Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 50
um gæta exm meir gázka og léttleika hjá
henni, en þáð er raunar smekksatriði,
sem um má deila.
Bessi Bjarnason leikur sitt hlutverk
prýðilega, en söngurinn er, því miður,
ekki eins góður og hann þyrfti að vera,
og dregur það nokkuð úr heildarsvip
leiksins að svo er.
I stærri hlutverkum eru þau: Ævar
R. Kvaran, Hanna Bjannadóttir, Ólaf-
ur Jónsson, Helgi Skúlason, Baldvin
Halldórsson og Rósa Sigurðardóttir. Allt
fór þetta fólk vel með hlutverk sín, ekki
sízt Rósa og Helgi. Hins vegar hefði mátt
búazt við meiri léttleika af Hönnu
Bjarnadóttur, eins vel og hún fór af
stað á annan í jólum s.l. Vonandi gleym-
ir hún ekki að halda við, og helzt auka,
lærdóm sinn, en hún var nýkomin heim
þegar hún lék í óperu í vetur.
Með þessari óperettu lýkur leikárinu.
Það hefur ekki fært Þjóðleikhúsinu mikla
sigra, en vonandi er nú botni öldudals-
ins náð að þvi er leikritaval varðar.
118
Don Camillo (Valur
Gíslason), Peppone (Kó-
bert Arnfinnsson).
★ Don Camillo og Peppone.
Gamanleikur i to sýningum, gerSur eftir
smásögum Giovanni Guareschi. Walter Firn-
er færSi sögurnar í leikform og annast leik-
stjórn. ÞýSandi: Andrés Björnsson. Leiktjöld:
Lárus Ingólfsson
Don Camillo og Peppone eru gamlir
kvikmyndakunningjar, sem nú hafa
haldið innreið sína í Þjóðleikhúsið, öllum
almenningi til óblandinnar ánægju. Þeir
hafa ekki neina lífsspeki að flytja okkur,
við förum hvorki heimskari né vitrari
af fundi þeirra, en við komum, en við
förum áreiðanlega glaðari. Átökin og
skripalætin kringum kaþólska prestinn
og kommúnistann, Peppone, eru þess eðl-
is, að allir hljóta að hafa gaman að.
Valur Gí'slason leikur Don Camillo af-
burðavel og er leikur hans hámark þess,
sem sézt hefur í Þjóðleikhúsinu það sem
af er þessu leikári.
Valur er allt í senn, mannlegur og
kankvís, alvarlegur og spaugsamur, iðr-
andi syndari og hjólandi spilagosi. Eng-
AKRANES