilla á kom-
andi tímum.
Ól- B. Björnsson.
Hallgrímskirkja í
Saurbæ vígð.
Hinn 28. iúli s. 1. vigði biskup-
inn, herrn Ásmundur Guðmunds-
son, hina nýju Hallgrimskirkju í
Saurbæ, við fjölmenna, hátiðlega
athöfn. Verður væntanlega nokk-
uð gjör sagt frá þessu í næsta
hefti.
A K R A N E S
111