Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 55

Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 55
Guðríður Sigurðardóttir á Heynesi Hin- rlkssonar. Meðal systkina Guðríðar voru: Hákon Sigurðsson, maður Alfífu Eiríks- dóttur, Gróa Sigurðardóttir, kona Hall- dórs Ólafssonar á Reynir, og Sigurður Sigurðsson, faðir Þórunnar í Melaleiti, konu Guðmundar Ásgeirssonar. Bræður Jörundar í Miðhúsum voru m. a.: Guð- mundur Jörundsson í Dægru, og Hákon Jörundsson í Birnhöfða. Meðal systkina Sigurðar Jörundssonar var Ari Jörunds- son á Höfðanum, faðir Haraldar Ara- sonar og Eklu Aradóttur. Guðríður móðir Sigurðar er fædd á Efra-Skarði í Leirársveit 3. júní 1838. Sigurður Jörundsson er hins vegar fædd- ur í Miðhúsum 22. nóv 1867, (ekki 28. nóv. 1865, eins og stendur í manntalinu hér, eða 1864, eins og þar er á stundum talið). Sigurður Jörundsson mun flytjast fyrst á Skagann 1886, en Guðríður móð- ir hans 1893, og kemur þá frá Engey. 1 manntölum hér er Salvör Jónsdóttir talin fædd 22. október 1863, en hún er fædd 8- nóvember 1863. Foreldrar henn- ar voru: Jón Jónsson og Sigurbjörg Jóns- dóttir, ógiftar persónur á Stálpastöðum í Skorradal. Salvör kemur hingað fyrst á Skagann 1887 frá Vogatungu og fer þá að Liltabakka. Foreldrar Sigurðar voru mjög fátæk, og fór hann því sncmma að vinna fyrir sér, og þótt hann væri ekki hár i loftinu, fór hann ótrúlega fljótt að róa til fiskjar. Sigurður var óvenjulega snar, og gekk að hverju verki eins og hann hefði miklum manni að má og dró aldrei af sér. Hann sá ótrúlega vel fyrir stóru heimili, sér- staklega þegar tekið er tillit til þess, að um fjölda ára átti hann við mikið heilsu- leysi að stríða. Gekk hann þá oft til vinnu fyrir eindæma hörku, knúða fram af þeirri litt bærilegu tilhugsun að þiggja brauð af annars borði. Hann notaði hverja stund til arðbærrar vinnu heima við eða að heiman. Hugsaði hann vel um og hirti sitt heimili. Hafði hann t. d. lengi nokkrar kindur til búdrýgmda og til þess að baíta mataræði heimilisins, og auka kartöfluuppskeruna með góðum áburði. Viljinn, harkan og fjörið var ekki lítið. Meðan Tiryggjulaust var óð þessi litli maður og bar af skipi á öxlum sér fólk og farangur, fisk og salt og hvers konar vörur, Enn lýsir sér sama harkan og dugn- aðurinn, þar sem hann nú níræður að aldri beitir stubb sinn, og annast um það sem á hann kemur, hvernig sem viðrar. Salvör var mjög samhent manni sínum og lét ekki sitt eftir liggja um hirðu á sínu heimili, og að sjá því farborða. Líklega er það árið 1917 sem Sigurður stækkar húsið nokkuð, og árið 1930 selur hann núverandi eiganda það, en byggir lítið eitt neðar og vestar, stærra hús á lóð úr Miðteigslandi, og flytur þangað vorið 1930, ásamt syni sínum Georg. — Börn þeirra Sigurðar og Salvarar eru þessi: 1. Klara, gift Eliasi Níelssyni, Kirku- braut 15- ... 2. Ragnar I3órður, kvæntur Friðbjörgu Friðbjarnardóttur, Akurgerði 11. 3. Metta Hinrikka, sem dvelur hjá föður sínum. 4. Georg, vélstjóri, sem fórst af m/b Kjartani Ólafssyni 1935, kvæntur Vil- borgu Ólafsdóttur úr Ólafsvík. Eins og áður er sagt, keypti Árni Sig- urðsson Melstað 1930, og hefur búið þar síðan. Hann er sonur Sigurðar Jónssonar í Melshúsum, Ásbjarnarsonar Erlendsson- ar, og konu hans Kristínar Árnadóttur, sem beggja hefur fyrr verið getið í sam- bandi við Melshús. Kona hans er Guð- ríður Margrét Þórðardóttir. Dóttir Þórðar 123 A K R Á N E S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.