Akranes - 01.04.1957, Page 22

Akranes - 01.04.1957, Page 22
efni og aðstaða var lítt sparað til þess að efla dáð þeirra, seðja hungur þeirra eða fata þá eða snyrta. 1 þessum efnum munu þeir ekki sízt hafa notið aðstoðar hennar og hjálpar, sem þess höfðu mesta þörf. Sem á einn eða annan veg hafi ver- ið linir eða lamaðir, ef mannræna hafi verið í þeim, eða von um að sigrast á veilum þeirra eða volæði. Er það mjög sennilegt, — eins og raunar hefur komið fram, — að henni hafi verið annt um velferð Bertels Þor- leifssonar, og að fjárhagslega hafi hún styrkt hann meira en flesta aðra stúd- enta í Höfn á þessum árum. Það hefur sjálfsagt verið af hinni ríku þörf hans annars vegar, og mannúðar- og móður- umhyggju hins vegar- Af samtalinu við frú Guðrún Finsen virðist mér allt benda til, að frk. Helga- son hafi verið hin virðulega hefðarkona, sem var leiðtogi og hjálparhella hinna ungu, íslenzku menntamanna í Höfn. Sem aldrei leyfði þeim að fara yfir mark 1 neinum efnum. Hún hafi aldrei fallið frá því, að vera húsmóðir á sínu heim- ili, og aldrei fallið fyrir neinum ástar- ævintýrum, ímyndaðri eða raunverulegri hjónabandssælu. Hún mun hafa verið hin mikla skapfestukona, sem þrátt fyrir útþrá og ævintýralöngun, hafi alltaf og ævinlega siglt fram hjá ævintýralundum ástalífsins. Hún mun víst aldrei hafa bergt þann bikar, og ekkert hafa vitað hvað það var. Hún var alin upp í hin- um stranga og virðulega skóla góðs heim- ilis, og þegar hún kom ung til framandi lands, lá leið hennar fyrst og fremst um þær slóðir, sem líf og starf mótaðist af virðuleik, réttlætiskennd, menntun og vinnu, sem yki fremur en skerti mögu- leika til persónulegs sjálfstæðis, bæði hið ytra og innra. Hún mun áreiðanlega hafa talið það langt neðan við virðingu sína að eiga ástarævintýri með þeim mönnum, einum eða fleirum, sem i skjóli hennar dvöldu, og hún taldi hjálparþurfi á einu eða öðru sviði. Mér skilst, að frk Sigríður Helgason hafi verið ein af hinum óvenjulegu ís- lenzku úrvalskonum, sem tóku líf sitt mjög alvarlega. Talið sig eiga iskyldum að gegna við það. Átt köllun, sem hún yrði að rækja eftir ströngustu siðasnúru þeirra tíma. Hún hefur sjálfsagt verið ein af þeim, sem þannig hefur agað sjálfa sig, að hún hafi aldrei á lífsleiðinmi farið út fyrir þá landhelgislínu lífssjónarmiða sinna, sem lögð var eða ákveðin í ís- lengum jarðvegi; og aldrei hafi heldur sú lína verið færð út eða afnumin í námi eða miklu starfi vaxinnar ævi á erlendri grund. Hitt er svo líklegt, að einhverjum hafi fundizt þessi hefðarkona vera um of öfgakennd á þessu sviði strangleika og istærilætis persónuleikans, sem henni fannst að allt yrði að miðast við, og vera laust við allar feyrur og flysjungs- hátt. Hversu sem hún hefir agað sjálfa sig, hefir frk. Helgason verið merkilegur per- sónuleiki. Unnið mikilvægt ævistarf fyr- ir Island, isyni þess og dætur, landi sínu og þjóð til hins mesta gagns og ævarandi sóma. Hún er því vafalaust ein þeirra gagnmerku niðja hinnar nítjándu aldar, sem enn liggja óbættar hjá garði- Þeirra, sem að litlu hefur verið getið, og þá ekki einu sinni í réttu ljósi dyggða og dreng- skapar, sem fyrst og fremst hefur ein- kennt þennan útvörð þjóðarinnar á er- lendri grund, meðal ungra, fátækra menntamanna, meðan engin sendiráð voru til að telja raunir sínar fyrir. Und- ir hennar verndarvæng nutu þeir henn- ar húsaskjóls og ástríkra leiðbeininga, (Vrh. á bls. Í05). 90 A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.