Akranes - 01.04.1957, Síða 17
ljósið ýmislegt um gáfaðan, ungan Is-
lending í stúdentasveit í Höfn frá dög-
um „Verðandi“-manna. En þar sem Snæ-
björn heldur, að ef til vill hafi verið hall-
að á merka konu, eða jafnvel skertur
heiður hennar, vonar hann að hægt sé
að upplýsa það, sem sannast kynni að
reynast í þessu máli, jafnframt þvi,
sem meira mætti vitnast um líf og starf
svo gagnmerkrar konu sem frk, Sigríð-
ur Helgason var-
Nánir vinir og venzlamenn hennar
voru mjög hneykslaðir yfir þeirri ófyrir-
leitnu staðhæfingu Finns Jónssonar —
eftir sögusögn annarra, — að þau Bertel
og hún hafi lifað saman sem hjón. Þar
sem þetta mun vera hreinn þvættingur
og staðlausir stafir, verður þetta atriði
gert hér að umtalsefni, samhliða því sem
reynt verður með fáum orðum að varpa
Ijósi á lifsferil hinnar mætu konu.
Ætt og uppruni.
Sigríður Helgason mun hafa verið
fædd í Viðey 8. janúar 1845, dóttir
Helga prentara (1807—62), Helgasonar
bónda og útgerðarmanns á Reyni á
Akranesi, Guðmundssonar, Brandssonar,
og Guðrúnar Finnbogadóttur (1810—77),
systur síra Jakobs Finnbogasonar á Mel-
um í Melasveit, isíðast í Steinnesi (Mynd
sú í Prentaratali, sem þar er talin vera
af honum, er af Helga Einarssyni Helge-
sen. Líklega er engin mynd til af Helga
Helgasyni).
Náin kynni hafa verið á milli Helga
á Reyni og Magnúsar Stephensens með-
an hann bjó á Innra-Hólmi, enda hefi
ég heyrt, að hinn ungi Helgi á Reyni,
hafi á barns- eða unglingsárum um ára-
bil verið í Viðey hjá Magnúsi, sem sjálf-
sagt hefur litizt vel á hinn unga mann
og hvatt hann til námsins.
Síðar fluttist Helgi prentari til Akur-
eyrar, þar sem hann gerðist prentari.
Þau Helgi og kona hans áttu mörg börn.
Meðal þeirra voru:
a. Þorvarður, beykir, í Keflavík- Sonur
hans var Þorsteinn, formaður og út-
gerðarmaður í Keflavík, nýlega lát-
inn, sonur hans er Friðrik Þorsteins-
son kirkjuorganisti þar.
b. Jakob, verzlunarstjóri á Vopnafirði.
Hans dóttir Þuríður, er átti Sigurð
lækni og alþingismann Kvaran. Þuríð-
ur átti einmitt heima um 10 ára skeið
hjá frk. Sigríði Helgason, frá 18—28
ára aldurs.
c. Elín, átti fyrr Einar Einarsson Thor-
lacius, en siðar Edilon Grímsson skip-
stjóra. Þeirra sonur var Þórður Edi-
lonsson héraðslæknir í Hafnarfirði-
e. Sigriður, sem þessi grein er sérstak-
lega helguð.
Líklega hafa öll þessi börn verið vel
gefin og dugleg. Það má a. m. k. full-
yrða um frk. Sigríði Helgason, sem ruddi
sér glæsilega braut í öðru landi ung að
árum. Sigríður hefur snemma verið táp-
mikil, örugg og ákveðin, útþráin rík, og
haft vilja til að komast áfram af eigin
rammleik-
Hún fór og sigraði.
Þegar hún var aðeins 18 ára gömul
tók hún sig upp frá Akureyri, og var
ferðinni heitið til Kaupmannahafnar.
Áform hemiar var þríþætt: Að sjá meira
al’ heiminum, en hljóta samhliða nokkra
menntun, og svo það, sem hún sjálf kall-
aði, að komast áfram á eigin spýtur.
Farareyrir hinnar ungu stúlku var að-
eins 17 dalir. Hún sigldi með seglskipi,
og tók ferðin 7 vikur.
Sigríður fór nú að líta eftir atvinnu.
85
AKRANES