Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 40

Akranes - 01.04.1957, Blaðsíða 40
vemd og varðveizlu, og fyrir heilshug- ar starf góðs prests, sem aldrei ann sér hvíldar frá köllun sinni, vegna Guðs og mannanma- Upp af slíku istarfi vex mik- ill meiður, sem mörgmn gróðri hlífir og markar mikil og djúptæk spor í lífi manna og þjóða á þessari jörð. Nokkru eftir að síra Sveinbjöm var hér á ferð, varð hann fyrir þeirri raun að missa sjón á öðru auga. Varð hann þá að taka sér hvíld um sinn, og hélt jafnvel um tíma, að starfstíma isínum væri að fullu lokið á hinum prestlega vettvangi. Söfnuði Sveinbjamar varð þetta ef til vill enn þyngri raun ell hon- um sjálfum, ef svo ætti að fara. Hvað átti hann að gera? Hann hefur sjálfsagt ráðgast um þetta við Guð sinn. Þangað hefur hann sótt ráð og styrk, sem held- ur lét hann ekki án vitnisburðar. öðm auganu hélt liann. Þó er styrk- ur þess ekki meiri en svo, að hann getur helzt ekki lesið eða skrifað, a. m. k- ekki neinu sem nemur. Hann getur þó keyrt bil sinn, og þetta gefur honum meira og betra tækifæri til að lifa í nánara samfélagi og snertingu við söfn- uð sinn, sjúka menn og heilbrigða, böm hans og gamalmenni. Af þessum sökum hefur hann orðið að leggja alla skrif- aða ræðumennsku á hilluna. Þrátt fyrir allt þetta, sem ýmsir prest- ar mundu hafa talið nægjanlegt áfall og afsökun til þess að hætta starfi og komast á eftirlaun, eftir langt og vel unnið starf, hefur séra Sveinbjöm ekki farið þannig að. Hann heldur þvert á móti áfram prestskap eins og ekkert hafi ískorizt. Hann vinnur öll störf sín í söfnuðinum eftir sem áður. 1 stað þess að skrifa ræð- ur sínar áður, flytur hann þær nú blað- laust. Þama er manndómur á ferð, traust og og trúnaður, bjargföst trú á föðurforsjón Guðs og handleiðslu. Maður, sem auðsjá- anlega telur sig kallaðan, til starfs og þjónustu við mennina, sem í fullreynd lífsins fær aukinn styrk til áhrifaríkari þjónustu en nokkm sinni fyrr. Hann er einn af þeim, sem nægir náð Guðs, og fær umbun í ríkum mæli í samræmi við það, öðrum til trausts og halds, jafn- framt því sem það fyllir sál hans sjálfs friði og fögnuði, yfir því að fá enn um stund að reka erindi hins hæsta, meðal þeirra, sem þess þurfa með- f aprílmánuði s. 1. vom hér á ferð kona séra Sveinbjamar og dóttir, á leið sinni til Evrópu. Þær máttu til að heim- sækja föðurland Sveinbjarnar, því að svo mikið hafði hann sagt þeim um þetta undra land. „Þangað megið þið þó ekki koma, án þess að sjá Akranes11, sagði hann. Þær stóðu hér aðeins við tvo daga, þar af annan á Akranesi. Hann gaf þeim ýmsar leiðbeiningar í þessu .sambandi og sérstaka forskrift um það, hvað þær ættu að skoða, og festa sér í minni á Akranesi. Allt þetta héldu þær dyggilega, sem þegar heim kemur, veitir honum mikla fróun og hugsvölun, því að helzt lítur út fyrir, að hér lifi hann til hálfs, þótt hann hrærist í ann- arri heimsálfu- Kona Sveinbjamar er myndarkona, menntuð og geðug. Það er dóttir þeirra einnig, sem nú er útlærð hjúkrunarkona. Báðar vinna þær af alhug með séra Sveinbimi að hinum ýmsu verkefnum safnaðarstarfsins, sérstaklega meðal hinna ungu, sem í Ameríku er lögð höfuð- áherzla á. Þar em þeir umfrarn allt á réttri leið, þvi að þar sem engin rækt er lögð við kristilegt uppeldi æskulýðs- ins, og heimilin eru afskiptalaus um þá hlið undirstöðuatriða góðs þjóðfélags, vex aldrei upp nema nafnkristin þjóð. Þetta á að vera kveðja til síra Svein- 108 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.