Akranes - 01.04.1957, Síða 23
^Uríiborg
cftir Árid
Hraðinn er mikill í nútiina þjóðfélagi,
en fast í kjölfarið fylgir hin skilyrðis-
lausa krafa borgaranna til fullkominnar
þjónustu hvar og hvenær sem er, eins
og hendi sé veifað, a öllum sviðum og
leiðum. Allir þykjast eiga þennan kröfu-
rétt, og hann er óspart notaður. Hitt
skiljum við síður, og þá kemur annað
hljóð í strokkinn, ef það á að fara að ná
sér niðri á borgurunum almennt, til þess
ÞórSur Gutimundsson, skipstjóri.
V-------------------------------/
„Akraborg“
að geta uppfyllt þessar — oft — gengd-
arlausu kröfur á öllum sviðum.
Hinn 30. marz s. 1. var „Akraborg“
búin að sigla hér á milli í eitt ár. Hafði
skipið þá farið 251 ferð til Borgarness,
og flutt þangað 5,832 farþega. Til Akra-
ness hafði skipið þá farið á sama tíma
483 ferðir, og flutt þangað 35,720 far-
þega-
Á þessu eina ári hefur skipið því farið
734 ferðir og flutt samtals 41,552 far-
þega, en auk þess allmikið af vörum. Af
þessu má sjá, að skipið er mikið notað,
en það má enn betur sjá af því, að það
hefur verið 354 daga af árinu á ferða-
lagi. Og að á þessu eina ári hefur „Akra-
borg“ verið um 1000 sinnum við bryggju
á Akranesi.
Það er augljóst mál, að svona hrað-
ferðir eru fyrst og fremst gerðar fyrir
fólkið, því að livenær er tími til þess að
ferma eða afferma mikið af vörum með
sliku áframhaldi.
Skipið er svo fullkomið sem frekast
verður á kosið, og störf og þjónusta allra
manna um borð, bæði yfir- og undir-
(Frh. á bls. 109).
AKRANES